Norðanfari


Norðanfari - 18.05.1876, Síða 2

Norðanfari - 18.05.1876, Síða 2
— 38 ancli ákvörðunum um þau, og embættismenn- irnir búa jafnaðarlegast lengur að hæstu launum enn þeim lægstu, þar sem þeirn reglu er fylgt að láta þau fara hækkandi. A. Hrað sem um þetta er, þá ættu em- bættismennirnir ekki að fá meiri laun enn svo, að þeir vel gætu lifað af þeim, því þeim er lagt af almennings fje til að menntast, og skulda í rauninni alþýðunni það, en borga aldrei. Er því ekki tilhlýðilegt að auka súr- ann sveita hennar með því, að leggja þeim svo mikil laun, að þeir geti lifað 1 svalli og sællifi og grætt fje að auki. B. |>að er nú að vísu nokkuð til fyrir þessu; en alþýðan þarf embættismannanna við, og er því ekki nema sanngjarnt, þó hún leggi fje fram til þess, að búa þá til. En þeir leggja sjálfir mikið fram úr sínum sjóði, og eiga að uppskera góðan ávöxt af því sæði; því menntunin veitir þeim ekki einungis að- gang til embættanna, heldur lýsir hún fyrir alþýðu — þegar vel er með hana farið — í mörgum greinum til þrifa og menningar, og ætla jeg í því tilliti að skýrskota til gömlu Lærdómslista-fjelagsritanna og fleiri rita um það leyti. jpegar farið er að úthluta laun- unum, þá verður að gæta þess, að maðurinn hafi nóg fyrir sig að leggja og geti fætt fjölskyldu á þeim, því ekki má leggja fyrir embættismennina að binda sig við einlífi, er mundi þykja miður frjáislegt og ekki upp- bvggileg ákvörðun fyrir fósturjörðina(I). En mesti rnunur er á því, hvort embættismaður- inn þarf að sitja í kaupstað eður í sveit; því sá sem í sveit er, getur stundað búskap, sem ekki svo lítinn arð gefur af sjer, ef lag- lega er að farið; það sjáum við á sumum bændunum okkar, sem, með barnahrúgu og án þess að hafa tekjustofn utanbús, græða fje auk allra sinna útgjalda. |>ar á móti verða þeir optast útilokaðir frá því, sem í kaupstöðum búa, og verður þeim þá lífið út- dráttarsamt, ekki sízt þar sem manmhargt er en magrar sveitir í kring, því þar verða allar landvörur auðskíljanlega miklu dýrari. J>að væri gaman að sjá rjettann og sann- gjarnann reikning yfir það, hvað búsettur embættismaður í Reykjavík, er hefði t d. 8 börn fram að færa, gæti lifað sómasam- lega fyrir um árið. Jeg ímynda mjer að það ekki yrði minna enn hjer um 3000 kr., þó jeg náttúrlega ekkert geti um það sagt með vissu, en jeg legg það svona niður fyrir mjer: Fæði og föt handa hjónunum 800 kr.; fyrir hvert barn gjöri jeg að eins 40 aura er nýkominn heim aptur og menn vonast eptir miklum fróðleiksritum frá hans hendi. Nú á seinni tímum liafa Englendingar látið sjer mjög annt um, að kanna löndin við Persaflóa og Evphratdalinn, og halda sumir, að eitthvað muni undir búa. J>eir hafa gjört út vísindamenn til að mæla dýpt- ina á Evphrat og öðrum fljótum í Meso- potamíu og látið gjöra uppdrætti á stórum hjeruðum, og stjórnin á Indlandi hefir gefið út bækur um stjórnarfyrirkomulag, verzlun og allt ástand landanna þar um kidng. — Jarðfræðingurinn Alexander Petzholdt hefir síðan 1871 verið á ferð um Turkestan eptir boði itússastjórnar. Suðurhluti lands- ins er hálendi og sumstaðar syðst og aust- ast eru allt að 20,000 feta háir jðkultindar. Úr þessu hálendi falla ótal ár til norðurs niður á láglendið, og hverfa þær flestar í saltvötnum og sumstaðar jafnvel beinlínis niður í jörðina. í fjallendunum er víða trjávöxtur mikill, en láglendið er mestallt eyðimerkur trjá- og graslausar, það er helzt fram með fljótunum sem notandi land er, og þar er líka dýrkað hveiti, bygg, hrísin- grjón, mais, hampur, hðr, fíkjur, möndlur, vín