Fréttablaðið - 05.11.2001, Blaðsíða 14
14
5. til 11. nóvember 2001
EINAR OC ÓLÖF MEÐ
BÖRNUM SfNUM.
„Þennan skáp keyptum við einhvern tíma
þegar við þurftum meira geymslupláss
fyrir það sem safnast hafði að okkur með
tímanum eins og gengur. Það var ein-
göngu notagildið sem réði þeim kaupum
en ekki eitthvað annað. Það samræmist
ekki okkar lífsskoðun að leggja of mikla
áherslu á að eignast alla skapaða hluti og
teljum að hægt sé að fylgja meðalhraða í
þessu kapphlaupi."
Rauði þráðurkm
er samvera fjölskyldunnar
Við Löngufit í Garðabæ búa
hjónin Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur og Ólöf Sigurðar-
dóttir kennari ásamt þremur
börnum sínum. Á heimilinu býr
einnig Sigurður Ólafsson fyrrver-
andi bifreiðastjóri, faðir Ólafar.
Hann byggði húsið fyrir tæpum
fjörutíu árum og þar ólst Ólöf
upp. Eftir að hún kynntist Einari
héldu þau til náms í Noregi og
bjuggu þar í nokkur ár. Þegar
heim var komið vantaði þau hús-
næði með tvö börn sín og þar sem
Sigurður hafði misst konu sína bjó
hann einn í Löngufit. Það lá því
beinast við að þar fengi fjölskyld-
an húsaskjól í byrjun. Síðan eru
liðin tíu ár og enn búa þau í sátt og
samlyndi kynslóðirnar þjár.
„Fljótlega eftir að við komum
heim varð ljóst að þetta fyrir-
komulag gekk vel og við vorum öll
meira en sátt við það. Þegar þriðja
barnið fæddist var þörf á að stæk-
ka við sig og í stað þess að við
færum, byggðum við lítillega við
húsið,“ segir Einar og Ólöf bætir
við að hún finni verulega fyrir
breytingunni sem verði þegar
börnin eldist. „Þá þurfa þau meira
rými og nú er svo komið að við
lnnil
verðum að stækka við okkur. Ég
hef reyndar alltaf haldið því fram
að það sem börn þarfnist sé ekki að
hafa stórt umleikis heldur nægt
hjartarými en ég held að ég hafi
skipt um skoðun. Þau þurfa líka að
hafa nægt svigrúm heima hjá sér ef
öllum á að líða vel,“ segir hún.
Þau sóttu því um lóð í nýja Ása-
hverfinu í Garðabæ og hófu að
byggja nýtt hús núna í sumar.
Húsið ætla þau að byggja með
þarfir stórfjölskyldunnar í huga.
Þau eru sammála um að kostir
þess að vera í sambýli með Sigurði
séu mun fleiri en hitt og þeim öll-
um í hag. „Börnin koma sjaldnast
heim að tómum kofanum og það
hefur gefið þeim aðra sýn á lífið
og þroskað þau á annan hátt en
ella. Faðir minn hefur jafnframt
kunnað því vel að hafa félagsskap
barnabarna sinna,“ segir Ólöf.
Heimili þeirra Ólafar og Ein-
ars er látlaust. Þau eru ekki að
velta mikið fyrir sé veraldlegum
gæðum en setja börnin og þarfir
fjölskyldunnar í forgang. „Það
samræmist ekki okkar lífsskoðun
að leggja of mikla áherslu á að
eignast alla skapaða hluti og telj-
um að hægt sé að fylgja meðal-
hraða í þessu kapphlaupi. Ekki
síður er mikilvægt að gera sér
grein fyrir að við sjálf getum
stýrt ferðinni. Rauði þráðurinn er
samvera fjölskyldunnar og við
forðumst að vera alltaf að skipu-
leggja tímann um of,“ segir Einar
og Olöf tekur undir þau orð. Hún
segir jafnframt að tíminn með
börnunum gefi þeim hjónum ekki
síður ánægju og þau njóti þess að
gera hlutina saman. „Skemmtileg-
ast af öllu finnst okkur að fara í
útilegur og í sumarbústaðinn. Það
er þroskandi fyrir krakkana og
þau læra að hafa ofan af fyrir sér
og láta ekki mata sig. Við höfum
líka lagt áherslu á að fylgja þeim á
íþróttaæfingar og styðja við bakið
á þeim. Stundum borðum við
snemma og förum í sund og erum
ekki endilega að velta fyrir okkur
að setjast nákvæmlega klukkan
sjö að borðum.“ Þau eru sammála
um að það sé ekki fórn að eyða
tíma með börnunum, þau fái ekki
síður ánægju og gleði út úr þeirri
samveru.
Einar hefur verið í fríi á Veður-
stofunni til að gegna starfi aðstoð-
armanns umhverfisráðherra.
Hann er auk þess í bæjarstjórn
Garðarbæjar og hefur í nægu að
snúast. Nú bætist vinnan við hús-
bygginguna við. “Já, við reynum
að vinna saman að þessu. Tengda-
faðir minn er fullur áhuga og svo
er um að gera að fá krakkana í lið
með sér og hafa gaman af þessu í
stað þess að vera að velta því fyrir
sér hve mikil vinna þetta sé.“ seg-
Ekki fórn að
eyða tímanum
með börnunum
ir hann og Ólöf bætir við að krakk-
arnir séu ekki síður spenntir.
í ár er yngsta barn þeirra
hjóna að byrja í skóla og fjöl-
skyldan fer öll út úr húsi fyrir
átta á morgnana. Einar segist hafa
áttað sig á því þessa fyrstu
morgna síðan skólinn hófst hvað
gaman væri að sitja saman við
morgunverðarborðið áður en hver
héldi til sinna verka. „Ég vann
alltaf á vöktum hjá Veðurstofunni
og strákarnir tveir voru að fara á
misjöfnum tíma í skólann. En það
kann að vera að allir séu svona
ferskir rétt í byrjun skólaárs og
síðan breytist þetta. En engu að
síður er skemmtilegt að reyna að
eiga góða stund saman yfir morg-
unverðarborðinu áður en hver
heldur til sinna starfa." ■
í eldhúsið og
þvottahúsið
Kæli- og frystiskápar,
frystikistur
Allt frá brauðristum til
blásturofna
TURBO
Háfar og eldhúsviftur
NILFISK
Heimilisryksugur -
Hreint loft fyrir alla
«► # «►
Fyrsta flokks vörur
Verið velkomin
Næg bílastæði
^onix
RAFTÆKI
HÁTÚNI 6A S: 552 4420
HLUTI FJOLSKYLDUNNAR VIÐ ELDHÚSBORÐIÐ HEIMA í LONGUFIT.
,Ég var lengi þeirrar skoðunar að ef hjartarýmið væri nægt þá skipti herbergjafjöldinn ekki máli. Ég hef skipt um skoðun því reynslan hefur
sýnt að eftir því sem börnin stækka þurfa þau meira rými. Við hlökkum því sannarlega til að flytja í nýtt hús."