Heilbrigðistíðindi - 01.03.1879, Qupperneq 1
HEILBRIGÐISTIÐINDI.
JW. 3. Marzmán. 1879.
Um rotnuneyðandi lyf.
Ein af þeim merkilegustu uppgötvunum á hinum
síðustu tímum eru hin rotnuneyðandi lyf (antisceptica),
sem hafa gjört óendanlegt gagn bæði handlæknisfræð-
inni, og meðhöndlun sumra hinna innvortis sjúkdóma.
Síðan þessi lyf fyrst voru fundin upp, og almennt
farið að viðhafa þau í handlæknisfræðinni, eru nú ná-
lega liðin 13 ár, og er það segin saga, að síðan að
þau fóru að verða almenn, hafa menn, sem skera
(operera) hefir orðið sökum ýmsra meinsemda, læknazt
helmingi fljótar en áður, og allt að einu hefir dauðra-
talan af mönnum, sem skornir hafa verið, orðið nær-
fellt þriðjungi minni en áður. Prófessor Lister í Glasgow
var sá fyrsti, er innfærði þennan máta þar, og sá jeg
ýmsar af hans lækningum, þegar jeg var á Skotlandi
árið 1867. Hið fyrsta meðal, er hann við hafði, var
karbóliksýra; hún var blönduð með olíu allt að tiunda
parti, og sýndi það sig, að þau sár, er þannig voru
meðhöndluð, greru óvanalega fljótt, og án þess, að í
þeim græfi. jþetta þótti hin mesta uppgötvun, einkum
þegar fram í sótti og menn sáu, að langtum færri dóu
eptir skurði eða meinsemdir, en áður hafði verið, svo
að mátinn vann almenna tiltrú, eigi að eins í Evrópu
heldur og í Ameríku.
Karboliksýran hefir sökum þessa verið almennt
viðhöfð, og er það enn; en með því að hún er ýmsum
vandkvæðum bundin, hafa læknar smátt og smátt ver-
ið að upphugsa og reyna önnur meðöl, er óhultari