Fréttablaðið - 04.12.2001, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
4. desember 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Þeir sem liggja á Netinu:
Fórna frekar
sjónvarpinu
new york. ap Þeir sem nota Inter-
netið mikið vanrækja flestir ekki
fjölskyldu og vini, heldur nota þeir
frekar til þess þann tíma sem ann-
ars fór í sjónvarpsgláp. Þetta kom
fram í könnun sem Kaliforníuhá-
skóli birti í síðustu viku.
Þar kom fram að notendur
Netsins horfa að jafnaði 4,5
klukkustundum minna á sjónvarp
heldur en þeir sem ekki nota Netið.
Netnotendur reyndust að vísu
verja heldur minna af tíma sínum
með fjölskyldu sinni en þeir sem
ekki eru á Netinu, en á hinn bóginn
voru þeir heldur meira í félags-
skap vina sinna. ■
Framboð á Akureyri:
Sjálfstæðismenn raða á lista
SVEITARSTJÓRNARKOSNINCAR
„Við stefnum að því að list-
inn liggi fyrir upp úr miðj-
um janúar", segir Björn
Magnússon, formaður full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokks-
félaganna á Akureyri, að-
spurður hvenær stefnt er
að því að liggi fyrir hverjir
verði frambjóðendur
flokksins við næstu bæjar-
stjórnarkosningar.
Sjálfstæðismenn á Ak-
ureyri ákváðu á fundi í síð-
ustu viku að fara uppstill-
ingarleiðina við val á frambjóð-
endum. Björn segir að kjörnefnd
AKUREYRI
Sjálfstæðismenn mynda meirihluta í bæj-
arstjórn ásamt Akureyrarlista
hittist nú í vikunni og
hefjist handa við að kanna
hug manna til framboðs
og koma saman lista.
Ljóst er að listi efstu
manna verður talsvert
breyttur frá því sem var
fyrir síðustu kosningar
þegar flokkurinn fékk
fimm bæjarfulltrúa kjör-
na. Einn bæjarfulltrúa er
fallinn frá og annar flutt-
ur á suðvesturhornið.
Ekki er gert ráð fyrir
öðru en að þeir bæjarfull-
trúar sem nú sitja gefi kost á sér
áfram. ■
Skýli við Bröndukvísl:
Sækir aftur
um leyfi
skipulagsmál Eigandi Bröndu-
kvíslar 22 hefur nú aftur sótt um
leyfi fyrir kjallaraíbúð auk úti-
geymslu að lóðamörkum. Vegna
útigeymslunnar fyllir húsið út í
lóðamörk beggja vegna og er ekki
hægt að ganga inn í kjallarann
þeim megin sem aðgangur að hús-
inu er ætlaður. Nágrannar þar
hafa því kært framkvæmdina sem
úrskurðuð hefur verið ólögleg.
Borgarstjórn vill engu að síður að
skýlið fái að standa.
Byggingarfulltrúi hefur vísað
málinu til Borgarskipulags sem
ákveður hvort þurfi grenndar-
kynningu. ■
VIÐRÆÐUR
Ahmad Fawzi, talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna, ræðir við fjölmiðla eftir viðræðurnar
í gær, en þær hafa nú staðið yfir í 6 daga.
Viðræður um pólitíska
framtíð í Afganistan:
Tillaga um
6 mánaða
bráðabirgða-
stjórn
kabúl.afganistan.ap Sameinuðu
þjóðirnar vonast til að komist
verði að samkomulagi í dag við
hagsmunahópa í Afganistan um
pólitíska framtíð landsins, en við-
ræðurnar fara fram í Bonn í
Þýskalandi. í gær lögðu þær fram
frumvarp þar sem lagt er til að
komið verði á bráðabirgðastjórn
sérfræðinga í landinu til sex mán-
aða. Vonast hafði verið til þess að
samkomulag myndi nást sl. laug-
ardag, en hagsmunahóparnir eiga
enn eftir að tilnefna þá sem
myndu sitja í stjórninni. ■
Húsnæðisstefhan hér
vekur undrun erlendis
Alþjóðsamband leigjenda þrýstir á stjórnvöld. Bréfasendingar til þriggja ráðherra og borgar-
stjóra. Húsnæðisstefnan rædd á stjórnarfundi í Berlín. Löggjöf og samningar aðeins á íslensku.
lögreglufréttir|
Nokkuð mörg umferðaróhöpp
hafa verið í Kópavogi undan-
farið. Að sögn lögreglunnar má
gera ráð fyrir að tveir til þrír bíl-
ar lendi í árekstri á degi hverj-
um. Engin slys hafa orðið á fólki.
Færðinni er að mestu kennt um
óhöppin en mikill snjór er í bæj-
arfélaginu, miðað við það sem
venja er og er færð, sér í lagi, á
hliðargötum leiðinleg.
LEIGJENDASAMTÖKIN Stjórn Al-
þjóðasambands leigjenda hefur
sent forsætisráðherra bréf þar
sem ráðherra er minntur á þær
alþjóðlegu skuldbindingar sem
stjórnvöld hafa undirgengist
vegna réttinda fólks til húsnæðis
og ákvæði stjórnarskrárinnar um
mannréttindi og jafnrétti. í bréf-
inu eru stjórnvöld hvött til að
styðja við bakið á Alexander
Birni Gíslasyni sem bíður eftir
gjafsókn frá dómsmálaráðuneyt-
inu til að geta leitað réttar síns
fyrir dómstólum vegna húsnæð-
isleysis en hann er HlV-smitaður.
Þá er ætlun að senda bréf til
borgarstjóra, félagsmálaráð-
herra og dómsmálaráðherra um
sama efni.
Á stjórnarfundi sambandsins
sem haldinn verður í Berlín verð-
ur fjallað sérstaklega um hús-
næðisstefnu íslenskra stjórn-
valda jafnframt því sem tekin
verður fyrir inntökubeiðni Leigj-
endasamtakanna.
Jón Kjartansson formaður
Leigjendasamtakanna segir að í
stjórn sambandsins séu fulltrúar
20 ríkja. Hann segir að það hafi
vakið furðu stjórnarmanna í sam-
bandinu að Island sem eitt af
Norðurlöndunum skuli ekki sjá
öllum íbúum sínum fyrir hús-
næði sem geta það ekki sjálfir. Þá
hefur það einnig vakið hneykslan
þeirra að fjölmargir íslendingar
þurfi að búa í óíbúðarhæfu hús-
næði og jafnvel á götunni. Hann
segir vænta mikils af stuðningi
Alþjóðasambandsins við kröfur
Leigjendasamtakanna um úrbæt-
ur í þessum efnum. ■
Gerðu jóla
www.isb.is