Fréttablaðið - 05.11.2001, Page 12

Fréttablaðið - 05.11.2001, Page 12
12 Heimilisblaðið 5, til 11. nóvember 2001 Afturhvarf til fyrri tíma Þeir sem muna aftur til sjöunda og áttunda áratugarins sjá fyrir sér sófasettin á þeim árum. Þennan sófa má hins vegar fá í Ikea þessa dagana. Það má segja að á nýrri öld gæti nokkurs afturhvarfs til fyrri tíma. Húsgögn eru stílhrein og einföld og unga fólkið keppist við að eignast húsgögn einfaldleik- ans enda „naumhyggjan" sem gildir. ■ AFTUR TIL FORTÍÐAR Creinilega gætir afturhvarfs til fyrri tíma á nýrri öld Betra er að selja snyrtilegar eignir „Eignin verður að virka vel á kaup- andann, þegar fyrst er komið að henni, það er fyrsta snerting hans við húsið,“ segir Sverrir Sædal Kristjánsson, fasteignasali. Það sem oft borgar sig að gera áður en að fasteign er seld, er því að halda húsunum snyrtilegum og hafa for- stétt, útihurð og forstofu í lagi. Sprungin stétt, flögnuð útihurð og skítugt forstofuteppi hefur ekki góð áhrif á kaupandann. „Það sem, þó, hefur mest að segja, þegar ver- ið er að sýna hús til sölu, er and- rúmsloftið. Eignin þarf að vera hrein og henni vel við haldið," seg- ir Sverrir. Sérstaklega þurfa þeir sem eru að byggja að hafa þetta í huga, því það gerist ansi oft við þær aðstæður, að gamla eignin er vanrækt, sem sé slæmt þegar hún er seld. „Þeir sem sýna hana verða einnig að sýna sölumennsku. Taka verður vel á móti þeim, sem koma að skoða og, án þess að vera með of mikla ýtni, vekja athygli á kostum og bjóða vöruna rétt fram,“ segir Sverrir. ■ tr. Skemmtilegir kertastjakar Þessir litlu kertastjakar eru fáan- legir í Ikea. Eigandi þeirra gyllti hluta þeirra til að sjá hvernig það kæmi út en mjög auðvelt er að úða eða mála leirinn. Best er að kaupa efnið í föndurbúð og fá rá- leggingar um hvað henti hverju sinni. ■ Uppþvottavélin vinnur á meðan ég les góða bók „Síst af öllu vildi ég vera án upp- þvottavélarinnar á heimilinu. Hún hefur ekki aðeins þann kost að vinna það verk sem ég annars þyrfti að eyða tíma í og á meðan get ég lesið góða bók,“ segir Þor- steinn Hilmarsson upplýsingafull- trúi Landsvirkjunnar. Hann segir að eftir að þau hjón hafi komið heim úr námi hafi þeim hjónum áskotnast auka peningar í ein- hverri uppgripsvinnu og ákveðið að verja þeim í uppþvottavél. „Það kom nú líklega af því að í íbúðinni sem við bjuggum í var gert ráð fyrir vél og það fór í taugarnar á okkur að hafa autt gat þar sem hún átti að vera. Þeim peningum var vel varið og ég hef aldrei séð eftir þeim kaupum. „Mér finnst uppþvottvavélin vera einn sá mesti þarfagripur sem ég hef eignast og hefur þann kost að ég get gert eitthvað skemmtilegt á meðan hún vinnur." Hann segir þau hjón skiptast á að setja í vélina og sú regla hafi skapast að sá sem eldar get- ur sest niður eftir matinn og þarf ekki að ganga frá. „Það eru engin lög en líklega óskráðar