Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1901, Blaðsíða 4
Skýrsla.
— i
I. Aðalfundur félagsins.
Aðalfundur félagsins var boðaður og haldinn 20. ágúst1 1901 af
varaformanni Pálma Pálssyni í forföllum formanns. A fundi þessum hélt
prófessor Finnur Jónsson fyrirlestur um verndan fornmenja, sem Árbókin
flytur nú ágrip af. Aður höfðu formaður félagsins og umsjónarmaður
Forngripasafnsins gefið út áskorun því viðvíkjandi, er birt var í ýmsum
blöðum landsins. Þar eð fundur þessi var eigi lögmætur til kosninga,
var boðað til aðalfundar á ný og ’nann haldinn 22. nóvember 1901. For-
maður skýrði þar frá, að Arbók félagsins væri undir prentun og gerði
grein fyrir framkvæmdum félagsins. Br^mjúlfnr Jónsson hafði í sumar
eins og að undanförnu unnið í þjónustu félagsins og farið rannsóknar-
ferðir um Suðurland; mundi skýrsla um það koma í Arbókinni 1902. Að
því er snertir Hörgsdalsfuudinn, gat hann þess, að von væri til, að fyrir
góðfúslega milligöngu Péturs alþingismanns lónssonar mundu samn-
ingar komast á um rannsóknir honum viðvíkjandi. Formaður gat þess,
að kapt. Bruun hefði sent ritling um Parísarsýninguna, er sendur mundi
verða félögum með Arbókinni þ. ár. Enn fremur gat formaður þess, að
í fjárlögunum fyrir 1902 og 1903 væri hinn árlegi styrkur félagsins af
landssjóði hækkaður upp í 400 kr.
Fram var lagður endurskoðaður reikningur félagsins fyrir 1900 og
höfðu engar athugasemdir verið við hann gerðar.
Rektor B. M Olsen bar fram þá uppástungu, að úr lögum væri
numið það ákvæði, að fundur væri eigi lögmætur, nema 12 félagsmenn
auk forsetans væru á fundi, eða tala sú færð niður, og var samþykt á-
skorun til stjórnar félagsins um, að undirbúa lagabreyting í þessa átt.
Því næst voru kosnir embættismenn og þrír fulltrúar (Pálmi Pálsson,
Hannes Þorsteinsson og Jón Þorkelsson), og svo endurskoðunarmenn.