Fréttablaðið - 05.11.2001, Blaðsíða 2
5. til 11. nóvember 2001
?______________________________Heimilisblaðið
Straujárnið þykir mér
allra tækja leiðinlegast
„Ég býst við að mitt uppáhalds
heimilistæki sé eldavélin á heim-
ilinu. Við hjónin völdum hana úr
mörgum fallegum gripum fyrir
níu árum og hún hefur sannarlega
staðið fyrir sínu,“ segir Guð-
mundur Ólafsson leikari um það
tæki heimilisins sem er í mestum
metum hjá honum. Hann segist
nota hana talsvert og það hafi
æxlast þannig á sínum tíma að
eldamennskan kemur ekki í síður
í hans hlut en eiginkonunnar Olgu
Guðrúnar Árnadóttur. „Ekki það
að Olga læðist ekki í eldhúsið því
það gerir hún ekki ósjaldan.
Verkaskiptingin hjá okkur hefur
einfaldlega orðið á þann veg að ég
þarf oftar að nota eldavélina en
hún. Ef þú spyrðir mig hins vegar
hvað væri það heimilistæki sem
mér þætti hvimleitt væri ég ekki í
vafa um það. Straujárnið þykir
mér allra tækja leiðinlegast en
Olga forðar mér frá að þurfa
nokkru sinni að handleika það því
hún sér um að strauja það sem til
fellur."
Guðmundur segir eldamepnsk-
una alls ekki leiðinlega. „Ég er
sjaldnast lengi að sulla einhverju
saman í kvöldmatinn en jóla-
kalkúnninn sem ég sé um að elda
fyrir hver jól þarfnast á hinn bóg-
inn meiri yfirlegu. Ég undirbý
Eldavélin er mér
hins vegar að skapi.
mig sérstaklega fyrir þá elda-
mennsku með því að afstressa
mig og vera í góðu formi þegar
kemur að þessu mikilvæga verki.
Kalkúnninn elda ég alltaf með
sömu fyllingu og henni má ekki
breyta því þá verða allir daprir á
jólunum."
Guðmundur segist ekki vera
neinn snillingur í eldhúsinu en
hafi þó gaman af að láta gamminn
geisa annað slagið. Yfirleitt held
ég að heimilisfólkið sé nokkuð
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON LEIKARI
Við eldavélina sem þau Olga völdu saman
fyrir nokkrum árum.
ánægt með matinn þegar ég elda.
Enginn hefur í það minnsta lagst í
mótmælasvelti ennþá.“ ■
Notalegt að
hafa kertaljós
Fyrir kertaglaða er það eins og
fyrir barn í sælgætisverslun að
koma í Tiger á Laugaveginum.
Þar er ótrúlegt úrval kerta af öll-
um stærðum og gerðum. Kertin á
myndinni eru þaðan en tíkin Birta
sem sefur svona vært í keraljós-
inu er hins vegar dekraður heimil-
ishundur í Hafnarfirði.
Fallegur
baðfontur
Hún hefur talið púltið í
jgóðum höndum hjá okkur
SIGRÚN BENEDIKTSDÓTTIR
Skrifpúltið á sér langa sögu
og var smíðað í Kaupmanna-
höfn á nítjándu öld.
Fonturinn með
skálinni og könn-
unni er úr kopar.
Eigandinn hafði
mikið fyrir því að
koma hlutunum
heim en stóðst
ekki mátið eftir að
hafa fundið þá í
litlu þorpi í
Þýskalandi. Eins
og sjá má hefur það verið fyrir-
hafnarinnar virði. ■
Notum það undir ýmislegt persónulegt
Sigrún Benediktsdóttir lögfræð-
ingur og eiginmaður hennar
Ingólfur Friðjónsson fengu fyrir
nokkrum árum að gjöf gamalt
skatthol sem Sigrúnu þykir afar
vænt um. „Ólöf Pálsdóttir mynd-
höggvari og Sigurður Bjarnason
fyrrum sendiherra eru miklir
vinir tengdaforeldra minna. Ein-
hverra hluta vegna hefur Ólöf
talið að skattholið myndi vera í
góðum höndum hjá mér og manni
mínum og því gefið okkur það.
