Norðanfari


Norðanfari - 18.03.1876, Síða 1

Norðanfari - 18.03.1876, Síða 1
j- Agnai" Jónsson. Jafnvel pó að í 26. tölublaði ísafoldar II ár sje stuttlega sagt frá skipskaðanum frá Stöpum á Vatnsnesi laugardaginn hinn 16. október síðast liðna, þá vil jeg samt hjer með biðja hinn heiðraða ritstjóra Isf. svo vel gjöra að ljá sem fyrst rúm í blaði sínu fylgjandi linum: Agnar sál., sem var formaður á áðurnefndu skipi, var fæddur 22. marz 1848 á Illugastöðum á Vatnsnesi. I'oreldrar hans eru sómahjónin par Jón Árnason og Ögn Guðmundar dóttir Ketils- sonar, sem lengi bjó samastaðar, bróðir Natans læknis Ketilssonar, hefir margt ver- ið skáldmælt í peirri ætt og vel gáfað, enda líktist Agnar sál. frændum sínum, pví hann var mjög vel skáldmæltur strax í barnæsku, og hefði án efa ef aldur hefði endst, orðið eitt af liinum góðu skáldum vorum. Hann hafði mjög hvassan skilning, fjörugar hugsanir og bar talsvert skyn á ýms velferðarmál pjóðar vorrar; líka var hann mjög lagin og kostgæfin til lands- eg sjávarstarfa. Ólst hann upp hjáforeldr- um sínum á Illugastöðum, par til á siðast- liðnu vori að hann fluttist að Gnýstöðum í sömu sveit og reisti par bú með unnustu sinni,yngismeyju Guðrúnu Ólafs dótturbónda par. Allir sem pekktu Agnar sáL sakna hans mjög pví hann var, inndæll, skemmtin og fróður, jafnvel pótt liann hefði ekki náð hinni sönnu lærdómsmenntun, sem slíkum mönnum er mjög nauðsynleg. — Einn af Jrændum hans, mælti pannig við jarðarförina: Líður að vetri lengir nóttu, blikna blómknappar bjarkir fóina, ægir ofurvald aldurtíla falla óskmegir ísa-jarðar. Hví er hróðrardís harmi lostin? Brotin er harpa, brostinn strengur, sofnaði í sæmeyjar svölu skauti: Agnar hinn ungi öðsnillingur. Herfangi sleppti hrannar faðir, í faðm grát-lilýjan frænda látins, felast holds-leifar, í fósturjarðar skauti en himin geymir helgaða sálu. Nú ertu Agnar orpin jörðu, mennta-pyrstur á mærðir lagin, syngur sigurljóð sælii heima; par finna pig frændur á fagnaðar vori. H. N. Saknaðarstef með Lilju-lagi (hrunhenda). Ungur var jeg særður sári, svíða undir harma stundum, af fjör-ráni frænda’ og vina, flest hefir gengið móti lengi; örlaga dísir örðugt rísa oss hjer mót með banaspjótin, neinum hlífir ei hin æfa aldurtíla lundin kalda. Gegnum hryggðar grátský eygði gleðisunna vonar kunna, spratt blómkvistur kyns vors beztur krónaður hrósi gáfna ljósu: Agnar væni alin Jóni, ættarblóm og tíðar sómi, mennta-pyrstur mærðir beztu myndaði pjóð með lyndið fróða. Andlits fríður, ávarps góður, ör í máli bör var stála, ^oð brúna-blisin skæru bros uin varir ljepu snarast, hex-ðabrciður i hegðan prúður. AUKABtAl) við 10. ur. Norðanfara hávaxin með rjóðum lcinnum, prekmannlegur hönd með liaga hrannardýri kunni stýra. Öll hans kvæði [ef rjett skoðast], afl hugmynda sig við binda, andlegt prek og vizka vakin vegleg orð par saman skorða; á priðja tugi ára, ægir aldurs vann að lýsa banni, blóðpyrst rán með broddi sínum blakaði gnoð í dauðans voða. Hnípin situr söngdís grátin, syrgir drenginn mæra lengi, mærðarsmiðum meinið svíður, menntapjóna særir tjónið; sveitin líður sáran skaða sakna frændur gleði rændir, vonar brostin vörm unnusta vætir brár í heitum tárum. Aldin faðir og eldheit móðir elsku sárin bera kláru, líkamshöptin1 ekkert aptra andanum braut í gáfna skrauti; fyrirheitin, böl allt bæta um betri tíðar sambúð pýða, hjartað talar hann pað skilur sem huggunar-málin gefur sálu. Hvað er að trega? hvi úr huga horfin gleði, dapurt geðið? Skammt um líður skal jeg hraðast skila tötrum líkams fjötra; vinnist rata veginn betri veitist króna trúrra pjóna, sælann minn pá frænda finnur frelsuð önd í náðar höndum. Hans Natansson. f Elín Uuðmundsdóttir. Mig hefir að vísu furðað mjög á pví, að jeg hefi ekki sjeð, eða heyrt getið um í blöðunum, lát merkiskonu einnar (par sem pó, einkum í Norðanfara, er getið svo margra látinna merkismanna, karla og kvenna), ekkjunnar Elínar sálugu Guð- mundsdóttur að Skörðum í Miðdölum, ekkju eptir óðalsbónda Björn sál. Björnsson, er bjó par nokkur hin seinustu ár æfi sinnar, svo pað lítur svo út, að hún sem dáin er, fyrir meira en 5 árum, sje horfin mönnum úr minni, jafnskjótt sem hún hvarf sjónum peirra; en pað er hvorutveggja, að