Heilbrigðistíðindi - 01.03.1879, Side 8
giptum ; það er bezt að fá okkar homöopatbisku vitringa til að gjöra
það ; en stórskamtalæknar viðhafa það á þann hátt, að óðara en
einhver hefur brennt sig á eldi eða sjóðandi vatni, er brunabletturinn
þakinn með dusti af so da, og hverfur sviðinn og verkurinn þá alFt í
einu, án þess það grafi í brunanum. þ>etta þykir bæði þarfleg og merki-
leg uppgötvun. Öll brunasár eru fjarskalega pínandi, og ef þau eru
stór, hættuleg fyrir lífið. þ»essi uppgötvun var þá þegar reynd af ýms-
um læknum, og gjörðu þeir þessar tilraunir á sjálfum sjer, og unnu það
til, að brenna sig með sjóðandi vatni á handleggi eða fæti. J>að er
mælt að þessar tilraunir hafi allar lukkast einkar vel og virðist nú með-
alið að hafa fengið fasta tiltrú.
Homöopathian.
Mikið gengur á með homöopathiuna nú á landi voru, og veitti
eigi af heilu blaði i sambandi við ýmsar aðrar nýjar bollaleggingar um
læknaskipun vora, til að skýra frá þessu öllu. Verst er, ef risið á öllu
þessu verður svo hátt, að það dettur um koll, enda mun koma að því
fyr eða seinna, að engin ósköp standi lengi. f>að versta er, ef sumir
af vorum lærðu mönnum oftaka sig svo á þessu, að þeir verða eptir
sig, og fá nokkurs konar doðasott, þegar fram í sækir.
Blaðagreinir, er benda á ýmsa nytsemi.
f>egar jeg undanskil þrjú blöð af þeim, er nú eru uppi, sem sje
ísafold, jþjóðólf og Skuld, er það mjög sjaldan, að menn sjá slíkar
greinir í dagblöðum vorum, er verulegt gagn má af hafa. I Isafold
standa ýmsar greinir bæði nytsamar og fróðlegar, sömuleiðis standa í
Skuld vel samdar og fallegar greinir um jarðræktina. Vjer vildum óska,
að Isafold yrði eigi of margorð um homöopathiuna, því að verði það,
mun eitthvað af þvi, er nytsamara er og fróðlegra, verða að sitja á hak-
anum hjá rithöfundinum.
Útgefandi: J. Hjaltalín, landlæknir.
Prentsmiðja Isafoldar. — Sigm. Guðmundsson.