ög fl. Aðalbjargræðisvegur landsbúa er á dag eður hjer um bil 150 kr. fyrir hvert, að meðtöldum öllnm kostnaði til að manna þau, og gjöi'ir það fyrir þau öll 1,200 kr.; fæði og kaup vinnudrengs 300 kr.; sömuleið- is fyrir þjónustustúlku 280 kr., og eldabusku 240 kr.; húsaleiga 120 kr.; útsvar til bæjar- þarfa 80 kr. Eru nú komnar 3020 kr., en þó ótalið allt eldsneyti, til ljósa, til búsgagna og sjálfsagt fleira af því nauðsynlega, enda allt of lítið lagt fyrir börnin; en með tilliti til þess, að þau ekki komi öll í einu og eyða litlu fyrst, enda auðvelt og kostnaðarlitið að útvega þeim sæmilega menntun í Reykjavík, þá vil jeg ekki geta mjer til stærri upphæð í forlagseyrir þeirra. Beri maður þetta sam- an við „"Yfirlit bóndabúskapar“ í „Nýjum fjelagsritum“ 7. árg., þar sem 10 manns er reiknað í heimili — þar af 4 ómagar — en útgjöld búsins öll talin 175 vættir yfir árið, eður eptir núgildandi verðlagi hjer um bil 2060 kr., þá kemur að sönnu fram dálítill mismunur, en öldungis ekki sá, er bendi til, að þessi tilgáta fari of hátt þegar litið er á allar kringumstæður. — |>ú vilt nú máske halda, að engu embætti ætti eptir þessu að leggja meira enn 3 til 4000 krónur, en ekki hjálpar annað enn að gjöra mun á þeim, eptir þeim vanda og þeirri ábyrgð, sem á þeim hvílir, annars fengi maður kannske ekki hæfa menn í þau æðri, og kærni þá sparn- aðurinn að ónotum, eins og hann líka væri mjög ótilhlýðilegur. A. Jeg vil nú ekkert við þig tala framar; þú ert auðsjáanlega höfðingjasleikir. Jeg gjörði mjer von um að finna þig sem trygg- ann og góðann fjelagsbróður, reiðubúinn til að samþykkja skoðanir mínar, sem jeg, þrátt fyrir mælgi þína, held að sjeu traustar og góðar, því þær styðjast víð almenningsálitið. En hvað skeður? þú afneitar stöðu þinni, mælir bót axarsköptunum á þingi, vilt láta embættismennina klæðast pelli og purpura og lifa hvern dag í „vellystingum praktug- lega“, en stendur alveg á sama, þó^bænda- stjettin sökkvi við það niður í saurinn; þetta kalla jeg nú ekki gott af þjer. B. Nei vinur minn; þú mátt ekki taka hart á mjer þó okkur ekki komi alveg sam- an. Jeg er bóndi eins og þú og óska bænda- stjettinni alls gengis og hagsældar af innsta hjartans grunni, framar öllum öðrum, ekki einungis þess vegna, að það er mín staða, heldur líka hins, að bændastjettin er mátt- arstólpi þjóðfjelagsins, sem allt annað bygg- ist á, og or því velgengni hennar fyrir öllu. kvikfjárrækt, enda eiga þeir rnargar milljón- ir af úlföldum, sauðfje, kúm og hestum. Á mörgum stöðum búa menn þar að eins í tjöldum og lifa af merarmjólk, sem annars er algeng fæða um alla Háasíu. — Loks- ins tókst Rússum 1873 að leggja undir sig Khiwa eptir miklar þrautir og manntjón. |>eir hafa eigi verið aðgjörðalausir síðan þeir komu þar. Stjórnin hefir gjört út marga menn og lestir til að kanna landið og landskosti, Rússar láta byggja hvert gufuskipið eptir annað til þess að fara eptir fljótunum og starfa mikið að því að koma landinu upp í öllu tilliti. Nú eru þeirmik- ið að hugsa um að grafa stórkostlega skurði til vatnsveitinga og brunna til þess að frjóvga landið. Eins og kunnugt er, hafa Englending- ar einna mest fengíst við að skýra og lesa fleigletur (Kileskrift) það, sem finnst á leir- flögum í borgarústum Asyríumanna og hafa fundið þar ótrúlega mikla sögulega auðlegð. Englendingurinn Georg Smith hefir 1873 —1874 ferðast austur í löndum til þess að rannsaka nákvæmar fornmenjar þessar og hefir orðið mikið ágengt. |>essi sami mað- ur yar áður orðinn frægur