pað ætti ekki að vera, enda er pví ekki pannig varið. Elín sáluga var komin af gáfuðu og góðu bændafólki, sem alpekkt er í Norður- landi, alsystir gáfu- og merkismannsins Sigurðar hreppstjóra Guðmundssonar á Heiði í Gönguskörðum, og allir sem pekktu hana verða að játa, að hún væri mikil merkiskona og prýði sinnar stjettar í alla staði; pví hjá henni fylgdist að íjörugar og ágætar gáfur, glaðværð og jafnlyndi sinnis- ins, svo að hún var ávallt eins á að hitta, skemmtin og ræðin, fröð og minnug. í hús- stjórn var hún reglusöm og mesta fyrir- hyggju og iðjukona, árvökur en jafnframt mjög nærgætin og notaleg við hjú sín. J>að var eins og enginn gæti verið par dapur eða kvíðandi, er hún var nærstödd. Hún var ekki síður ástríkasta og umhyggjusam- asta móðir og ektakvinna. Lundin var sam- kvæmt hjartalaginu blíð og viðkvæm, en 1) Móðir hins látna hefir verið næstum heyrnar- og mállaus, síðan á fyrsta ári, en hofir pó lært einn kristindóm, rithönd Og flestar kvennlegar ípróttir. jáfnframt ör og hreinskilin, svo jeg ætla að henni væri ómögulegt að tala nokkurfc orð öðruvísi en hún meinti, við hvern sem hún átti tal. jpað var hvorutveggja að Guð blessaði hana með búsæld og góðum efnum} enda dró hún sig ekki í hlje í pví tilliti, heldur gladdi hún og gjörði gott, eða lið- sinnti á einhvern hátt öllum peim, er ráða hennar eða hjálpar leituðu; en á ráð henn- ar og tillögur var óhætt að ætla; pví pær voru lagaðar eptir lijartalagi hennar, sem öllum vildi vel, og pað mátti sjá af allri breytni hennar dags daglega, að liún hafði yndi af að stuðla til góðs, í hverju sem var, enda leituðu margir, og pað góðir og merkir menn ráða liennar, og pó var liún allra manna frábitnust allri fordild og yfirlæti, og góðvild, greiðasemi og örlæti hennar var optast svo lagað, að pað var fáum kunnugt, nema peim einum, er fyrir pví urðu. Tryggð hennar var óbifanleg og loforð áreiðanleg; trúrækni og guðrækni lýsti sjer í öllu tali hennar og dagfari; fjöri og glaðværð sinnis- ins hjelt lmn til hinna seinustu lífsstunda sinna, og seinustu ferð sína tókst hún á liendur yfir örðugan fjallveg, til að finna og gleðja með komu sinni og jafnframt kveðja gamla vinkonu sína, sem hún hafði kynnst við í æslcu, en síðan lengst af verið fjarlæg, en pó aldrei slitið tryggð við; en strax er hún kom heim úr peirri ferð tók hún hæga sótt, er eptir fárra daga legu leiddi hana til hvíldar með hægu andláti pann 4. eða 5. dag októbermán. 1869 á 71. aldursári. Jeg er viss um, að allir sem pekktu hana munu játa pað með mjer, að par hafi horf- ið burtu fagurt og nytsamt líf, hvers minn- ingu peir munu blessa, sem pekktu. |>ann- ig minnist en nú liinnar framliðnu ein eptir- lifandi æsku- og tryggða-vinkona hennar. í J. t Aðfaranóttina pess 22. desembermán. næstl., andaðist merkiskonan Elisabet Ragn- hildur Einarsdóttir, eptir langa sjúkdóms- legu, hún var 26 ára að aldri, kona Jóns bónda J>orsteinssonar á Bessastöðum í Fljóts- dal. J>au áttu 2 börn, son sem lifir, og dótt- ir sem andaðist á næstliðnu sumri, nærri 1 árs gömul. — J>essa síns elskaða og sárt- saknaða barns, minntist hun á sinni síðustu lífsstundu með peirri gleðiríku von, að nú fengi hún að sjá barnið sitt aptur. Elisabefc sáluga var mikið vel liðin af heimilisfólki sínu í umgengni og útlátum, ásamt öðrum út í frá, er nokkur kynni höfðu af henni. b J- pakkarávarp. „J>að er skyldugt að geta pess, sem vel er gjört“. í hálftannað ár pjáðist jeg af illakynj- uðu æxli undir hendinni, er jeg sökum kringumstæða minna eigi gat leitað hjálpar við, og sem innan skamms hefði orðið dauða- mein mitt, en pegar mjer lá sem mest á, sendi Drottinn ástúðlega mannvini mjer til lijálpar, pau cand. philos. Pál Vigfusson og stjúpu hans húsfrú Guðríði Jónsdóttur á Ási, er tóku mig á lieimili sitt; önnuðusfc pau mig með aðstoð hjúa sinna í 6 vikur eins og beztu foreldrar, og fengu pá lækn- ir herra Zeuthen á Eskifirði og prófast síra Sigurð Gunnarsson riddara af dbr. á Hall- ormsstað, til pess að skera æxlið af mjer, er peim tókst ágætlega, og jeg er peim hjartanlega pakklát íyrir. Ollum pessum mannvinum og öðrmn fleiri, er rjettu mjer bjálparhönd, og pó

x

Norðanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.