Fréttablaðið - 05.11.2001, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 05.11.2001, Qupperneq 10
10 Heimilisblaðið 5. til 11. nóvember 2001 Líður ðlls staðar vel innan veggja heimilisins Bára Sigurjónsdóttir fyrrver- andi kaupmaður keypti sér stóra og fallega íbúð í miðbæ Hafnarfjarðar þegar hún lét af störfum. Þaðan hefur hún útsýni I svefnherberginu get ég slakað á og horft á sjónvarp yfir mannlífið, höfnina og síðan og ekki síst til hamarsins og bernskuheimila hennar tveggja. „Ég er svo ánægð með heimili mitt að mér líður vel hvar sem er innan veggja þess. En ef ég ætti að velja einhvern einn stað þar sem ég slaka vel á þá er það ekki spurning að í svefnherberginu líð- ur mér best“ Hún segist hafa tek- ið tvö herbergi undir svefnher- bergið þegar hún breytti eftir að hafa fest kaup á húsnæðinu. „Ég vildi geta haft í herberginu sófa þar sem ég gæti slakað á og horft á sjónvarpið og ég halla mér líka oft í hann til að lesa eða líta í blöð- in. Eftir hádegi þykir mér ósköp gott að leggja mig smá stund og úr svefnherberginu get ég líka gengið út á svalirnar sem eru glerjaðar og því er þar aldei ann- að en logn.“ Bára segist alltaf hafa verið ákveðin í flytjast aftur til Hafnarfjarðar þegar hún væri hætt störfum. „Hér hef ég líka allt við höndina; þarf ekki annað en fara niður í lyftunni og þá er ég komin þangað sem ég fæ alla þjónustu. Ég kann alveg sérstak- lega vel við mig hérna og hef ekki haft meira að gera um ævina en einmitt núna. Loksins er nægur tími til að sinna fjölskyldunni og vinunum og ráða sínum tíma sjálf- ur.“ ■ Amerískar lúxusdýnur King - Queen size 20-30% afsl. Alþjóðasamtök chiropractora mæla með King Koil- heilsudýnunum Skiþholti 35 • Sími: 588-1955 Getum bætt við okkur verkefnum í vetur, öll almenn málningarvinna innanhúss, nýbyggingar og eldra húsnæði, tilboð eða tímavinna UPPLÝSINCAR í SÍMA 8923618 OG 8629424 Föndurfólk Hjá okkur fáið þið Fönudurmálinguna frá decoArt Notaðu einfaldlega það besta Við erum alltaf ódýrust Koffortið Strandgata 21, Hafnarfirði, sími 555 0220 Ef ég er ekki að horfa á sjónvarpið þá sit ég við tölvuna mína HEIMIR PÉTURSSON VIÐ TÖLVUNA SÍNA sem tekur öllu öðru fram í hans eigu. Stefni að því að eignast brauðrist Tölvan er þó það tæki sem er í mestu uppáhaldi Heimir Már Pétursson stjórn- málfræðingur og upplýsinga- fulltrúi Flugmálastjórnar hefur miklar mætur á tölvunni sinni sem hann segist taka fram yfir öll önnur tæki á heimilinu, nema ef vera skyldi sjónvarpið. Ég er mjög heimakær og ef ég er ekki að horfa á sjónvarpið þá sit ég við tölvuna mína. Ég keypti hana fyr- ir tveimur árum en fram að því var ég tengdur við umheiminn í vinnunni. Mest nota ég hana við skriftir en ég hef gaman af að semja ljóð og sögur." Heimir seg- ir að út hafa komið eftir sig þrjár ljóðaþækur og eitt ljóðablað en ekki hafi hann ennþá ráðist í skáldsögu. „Það finnst þó ýmis- legt í tölvunni sem ég hef unnið að í gegnum tíðina og aldrei að vita hvað verður." Þegar Heimir situr ekki við tölvuna freistar sjónvarpið. „Ég er mikill sjónvarpsfíkill og hef mest gaman af sakamálaþáttum og sögulegum krimmum frá tíma- bili síðari heimstyrjaldar en það var mitt áhugasvið i stjórnmál- fræðinni. Þess á milli horfi ég á bíómyndir og fer minnst annan hvern dag á videóleiguna eftir mynd.“ Hann segist helst ekki láta fréttir fram frá sér fara enda gamall í hettunni og vann sjálfur við að miðla landsmönnum frétt- um á sínum tíma. Ég varla búinn að opna augun þegar ég kveiki á sjónvarpinu á morgnana og þess á milli hlusta ég á Rás 1 í útvarp- inu. Eldhúsið nota ég minnst af öllu og þangað kem ég ekki inn nema eiga brýnt erindi. Annars stefni ég að því að eignast brauðrist; ég held að þægilegt sé að rista brauð á morgnana. En ég hef ekki enn látið verða af því að fara í verslun til þess. Mér leiðist nefnilega fátt meira en verslanir og vísast hef ég sparað vel í gegn- um tíðina með að nenna ekki í búð.“ ■ Skálar eru til ýmissa hluta nothæfar Þessar liltu kellur eða dömur virðast vera glaðar í bragði í skálinni. Skemmtilegt er að nota sætar skálar undir einhverja aðra hluti en mat og það kemur ekki síður vel út að raða saman dúkk- um í skál eins og hverju öðru sem mönnum gæti hugnast.. ■ ÞEIM LÍÐUR ÓSKÖP VEL ÞARNA f SKÁLINNI ÞESSUM DÖMUM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.