Ameríka - 07.07.1874, Blaðsíða 16

Ameríka - 07.07.1874, Blaðsíða 16
80 er þjer álítið hyggnasta, skynsamasía og framkvæmdar- samasta; felið svo nefnd þessari forsjá fyrir yður, þá er til þess kemur að velja yður Iönd, eða hjerað til aðset- urs og bústaðar og gjöra þá samninga er með þarf og annað er til framkvæmda horfir og að því lýtur að mynda íslenzka nýlendu. Ef yður heppnast vel valið, mun yður eigi yðra þess að fylgja þessu ráði; því þetta gjöra aðrir þjóðflokkar er vestur flytja; en af því flokk- ur sá, er fór til Ontario í fyrra, gjörði þetta ekki, tvístr- aðist hann allt of mikið, sem olli því, að nýlenda þeirra er svo lítil og kjarklaus, og þar að auki illa sett, og landið eitthvert hið lakasta; því þeir gættu þess ekki, að senda á undan sjer menn til að skoða landið ogveljaþað, cr bezt og hentugast þætti, fyrr en nú nýlega, eptir að nokkrir hafa tekið lönd og búsett sig. En auðvitað er að menn þessir — nefnd sú er þjer veljið — geta eigi gjört þetta þóknunarlaust. Að endingu vil jeg geta þess, að ritað hefur verið Islendingi, sem búinn er að vera 2 ár í Ameríku og sein talar málið ágætlega, og skorað á hann að vera kominn til St. John þá er flokkurinn kernur þar, til að gjörast þýðandi flokksins, en sjálfur verður flokkurinn að borga honum sómasamlega, það er hann verður í hans þjónustu, og ætti líka að vinna hann til að setjast að hjá sjer; því þótt 3 væru til nefndir þá er sá, sem mestar líkurn- ar eru til að fáist, fyrst og fremst góður drengur eins og hinir og þar að auki æíður þýðandi; því hann hefur haít- þá atvinnu næstl. vetur, og hefur að öðru Ieyti mjögsvo lagt sig eptir háttum Ameríkumanna. Um leið og jeg óska yður lukkulegrar ferðar, óska jeg þess heilhuga og vona að yður farsælist svohinnnýji fyrirhugaði bústaður, að þjer og nyðjar yðar hafið jafnan fullt efni til að blessa þá stund, er þjer rjeðust í bústaða skiptin. Yelvildar- og virðingarfyllst. P. Magnússon. Utgefandi: Páll Magnússou. Akureyri 1874. B. M. St e phd ns son.

x

Ameríka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ameríka
https://timarit.is/publication/100

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.