Mér þykir sérstaklega vænt um
það fyrir þær sakir að það er
gamalt og hefur gengið manna á
milli; oftast sem gjöf en ekki
gengið kaupum og sölum. Ekki
síður er skattholið fallegt og það
fylgir því ákveðinn „karakter.
Einkum hef ég ánægju af að eiga
það í þessari „mammonsdýrkun"
sem ríkir hér en ný húsgögn búa
ekki yfir sögu og skortir því
þennan „karakter."
Sigrún segir að innan á hurð-
inni séu rituð nöfn eiganda þess
frá upphafi auk smiðsins sem
smíðaði það á sínum tíma. „í
skattholinu geymum við ýmislegt
persónulegt sem okkur er annt
um og viljum ekki að glatist. Sig-
rún býst ekki við að þau Ingólfur
láti gera það upp í bráð þó á því
sjáist. „Þetta skrifpúlt er svo fal-
legt eins og það er og á því má sjá
að það hefur verið notað af eig-
endum sínum. Við viljum því eiga
það nákvæmlega eins og það er
og leyfa því að njóta sín þannig.
TILBOÐSDAGAR
HANDKLÆÐAOFNAR HANDLAUGAR HITASTILLITÆKI
HVÍTIR 0G KRÓMAÐIR IFÖ-IDO-SPHINX HUGER - MORA - GROHE
Handl.tæki frá kr. 6.058
VATNSV9RKÍNN Bhf.
Ármúla 21 - sími 533 2020
Hæð 76.5 -120 - 181
Breidd 50 og 60 cm
Tilboð frá kr. 10.896
EINNARHANDATÆKI
NEVE - FELIU-
M0RA- GR0HE
WC
IFÖ-ID0
Baðkör frá kr. 10.973
Sturtubotnar frá kr. 4.385,-
Stálvastkar frá kr. 4.777,-
WC IFÖ án setu frá
kr. 19.752,-
WC setur frá kr.
1.527 til 7.563,-
WC IDO Gólfstútur
með setu Kr. 24.929
Sturtutæki frá kr. 9.206
Baðtæki frá kr. 10.510
Á vegg tilboð frá kr 4.446,-
í borði tilboð frá kr: 8.359,-
Einnig tilboó
á öórum
klefum og
hreinlætis-
tækjum.
MARGIR KJARNAR
Miklar breytingar hafa orðið á vinsældum bæjarhluta, því í stað eins, er nú um að ræða
marga kjarna, sem allir eru jafn eftirsóttir.
Hverfaskipting:
Fleiri staðsetningar
njóta vinsælda
Ekki er um að ræða mikinn verð-
mun á fasteignum, sem eingöngu
má rekja til vinsælda eins hverf-
is á höfuðborgarsvæðinu, um-
fram aðrar staðsetningar. „Mikl-
ar breytingar hafa orðið á þessu,
að því leiti, að áður fyrr var
ákveðið miðjusvæði, sem mark-
aðist af vesturbæ, miðbæ, Laug-
arásnum og út á Seltjarnarnes.
Þessi bæjarhluti var mun vin-
sælli og dýrari en aðrir hlutar
höfuðborgarsvæðisins," segir
Sverrir Sædal Kristjánsson hjá
Fasteignamiðlun. „Nú er um að
ræða marga nýja kjarna, sem all-
ir eru jafneftirsóttir. Sem dæmi
eru ákveðnar staðsetningar í
Hólahverfi, Grafarvogi og Kópa-
vogi, mjög vinsælar, þannig að
ekki er lengur um að ræða eina
ákveðna staðsetningu." Að sögn
Sverris má segja, að byggðin sé
að breytast að því leiti, að um
fleiri miðsvæði, og af þeim sök-
um, fleiri vinsæl hverfi sé að
ræða en áður. Erfitt virðist að sjá
fyrir um hvaða hverfi á höfuð-
borgarsvæðinu, séu líkleg til vin-
sælda, og má nefna Grafarholtið í
því sambandi, en þær spár virð-
ast ekki ætla að ganga eftir. ■