Gangleri - 13.09.1871, Blaðsíða 8
•Tóni Bjarnasyni, er síðast var prestur til
Prestbakka í Strandasýslu.
Kristján E. í'órarinsson, er vígður prest-
ur til Staðar í Grindavík og Vogsósa, sem er
nú sameinað brauð.
Um Reykjavíkurbrauðið hafa sótt: 1. sjera
Páll J. Mattíesen, prestur að Stokkseyri. 2.,
skólakennari Jónas Guðmundsson. 3., sjera
Matth. Jockumsson í Móum. 4. Cand. theol.
Eiríkur Magnússon frá Lundúnum. 5. Cand.
theol. Ilallgríinur Sveinsson frá Staðarstað.
Enn fremur sótti prestaskólakennari sjera Ilelgi
Hálfdánarson með skilyrði.
— Hin 9 þ. m. koin austanlands póstur
Daníel Sigurðsson, með honum spurðust ekki
aðrar frjettir, en að mjög óþurkasamt hefði
yfir höfuð að tala verið um Austurland, heilsu-
far manr.a gott, eg að bólusóttin, sem getið er
um hjer að framan muni, ekki vera komin
nema á þann cina bæ á Langanesinu.
lír brjefi úr Berufirði dags. 22. ágústs
„Veðuráttan hefir allt til þessa í suinar mátt
heita æskileg, grasvöxtur með betra móti,
hirðing á heyi hin bezta, nema f 2 mikluiu
norðanveðrum hafa menn misst nokkuð af
heyi. Afli hefir verið nokkur í sumar hjer
fyrir öllu Austurlandi, þó hefir hann hjer í
Berufirðinum verið talsvert minna en í fyrra-
sumar og ekki gengið eins innarlega á fjörð-
inn. Hákarlajaktir þær 3, er ganga til há-
karlaveiða hjer fráDjúpavog, hafa aflað ágæt-
Iega, einkum 1 þeirra, sem er búin að fá 388
tunnur lifrar; fyrir henni er hinn alþekkti hepnis-
maður Jóhann Malmkvist. Veikindi hafa verið
hjer lítil, nema kvefveiki, en engir hafa dáið úr
henni. Nýlega hafa samt 2 menn, l'ullorðinn
maður og drengur drukknað á Búlandsnesi fast
við land, þeir ætluðu út í sker, er var skamt
frá landi, á mjög völtum bát, til að taka skcl
en hvolfdi undir þeim á leiðinni og báðir drukkn-
uðu. Ekki er enn búið að ákveða um prísana
hjer á Djúpavog, en kaupm. Tuliníus setti strax
prísa þegar hann kom í sumar úr Englandsför
sinni: 48 sk. ull, 9 rd korn, 11 baunir. 12]
grjón; 24sk. kaffi, 24 sk. sikur; 18 sk. brenni-
vín, dún 7 rd pundið; en haldið er, að hinir
kaupmennirnir vilja ekki gefa sömu prísa,
nema kannske á ullinni.
Túliníus er einhver hinn ágætasti kaupm.
er við höfum hjer, ef hann bristi ekki efni, og
í raun og veru sannur íslenzkur kaupmaður.
Læknirinn Þ. Tómasson, er nú kominn heim
aptur (11. þ. m.) úr vitjunarferð sinni af Langa-
nesi. IJegar þangað kom, reyndist honum alls
enginbólusótt á Læknisstöðum, eða þar uin
nesið, og ekki heldur óþrifakláði á neinni kerl-
ingu, eins og Norðanfari segir.
Mannalát. Látist hafa úr taugaveik-
inni í Iieykjavík, þessir menn: 8. f. m. gull-
smiða meistari Magnús Pjetursson Hjaltsteð, á
34 ári. 13 s. m. bakari Vilhelm G. Bernhöft
44 ára, og skólalærisveinninn Magnús S. Bor-
láksson frá Undirfelli 20 ára. 1G s. m. bók-
bindari Jón Jónsson 21 árs.
BLAÐAMYRKRIÐ í AÐALVÍK finnst
okkur vera orðið óþolandi, því lengdin og
leiðarskekkjan, ineinar norðlenzku blaðaljós-
unuin inn í okkar hreysi og hinni einu sunn-
lenzku blaðatýru bregður hjer ekki fyrir nema
endruin og sinnum Vjer s k o r u m því f a s t
á ykkur „Nokkra menn í Reykjavík“, sem boð-
að hafa nýtt Ijós íróðleiks og þckkingar í
ýmsum greinutn, að þjer kveikið það hið allra
fyrsta og sendið okkur, áður enn við dettum
með öllu út af í blaðamyrkri og myrkfælni;
við munum aptur greiða gjald og þakkir, og
veita slíku ljósi viðtöku fegins hendi.
Yrkkar tilvonandi skiptavinur.
Grímur Hansson.
AUGLÝSING.
Hjá undirskrifufcum fæst til kaups Levys
kennslubók handa yfirselnkonum aukin og end-
urbætt. Bdkin kostar 1 rd. 32 sk í stýfu bandi og
1 rd 64 sk. til 2 rd í góbu bandi. Ltka fæst nú
bjá undirskrifutum hin nýja endurbælta Sáluia-
bók íyrir 1 rd. 32 sk. í gyltu alskinni, og í vand-
afcra bandi eptir því sem hverjum þóknast, íyrir
meira verfc. Frb. Steinsson.
L e i & r j e 11 i n g : í nr. 12—13, bls. 49, 2.
dálki, 4. hending í 3. vísu stendur: ,,óbornum alda-
sveini“, fyrir: óbornum alda seiuni
Útgefendnr: Nokkrir Eyfirðingar.
Ábyrgöarmaður: Friðbjörn Steinsson.
Frentafcur á Akureyri 1871. B, M. Stepháusson,