reglur sem ég held að gildi víða á heimilum. Síðan er hægt að setjast niður í rólegheitum að drekka kaffið. Ég hef hins vegar heyrt marga tala um að upp- þvottavélin hafi komið í veg fyr- ir góða stund sem hjón áttu yfir uppvaskinu á meðan annað þvoði Þorsteinn Hilmarsson segist ekki geta án vélarinnar verið. og hitt þurrkaði. Ég kann betur við að eiga þá stund yfir kaffi- bollanum þegar allt er orðið fínt í eldhúsinu." ■ ÞORSTEINN VIÐ UPPÞVOTTAVÉLINA Hann og konan skiptast á að setja í vélina, en það þeirra sem eldar þarf ekki að ganga frá í eldhúsinu. Fasteignaþjónustan 552-6600 Lovísa Kristjánsdoútir, lögglltur fasteignasali Fastexgn.ai?;ónustaa Skúiagótu 30 101 Reykjavik Sisai 5526600 ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Birkigrund - Kóp Gott raðhús, kjallari og 2 hæðir ásamt innréttuðu rými í risi. 7 herb. 205,2 fm, auk 26,6 fm bílskúr. Suðurgarður, hellu- lögð verönd. Verð 23,0 millj. Vesturbær - LAUST Vandað 6 herb raðhús á 3 hæðum 230,7 fm auk 26,0 fm innb bílskúrs. Suðurgarður. Sólpallur. Verð 27,9 millj. Miðtún Gott sérbýli, hæð og kjallari 134 fm auk 25 fm bílskúrs. Á hæðinni eru saml. stofur, 2 herb, snyrting og eldhús. Ný gólfefni. í kjallara eru 2 herb, baðherb., þv.hús og geymslur. Verð 15,3 millj. Hraunbær Mjög rúmgóð 4 herb 128,7 fm íbúð á 3 hæð (efstu) í fjölbýli. Nýstandsett baðherb. Stórt eldhús. Þv.hús og búr. Tvennar svalir. Útsýni. Hús klætt utan að mestu. Verð 13,5 millj. Kleppsvegur - LAUS Snyrtileg 4ra herb kjallaraíbúð 102,2 fm. Góðar innréttingar. Flísalagt baðherb. Góð sameign. Verð 9,5 millj. Austurberg - LAUS Endaíbúð 4ra herb 102,9 fm á jarðhæð í litlu fjölbýli. Þarfn- ast standsetn. Verönd og lítill sér garður. Verð 10,5 millj. Súluhólar Björt og falleg 4 herb. 101,2 fm íbúð á 3 hæð (efstu) í litlu fjölbýli auk 21,9 fm bilskúrs. Fallegar innréttingar. Parkett og dúkur á gólfum. Nýstandsett flísalagt bað. Stórar vestur- svalir. Fallegt útsýni. Verð 11,9 millj. Austurberg Ágætlega skipulögð 4ra herb 90,3 fm íbúð á 4 hæð (efstu) í blokk. Rúmgóð stofa. Þv.hús og búr inn af eldhúsi. Parkett og flísar á gólfum. Góð sameign. Verð 10,5 millj. Blikahólar Vel skipulögð 3ja herb 89 fm íbúð á 4 hæð í lyftublokk. Parkett og flísar á gólfum, rúmgott eldhús. Norður svalir. Mikið útsýni. Verð 10,3 millj. Hátún Falleg, mikið endurnýjuð 88,3 fm íbúð á 8 hæð í lyftublokk. Suður svalir. Mikið útsýni. Verð 11,5 millj. Hólavallagata Rúmgóð, mikið endurnýjuð 3ja herb 88,2 fm kjallaraíbúð. Sér inngangur. Nýl. eldhús, nýtt bað. Sér sól- & grillpallur. Frábær staðsetning í grónu hverfi. Skipasund Mjög björt og snyrtileg mikið endurnýjuð 3ja herb lítið nið- urgrafin 81,0 fm kjallaraíbúð í tvíbýli. Sér hiti. Stór garður. Góð eign á góöum stað. Verð 9,9 millj. Fífusel Rúmgóð mikið endurnýjuð 3ja herb 87,2 fm íbúð á jarð- hæð. Ný gólfefni, parkett og flísar. Verð 10,2 