Fréttablaðið - 25.07.2001, Síða 10
II
I Rí l i ABl AÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLADSINS |
III örlög musteris
tungunnar
Dr. Jón S. Þorleifsson, hagkerfisfræðingur,
skrifar frá Brussel:
arkitektúb Enn eina ferðina berast
dapurleg tíðindi um málefni Þjóðleik-
hússins. Sú náríasarlega fjárhæð sem
ætluð hefur verið húsinu til viðhalds
virðist ekki öll hafa ratað á rétta staði.
Málið þykir það alvarlegt að lögð hef-
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Andvaraleysi og sinnuleysi um eðlilegt við-
hald, segir bréfritari.
ur verið fram beiðni um stjómsýslu-
úttekt í þinginu vegna þessa. Fyrir
nokkrum árum bárust þær fréttir að
nú ætti að klastra bráðabirgðageymsl-
um, klæddum steindum plötum, upp
að Þjóðleikhæusinu. Landsmenn vita
hvað bráðabirgðabyggingar þýða á fs-
landi, þegar menningin er annars veg-
ar. í vetur bárust þær fréttir, að
menningarmusterið, Þjóðleikhúsið,
hriplæki og múrstykki hryndu af hlið-
um og köntum þess á bfla og hefðu
jafuvel hitt nýlegan fjallajeppa og
þótti þá bflaþjóðinni málið orðið alvar-
leg. Umhyggjan fyrir þessu aldna og
fallega húsi í gegnum árin einkennist
af endalausu andvaraleysi og sinnu-
leysi um eðlilegt viðhald, svo ekki sé
minnst á loftræstinguna, sem er búin
að forkela margan gestinn, svo og
tötralegan lóðarfráganginn, sem
reynt var að lappa uppá með klaufa-
legum steinhrúgöldum á miðri Hverf-
isgötu og virðist eiga að hafa þann til-
gang að skapa eitthvert forrými við
húsið. Á sínum tíma mátti ekki gefa
húsinu ríkulegra andrými með torg-
myndun fyrir framan það í staðinn
fyrir bílageymslukassann marglita
sem er í hrópandi mótsögn við það. Og
hefði ekki verið nær að grafa báknið
niður (eins og gert var í ráðhúsinu) og
skapa áðurnefnda torgmyndun. Það
var enn ein atlagan þegar innra rými
og hlutföllum var kollvarpað af húsa-
meistara og pólitíkusum með dyggri
aðstoð innanbúðarfólks og gert að
hnoði sem á ekkert skylt við þá álfa-
og ævintýrahöll sem Guðjón heitinn
Samúelsson ætlaði því að vera. Enn
var aukið við tillitsleysið þegar tign-
arleg vesturhlið hússins var gerð að
bakhúshlið og spánskgræna dóms-
hlaðan sett fyrir framan það. Aldrei
heyrðist hósti eða stuna frá því fólki
sem átti helst að vera sverð þess og
skjöldur. ■
10
FRÉTTABLAÐIÐ
25. júlí 2001 IVtlÐVIKUPAGUR
-t
Milliliðalaust lýðræði dó ifæðingu
Kosning um framtíðarnýtingu
Vatnsmýrarinnar 17. mars sl.
snérist um einfalda spurningu. Á
að vera flugvöllur eða miðborg-
arbyggð á þessu svæði eftir
2016? í forystugrein Morgun-
blaðsins 19. mars er útkomunni
lýst á skýran hátt: „Úrslit þessar-
ar kosningar voru ekki afger-
andi, en engu að síður fékkst nið-
urstaða. Þegar gengið hefur ver-
ið til lýðræðislegra kosninga er
aðeins spurt hvernig atkvæði
voru greidd, ekki hversu stór
meirihlutinn var. Grundvallarat-
riðið er að leikreglurnar séu virt-
ar. Um leið verður að líta á kosn-
inguna sem skref í átt til milli-
liðalauss lýðræðis þar sem borg-
urunum verður í auknum mæli
gefinn kostur á því að hafa bein
áhrif á umhverfi sitt og framtíð."
