Heilbrigðistíðindi - 01.03.1879, Blaðsíða 2
18
kynnu að vera; meðal þessara má nú nefna tvö, er
unnið hafa borgararjett og almennt er farið að við hafa;
annað þeirra heitir salicylsýra, og finnst hún í ýmsum
plöntum, einkum í mjaðarjurtinni *, og þekkja menn
hana þar þegar á sinni þægilegu lykt, enda er það al-
mennt kunnugt, að seyði af henni var í fyrndinni al-
mennt við haft við útvortis meinsemdir og sár, enda
er alls eigi ólíklegt, að konur, sem fengust við að fægja
upp sár manna þeirra, er í bardögum höfðu verið, hafi
notað þessa jurt til lækninga sinna. Hið annað af þess-
um nýju meðölum er blóðbergsolían, það er rjett ný-
lega farið að við hafa hana, og þykja nú allmikil lík-
indi til, að hún muni vera hið handhægasta meðal þessa
meðalaflokks, er hjer um ræðir, og mun jegseinna, ef
guð lofar, skýra betur hjer frá.
Um ýmislegt, er veldur ólieilnæmi við sjóinn.
Vanalega telst sjóloptið heilnæmt, en þó kemur
það eigi sjaldan fyrir, að ýmsir þeir hlutir finnast með
sjó fram, er gjöra það miður heilnæmt. Meðal þessara
hluta má reikna upprekið þang og ýmsar stærri og
minni sjóplöntur, sem rotna, einkum á vorin við sólar-
hitann, þegar logn og staðviðri ganga. þ>essi þang-
rekstur er eigi sjaldan samfara kuðungum og öðrum
smá skelfiskum, og þetta rekur vanalega mest í stór-
straumum. Vilji nú svo til, að þegar mikill reki er af
þessum dýra- og plöntuefnum, rotnar það allt, sem er
fyrir ofan sjávarmálið, þegar straumurinn minnkar, og
gefur eigi all-sjaldan mjög óþægilegan daun frá sjer;
hjer við bætist nú, að í sjóplássunum safnast opt mikið
*) I grasafræði bróður míns sáluga, Odds Hjaltalíns, má meðal annars
sjá, að menn á hans tímum álitu mjaðarjurtina mjög góða gegn
rotnun í sárum, og líkt er um sum vor nýjari meðul, ef vel er að
gáð, að þau hafa verið þekkt á eldri tímum.