millj. Langholtsvegur Góð 4ra herb 78,2 fm miðhæð í þríbýii. Gott baðherb. nýjar flísar. Ný raflögn. Hús nýlega viðgert að utan. 15 fm geymsluskúr á lóð. Verð 10,5 millj. Hverfisgata Góð 2ja herb 60 fm íbúð á 1 hæð í snyrtilegu bakhúsi. Sér inngangur og hiti. Parkett og flísar á gólfum. Nýl. eldhús. Verð 7,8 millj. Austurbrún Einstaklingsibúð, 47,6 fm í lyftublokk. Tvær lyftur. Snyrtileg sameign. Húsvörður. Skeggjagata Snyrtileg 2ja herb 46,4 fm íbúð í kjallara í þribýli. Langholtsvegur Ósamþykkt 40 fm kjallaraíbúð. Sameiginlegur inngangur. Stakt eldhús. Tvö samliggjandi herb. Nýl. flísar á gólfum. Verð 3,2 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI Álfabakki - Mjódd Leiga - Glæsileg skrifstofuhæð 286 fm. Fullkomnar töivu- lagnir. Álfabakki - Mjódd Leiga - Mjög gott lager/geymslurými 353,7 fm. Mikil loft- hæð. Góð aðkoma. Innkeyrsludyr. Laugavegur Leiga - Neðarlega við Laugaveg skrifstofuhæð 256 fm. Hægt að leigja í tvennu lagi, 88 fm og 168 fm. Skútuvogur Sala - Leiga. Mjög gott lager og skrifst.húsn. á tveimur hæðum alls 440 fm. Hægt að skipta upp. Innkeyrsludyr. Góð lofthæð. Skúlagata Sala - Leiga. Skrifstofuhæð á góðum stað 225 fm. Leiga að hluta kemur til greina. Hamraborg Sala - Góð skrifstofuhæð 268 fm. Hamraborg Sala - Gott verslunarpláss 168 fm. Einnig 17 fm verslunar- pláss á sama stað. Bakkabraut Sala - Atvinnuhúsnæði I góðu standi, sem skiptist í 3 ein- ingar samt um 2.450 fm. Vinnslusalur, skrifst. kæligeymslur. Mikil lofthæð. Háar innkeyrsludyr. Umhverfi og lóð til fyrir- myndar. Konan er fljót framúr þegar hún flnnur ilminn Sigurður Rúnar Jónsson hljóm- listarmaður er mikill kaffimaður og á þrjár kaffikönnur sem hann notar til skiptis. „Gamla þrýsti- kannan mín stendur alltaf fyrir sínu þrátt fyrir að vera komin til ára sinna og það sé brotinn af henni stúturinn. Tvær á ég þó aðr- ar sem ég nota við sérstök tilefni en það er ein sem alltaf fer með mér í Veiðivötn og er algjörlega ómissandi þar. Hún þarf gas til að vinna sitt verk og sopinn úr henni er kærkominn enda ítölsk gæða- framleiðsla." Sigurður segist nota þá þriðju á sunnudögum og við há- tíðleg tækifæri. Hún er ættuð frá Þýskalandi og er stungið í sam- band við rafmagn. Hún lagar bara tvo bolla í einu og er því prýðileg á sunnudögum þegar maður hefur tíma til að slaka vel á.“ Kaffið segist hann drekka svart og sykurlaust og gjarnan vilja hafa það sterkt eins og al- vöru kaffimanni sæmir. „Ég laga alltaf fyrstu könnuna á morgnana og dreg konuna þannig framúr. Hún er fljót þegar hún finnur ilm- inn. Þess á milli setur hún í könnu og er ekki minni kaffimanneskja en ég.“ Hann segir að gestir fái kaffi úr gömlu þrýstikönnunni því ómögulegt sé að standa í að laga tvo bolla í einu þegar mikið sé spjallað. ■ Áþrjár kaffikönnur sem hann notar til skiptis.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.