Niðurstaðan batt ekki hendur
borgarstjórnar. Henni var því
frjálst að hunsa hana. Það er á
hinn bóginn gróf mistúlkun sem
fram hefur komið í ummælum
borgarstjóra, og endurspeglast í
tillögum að aðal- og svæðisskipu-
lagi, að núverandi hugmyndir um
nýtingu Vatnsmýrar taki mið af
niðurstöðu kosningarinnar. Þær
eru augljóslega orðnar til á þann
veg að semja þurfti við Fram-
sóknarflokkinn innan Reykjavík-
urlistans en hann hafði fyrir
kosninguna lýst þeirri skoðun
sinni að flugvöllur ætti áfram að
vera í Vatnsmýri, aðþrengdur að
nýrri byggð. Nær hefði verið að
________MáLmanna..
Einar Karl Haraldsson
ræðir afdrif tilraunar til beins
lýðræðis í Reykjavík
viðurkenna þá pólitísku stað-
reynd. Ljóst er að völlurinn verð-
ur fyrst festur í sessi, m.a. með
byggingu flugstöðvar og um-
ferðamiðstöðvar á næstu árum,
en ekki skertur verulega af
blönduðum baklandshverfum
fyrr en eftir 2016, og ákvörðun
um framtíð hans ekki tekin fyrr
en eftir 2024, samkvæmt tillögu
að aðalskipulagi. Það má vera að
borgarstjórnendur voni að völl-
urinn verði sjálfdauður á næstu
árum. Hitt er verra að það sem
þegar er dáið er hið milliliða-
lausa lýðræði sem bryddað var
uppá með kosningunni. Enginn
mun um langa framtíð taka þátt í
kosningu sem vitað er sam-
kvæmt reynslu að ekki er tekið
mark á. Tilraunin um milliða-
laust lýðræði varð því ekki upp-
haf heldur endir. ■
ÁSLAUG HAUKSDÓTTIR LJÓSMÓÐIR
Áslaug segir nokkur hundruð barna hafa fæðst í vatni hérlendis en hún viti ekki til þess
að nokkurt þeirra hafi þurft að fara á vökudeild.
Erum ekki að
leika okkur
segir Aslaug Hauksdóttir ljósmóðir um heima- og
vatnsfæðingar. Hún segir þær ljósmæður sem að
þeim koma, standa fagmannlega að verki og séu
fullkomlega meðvitaðar um sína ábyrgð.
heilbrigðismál „Vatnsfæðingar geta
ekki talist tískufyrirbrigði því þró-
unin hefur verið svo lengi í gangi í
<;} heiminum, til dæm-
K , is eru 35 ár síðan
„Þegarkonum þær hófust f Krakk.
'Iðurvel' landi og síðan hafa
vatnmu og eru þær breiðst um aUa
arnarað Evrópu og tn
hlusta a lik- Bandaríkjanna,“
ama sinn, þá segir Áslaug Hauks-
er ekkert sem dóttir ljósmóðir.
getur stjórnað Hún segir að form-
þeim, þær ]ega hafi notkun á
stjórna sinni vatni í verkjastill-
fæðingu sjálf- andi tilgangi byrjað
ar" á Selfossi 1996 og
—♦— fæðingar í vatni
hafist þar 1998. „Ég heillaðist gjör-
samlega áf þessum fæðingum í Dan-
mörku, ég hef rúmlega 30 ára
reynslu í ljósmóðurstörfum og tala
um minn feril í þessu, sem fyrir og
eftir bað“. Hún telur það mikilvægt í
þessari umræðu að nýjungar berist
seint til íslands, þá sé yfirleitt búið
að rannsaka þær auk þess sem
reynsla er komin á fyrirbærið og
helstu vankantar verið sniðnir af; ís-
lendingar fleyti því rjómann í
ákveðnum skilningi. „Það fæðir eng-
in kona í vatni nema allt sé eðlilegt,
konur eru skapaðar til að eiga börn,
þetta er ekki sjúklegt ástand. Hver
kona hefur verið skoðuð 10-12 sinn-
um á meðgöngu og mæðravernd hér
er mjög góð. Áður fyrr þegar konur
fæddu heima var ekki vitað hvaða
konur voru í áhættuhópi og þess
vegna gekk fæðing ekki alltaf vel, en
nú er þetta breytt." Tveir nýir
vatnspottar eru nú á kvennadeild
Landspítalans og er tilgangur þeirra
að lina þjáningar, ekki er enn heimilt
að fæða í vatninu. „Forræðishyggjan
er í hámarki því konum verður gert
að fara upp úr eða tappinn tekinn úr
baðinu, hvort sem þær vilja það eða
ekki. Marsten Wagner sem var yfir-
maður fjölskyldudeildar alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) og er
mikill fylgismaður heima- og vatns-
fæðinga, kom með þá kenningu að
ástæður þess að vatnsfæðingar hafi
ekki hljómgrunn á spítölunum, geti
átt rætur í því að starfsfólkið óttist
að missa stjórn á ferlinu yfir til
kvennanna sjálfra. En þegar konum
líður vel í vatninu og eru farnar að
hlusta á líkama sinn, þá er ekkert
sem getur stjórnað þeim, þær stjór-
na sinni fæðingu sjálfar. Eg held að
þetta sé einmitt tilfellið," sagði Ás-
laug. ■
mæms
* * -
MATTHÍAS HALLDÓRSSON AÐSTOÐARLANDLÆKNIR
Hann segir dánartíðni við fæðingar vera mjög lága hér á landi, gagnstætt þvi sem gerist
t.d. i Hollandi.
