Baldur - 18.08.1868, Side 1

Baldur - 18.08.1868, Side 1
Fylgir 1. ári, 12. blaði. 1868. ÓKEYPIS viða nkablað við „BaI<Inr“. Reykjavík 18. dag ágúst-mánaðar, Efni. Frjettir inril. — Gíílir landar! — Tafla yflr veiráttn. — Frjettir útl. — Veríilag á korni. — Pústskipii). — Skjaldakotsmálii). — Vísitazíuferi) bysknps. — Spnrning. — Prestaköll. FRJETTIR INNLENDAR. Loksins hafa kaupmenn kveðið upp með verð á salt- flski, svo að nú er fast verð hjer á öllum flski þannig: Hjá kaupmönnum : Hjá Svb. kaupm. Jacobsen: saltflskur skpnd. á 20 rd. . 24 rd. . mismunur 4 rd. harðurflsk.skpnd. á 36 — . 40— . — 4— Hver sem leggur inn 25 skpnd. af flski (hvort sem er verzl- unarfjelag eða einn maður) græðir þá 100 rd. á því að verzla við Jacobsen, en tapar 100 rd. á því að verzla við aðra kaupmenn. Á hverjum 250 skpnd., sem Jacobsen flyt- ur út úr landinu, græðir landið 1000 rd. Petta munarstór- Ije á mikilli verzlun, og hlýtur þó Jacobsen, sem byrjaði verzlun víst af litlum efnum, að vera skuldugur erlendis; mundi nú eigi vera til vinnandi fyrir þá, sem geta, að halda slíkum kaupmanni við, með því að verzla sem mest við hann? en mönnum kann að þykja nokkuð ísjárvert, eins og nú stendur, að leggja flsk inn til hans, ef menn ekki skulda honum, af því hann er nú kornlaus; en hinir kaupmenn- irnir eru heldur ekki byrgir. Vjer vitum ekki betur, en að kaupmaður Jacobsen hafl sent skip til kornkaupa, og — eptir því sem síðar sjest í þessu blaði — þá verður það korn sem á að koma í haust víst selt með tatsvert lægra verði, enn verið heflr, þar sem korn er nú fallið í verði. Vjer verð- um því helzt að álíta, að bændur ættu að geyma honum fiskinn, ef þeir ekki treystast til, eins og nú stendur, að leggja hann inn hjáhonum; en fleygja ekki flskinum í hina kaupmennina, er ver gefa fyrir hann; það hefði víst orðið lítið, sem þeir hefðu gefið fyrir fisk í ár, ef Jacobsen hefði ekki verið hjer. Kafli úr briefi úr Húnavatnssýslu d. 7. ágúst þ. árs. »Hvað veðuráttu snertir, þá var hjer mjög votviðrasamt, eins og fyrir sunnan, frá því umJónsmessu og fram í 14. viku sumars (fram um 20. júlí). Almennt var tekið til slátt- ar í 12. vikunni og sumstaðar öllu fyr. Tún voru mæta- vel sprottin og svo mun harðvelli vera víðast hvar. En nærri lá, að töður mundi stórlega skemmast og rýrna í vætum þeim, sem stöðugt gengu framan af túnaslættinum, því tað- an var víða orðin hálfsmáuaðar áður en nokkurt strá væri þurrt afhenni. En þá kom þerrir í samstæða viku, svo töð- urnar hirtust og nýttust vel á endanum, það var um lok júlí-mán. Um þær mundir var því víðast haldinn tyllidag- ur í þess minningu hjer í sveitum, blessaðnr töðugjalda- dagurinn, eins og lög gjöra ráð fyrir. Mjer er óhætt að fullyrða, eptir því sem taðan var mikil og góð, að töðu- gjöldin hafl verið úti látin með heiðri og sóma af ílestum húsbændum í því sem erfiðsfólki kemur opt vel, staðgóðri máltið, kaffi með brennivíni í, og kann ske brennivíni þar fyrir utan(H) þeim duglegustu. Eegar þetta þrennt fer sam- an í ríkulegum mæli, þá eru flestir ánægðir með sig og lífið, enda þykjast þeir allir, sem standa í lögskilum og ljúka laglega við eyrisvöllinn (3 daga sláttinn) á vikunni, eiga þetta hnoss skilið, þegar þeir þar á ofan eru ötulir að þurrka, sæta og binda svo allt gengur liðlega. Það sem af er slættinum, er hinn skemmtilegasti sumartími, sem flestir hafa nú lifað í mörg ár hjer fyrir norðan; það er mjer ó- hætt að segja. íslendingar eru almennt ekki svo örir í skapi, að þegar megi lesa út úr þeim, hvort þeim líkar vel eða illa, en engum ókunnum manni, sem hefði farið hjer um sveitir og tekið eptir fólki, mundi nú hafa dulizt, hver ánægjusvipur var á öllu, og að menn gengu glaðir að vinnu sinni, o: heyskapnum, því grasið er nóg og nýtingin enn að því skapi. Annaðhvort af þessu eða hvorttveggja er lengi búið að vanta. Ef sumar þetta ræðst vel hvað veð- uráttu snertir fram til hausts og menn hafa svo gætur á að setja skynsamlega á hey sín, sem reynslan ætti að vera búin að kenna hverjum, sem ber bónda-nafn, þá er það ekki vafamál, að menn rjetta við stórum eptir árið sem leið, eða öllu heldur blómgast, og er þó satt að segja, að bændur hafa átt við ramman reip að draga þar sem verzlunin er síð- an í fyrra sumar. Þá máttu þeir segja: •>Allt kvam senn at svinnum«. Yá var mikið grasleysi eptir mesta harindis- vetur. Fjenaður gekk fram langkvalinn og horaður. Ull þriðjungi minni og helmingi minni en vant var. Verð á útlendri og innlendri vöru undir eins hið lakasta. Korn- matur fjekkst því ekki nærri að þörfum. Málnyta einhver hin rýrasta, sem menn vita til. Heynýting einstaklega bág. Af þessu er auðsætt ástand manna hjer fyrir norðan I fyrra haust. En af því að menn skáru niður lömbin vegna hey- leysisins og lögðu mikið fje frá, þá komust menn af vet- urinn sem leið. Nú þó verzlun batnaði ekki að sinni þá var þó allt betra en áður. Ull varð miklu meiri en í fyrra, því fjeð gekk svo vel undan, og málnytan er betri yfir höfuð. Þessar tvær afleiðingar af góðri meðferð á fjeuu eru tvær ótæmandi auðsuppsprettur fyrir sveitabóndann, en sem fæstir og ef til vill enginn leggur nóga stund á. I’ar á ofan hafa menn hjer i sveitum lagt meira kapp og almennara á grasa- tekju, en nokkru sinni áður, þvi af flestumbæjum heflr fólk farið á 2 og 3 fjöll og legið viku, hálfan mánuð eða 3 vikur i senn. Menn eru fyrir löngu komnir að raun um það fyrir norð- an, eins og yður er kunnugt, að fjallagrösin íslenzku eru

x

Baldur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.