Fréttablaðið - 05.11.2001, Síða 1
5. nóvember til 11. nóvember 2001
Vikulegt sérblað um heimíli, hús og fasteignamarkaðínn
Vid sölu á fasteign:
Borgar sig ekki
að verja stórfé í
innréttingar
Við sölu á fasteign, hafa margir velt
því fyrir sér hvort hærra verð fáist
fyrir húsnæðið, sé það endurnýjað að
einhverju leiti fyrir sölu. Að sögn
Sverris Sædal Kristjánssonar, hjá
Eignamiðlun, fá seljendur yfirleitt
ekki hærra verð fyrir eignina þótt
skipt sé um eldhúsinnréttingu. „Slíkt
svarar ekki kostnaði nema í þeim til-
fellum þar sem innréttingin er ónot-
hæf. Ef ástand innréttingarinnar er
eðlilegt, hún hrein og snyrtileg, þá
borgar sig ekki fyrir þann sem selur
að velja eldhúsinnréttingu fyrir næsta
ELDHÚSINNRÉTTING
Fasteignasali segir ekki borga sig
að kosta nýjar innréttingar fyrir
sölu íbúða. Seljendur fá aldrei
verð þeirra (söluverði.
mann,“ segir Sverrir. Þótt um sé að ræða vandað og dýrt gólfefni,
þá er fólk í fæstum tilfellum að fá andvirði þess við sölu á eigninni.
„í sumum tilfellum gæti verið um að ræða fljótari sölu,“ segir
Sverrir. Reyna verði að hafa eignirnar sígildar og þannig, að hver
sem er geti flutt inn. „Fólk á að leggja meira upp úr einföldum og
góðum gólfefnum, en kaupa hugsanlega dýrari mottur og annað sem
hægt er að taka með sér,“ segir Sverrir. ■
íslenskur ikon
Ikonar hafa verið mjög vinsælir hin síðari ár. Flestir hafa verið
fluttir inn og mjög margir eru ekki ekta. Þessi ikon er hins vegar
íslenskur og sannarlega er hann frumgerð. Hann er málaður af
Helgu Hreinsdóttur frá Reyðarfirði og fæst í Garðablóm við
Garðatorg. ■
í REYKHÚSINU
Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur er
ánægður með vinnuaðstöðuna sína en
hefur áhyggjur af að hún muni fyllast af
dóti áður en yfir lýkur.
Vinnuhornið
I til taks á heimilinu
Olafur Haukur Símonarson rithöfundur hefur unnið heima hjá sér í
tvo áratugi. Vinnuaðstaða hans er í gömlu reykhúsi úti í garði.
I Alltaf einhver
Með tilkomu tölvutenginga má ætla
að vinnu“staðir“ skipi stöðugt minni
sess í lífi fólks. Einnig má gera ráð
fyrir að hugtakið „skóli“ muni í
minna mæli tengjast í hugum okkar
stórum byggingum. Vinna heima við
hefur alltaf tíðkast hjá ákveðnum
hópi manna, líklega einkum lista-
mönnum.
Ólafur Haukur Símonarson seg-
ist hafa unnið meira og minna innan
veggja heimilisins í tvo áratugi. „Ég
hef flutt nokkrum sinnum og hef þá
þurft að koma mér fyrir upp á nýtt í
einhverju horni eða herbergi," segir
Ólafur Haukur og er á þeirri skoðun
að vinnuaðstaða hans hafi heldur
batnað með árunum.
Ólafi Hauki finnst mikilvægt
þegar fólk vinnur heima við að það
geti lokað vinnuaðstöðuna af þannig
að hægt sé að útiloka það sem fram
fer á heimilinu. „Ég er með smá ann-
exíu inn í garðinn hjá mér þannig að
ég get skilið mig frá heimilislífinu
ef ég vil.“ Vinnuaðstaða Ólafs er i
gömlu reykhúsi í garðinum en inn-
angengt er úr húsinu í það. „Það
þarf að skilja sundur heimilislífió og
vinnuaðstöðuna,11 segir Ólafur
Haukur en viðurkennir að það hafi
kannski ekki tekist alveg nógu vel
hjá sér.
Vinnuaðstaða Ólafs Hauks er
mjög rúmgóð og hann segist einna
ánægðastur með það. „Þó er hún
smám saman að fyllast af dóti og ég
veit að, að lokum verða þetta eins og
göng í gegn,“ segir Ólafur Haukur
og hlær. „Það er nú gangur lífsins að
það sankast að manni meira og
meira af einhverju sem maður tímir
ekki að láta frá sér aftur eða hefur
ekki hugrekki til að henda.“
Ólafur Haukur segist ekki vera
sérstakur talsmaður þess að vinna
inni á heimilinu. Honum finnst í
raun eðlilegra að vinna annars stað-
ar en heima og geta þá skilið vinn-
una eftir þegar farið er heim. „Þetta
helgast hjá mér sum part af heimil-
isaðstæðum því ég hef verið með
langveikt barn á heimilinu sem hef-
ur nánast kallað á gjörgæslu." ■
Er svefn og heilsa á óskalistanum?
Jóiayjöí hvcrri hcilsuclýnu
REYKJ AVIK
AKUREYRI
Svefn & heilsa
vd um