af þvi, að skýra En við þurfum að velta þessum málum fyrir okkur til þess, ef mögulegt er, að fá sannar og rjettar skoðanir á þeim, og dæma ekki um þau fyrri. Embættismennirnir eru vinnu- menn þjóðarinnar, og eins og það er í hús- bóndans eiginn hag, að gjöra vel við hjú sín, eins hlýtur það að vera í okkar eiginn hag, að gjöra vel við embættism. Hverju því heimili, sem vinnur með eindi’ægni og bróð- urhug að heimilisstörfunum, farnast vel, þar sem hætt er við þvi gagnstæða, ef ósamlyndi og úlfúð drottnar. |>ú sjerð því, að jeg hef okkar eiginn hag fyrir augunum í vissu til- liti jafnframt þvi, að vera sannsýnn gagn- vart embættismönnunum, og vilja heldur stuðla til eindrægni og bróðurlegrar sam- vinnu þeirra við oss. Bændur mega ekki álíta hag sinn falinn í því, að nurla gjöldin í sameiginlegar þai'fir, heldur í hinu, að auka og bæta atvinnuvegi sína af fremsta megni og leggja alúð við vöruvöndun, svo að það, sem kemur á veraldar markaðinn af þeim, fái gott orð á sig, og hafi í sjer trygg- ingu fyrir því, að vera útgengilegt hvar sem er .og haldast í fullu verði; eður með öðrum orðum, að vörurnar sjeu bæði ásjálegar og góðar að reyna. En til þessa eiga embætt- ismennirnir aptur á móti að aðstoða oss með ráði og dáð af sínu menntunarljósi, og það ættu þeir helzt ekki að vanrækja, því við höfum þess þörf á meðan alþýðuskólar ekki verða til hjá oss. (Framh. síðar). — Úr bijefl úr Fljútum, d. 15. apríl 1876. „í fyrradag kreppti liafísinn hval að landi innan við |>órðarhöfða á Skagafirði, var hann lagður og festur í fyiTakvöld; stærð hans var ágizkuð 40—50- álnir, en ekki er nú víst að það sje áreiðanlegt. |>að sem sjeðst hefir yfir ísinn af fjöllum hjer, er hann allur sundurlaus eður ófrosinn saman, með stærri og minni augum. Ættu hákarlamenn vorir að hafa það hugfast, að fara varlega við hann þegar að því kemur, að þeir leggja út til veiðanna, því þessi sundurlausi ís er hinn versti og hættulegasti við að tefla; hann getur teppt leiðina þar eða hjer þegar dimmt er, og umkringt skípin svo, að þau ekkert komizt, án þess hægt sje að sjá það fyrir, ef óvarlega er í hann farið, og er líka sjó- rót að óttast strax og hvessir, er gjörir við- sjálara og hættumeira að fást við ísinn, hvar sem er og hvernig ástendur. Hinir sífelldu mannskaðar, ættu þó einhverntíma að sann- fleigleturstöfiur með nákvæmri frásögu um syndaflóðið, sem mönnum eins og nærri má geta þóttu mjög merkilegar. Fyrst rann- sakaði Smith rústirnar af Babylon, sem allt- af eru smátt og smátt að hverfa, þvi menn þar í kring lifa á því að selja tígulstein- ana þaðan. J>ar fann hann þó margt merki- legt. Síðan hjelt hahn til Nínive, það hefir verið afarmikil borg, því rústirnar eru meir en 8 mílur ummáls og borgarveggirnir eru víða enn þá yfir 50 fet á hæð, þótt mjög mikið sje hrunið ofan af þeim. Yið must- erið Nabos fann hann ákaflega mikið af pei’lum, hringum og öðru fornu skrauti, auk þess fann hann í skjalasafni Sennacheribs, — sem þó áður hafði verið rannsakað —r margar töflur og töflubrot, sem enn voru læsíleg. Meðal annara fornmenja í Niniva fann Smith matkvísl, sem aldrei hefir fyrr fundist frá svo gömlum tímum, og ýms stjörnufræðinga verkfæri; það sást og að í hverri borg höfðu verið athugaðar stjörnur, sólmyrkvar o. s. frv. og rit um það voru á vissum tímum send til visindamannanna í í höfuðborginni, svo Ássyríumenn hafa eigi verið svo skammt komnir í þessum greinum. í sögulegu tilliti hefir ferð þessiborið riku-

x

Norðanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.