Heilbrigðistíðindi - 01.03.1879, Blaðsíða 3
lí>
fyrir af slori og ýmsum fiskileifum, þegar vel fiskast,
og hjálpar þetta allt mjög svo til að gjöra sjóloptið
mengað ýmsum rotnunarefnum á vorin þegar vel viðr-
ar og kyrrur eru miklar. Sömuleiðis færast þessi rotn-
unarefni frá smátjörnum eða pollum, erliggja lítið eitt
fyrir ofan sjávarmál, en þaðan getur þetta rotnun-
blandaða vatn auðveldlega lcomizt inn í grunnæðarnar
og þaðan aptur færzt úr þeim niður í vatnsbólin eða
brunnana; þetta á sjer einlcum stað, þar sem vatns-
bólin eru nálægt sjónum, og getur enginn fyrir sagt,
hvílík vanheilsa af því kann að hljótast fyrir sjávar-
manninn. þ>egar maður ber saman dauðratöluna i sveit-
unum og í sjóplássunum, verður hinn árlegi mismun-
ur talsverður, og eigi er það sjaldan, að hann í sjó-
plássunum er þriðjungi meiri en upp til sveita. J>að
er eigi svo hægt sem menn skyldu hugsa, að fá alla
þá ólyfjan sem í mörgum sjóplássum virðist að verka
mjög óheppilega á heilsuna, rudda úr vegi og gjörða
óskaðlega; þó mætti allmikið hjer við gjöra, ef kunn-
áttu og samtök eigi vantaði. Jeg hygg og á hinn
bóginn, að í stað þeirrar óhollustu, sem þetta kveykir
í mörgum sjóplássum, gætu menn haft allmikið gagn
af þessum fiskileifum. í útlöndum, þar sem mikill
fiskiafli er, svo sem í Noregi og víðar, hafa menn nú
almennt komið á fót fiskileifaverksmiðjum, er menn
þar kalla guano-verksmiðjur, og sem nú á seinni tím-
um eru orðnarað mesta gagni, því að fiski-guanóið er
talið einhver hinn bezti áburður, eigi að eins fyrir jarð-
rækt alla, heldur og fyrir kálgarða. þessa hafa menn
og sjeð merki til hjer á landi, þar sem áburður af
slori eykur mjög grasrækt þar sem þaðerviðhaft sem
áburður; en máti sá, er menn hafa á þessu slori, sem
sje að safna því í gryfjur eða vilpur, þar sem það allt
rotnar og kemst í ólgu, er allt annað en hollur fyrir
heilsuna. Erlendis, þar er menn hafa fyrnefndar verk-