Aherslan ætti
að vera á öryggi
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir telur
mikilvægt að konur fæði þar sem auðveldast er að
grípa inn í fæðingarferlið, fari eitthvað úrskeiðis.
HEILBRIGÐISMÁL „Fyrir utan síðasta
daginn í lífinu þá er sá fyrsti sá
hættulegasti. Þessvegna er mjög mik-
ilvægt að vel sé staðið að málum. Ég
skil vel þá stefnu að
konum líði sem best
„Mín persónu- við fæðingu en mín
lega afstaða persónulega afstaða
er sú að kon- er sú að konan ætti
an ætti að að fæða þar sem ör-
fæða þar sem yggið er mest og
öryggið er auðveldast að grípa
mest og auð- inn í ef eitthvað fer
veldast að úrskeiðis. Hinsveg-
grípa inn í ef ar væri æskilegt að
eitthvað fer gera umhverfið þar
úrskeiðis." sem hlýlegast og
heimilislegast",
sagði Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir um rétt-
mæti heima og vatnsfæðinga. Hann
sagðist því að mestu leyti vera sam-
mála því sjónarmiði sem fram hefur
komið hjá Atla Dagbjartssyni yfir-
lækni á barnadeild Landspítalans, í
fréttum Ríkissjónvarpsins. Matthías
sagði engar skýrar línur vera í hinni
opinberu afstöðu til slíkra fæðinga,
það væri staðreynd að þær væru
stundaðar og áherslan yrði að vera á
hófsemi og skynsemi. Alls ekki ætti
að heimila slíkar fæðingar nema allt
hefði gengið eins og best væri á kosið
í meðgöngu og mæðraeftirliti. Þrátt
fyrir að allt hefði gengið vel fram að
fæðingu væri ekki þarmeð sagt að
fæðingin væri áhættulaust tímabil,
langt því frá. Matthías sagði ljós-
mæður og lækna skiptast í grófum
dráttum í tvo hópa, þar sem hinar
fyrrnefndu, sérstaklega þær yngri,
væru hliðhollari heima, og vatnsfæð-
ingum en læknarnir. Sagði hann
ástæðu þess hugsanlega vera þá að
ljósmæður upplifðu fremur það sem
gengi vel en barnalæknar á vöku-
deildum sjá meira af afleiðingum
þess sem fer úrskeiðis. „Þó heima-
fæðingar geti í einhverjum tilfellum
verið af hinu góða verður að vai'ast að
þessar fæðingar verði að tískufyrir-
bæri eða tíðaranda, þannig að konur
fari kannski að fæða heima, ef til vill
gegn þeirra raunverulega vilja,
vegna þess að þær upplifa þrýsting
frá umhverfinu". Matthías sagði enn-
fremur að heimafæðingar væru al-
gengar í Hollandi og dánartíðni við
fæðingar þar, hefði verið hærri en
víða annars staðar, þótt heilbrigðis-
þjónusta Hollendinga sé með því
besta sem gerist. Taldi hann ekki
ósennilegt að tengsl gætu verið þarna
á milli. Þetta væri þó aðeins ein hlið
málsins því þarna eru tölur um fötlun
eftir fæðingu ekki innifaldar. ■
,...bla bla bla
HVERS VEGIUA
BORGA MEIRA?