Fréttablaðið - 04.12.2001, Side 22
J t J t í / pr « í
r00!' if.rÍT'í'ep
r--, 1 • > > ? .' I fT * •3'-«
HRAÐSOÐIÐ
22
FRÉTTABLAÐIÐ
4. desember 2001 ÞRIÐJUDACUR
SUMARLIÐI GUÐBJÖRNSSON
deildarstjóri
Dauðvona drengur í Kólumbíu:
H HAMBORGARAR 1000 kr. í* ^
með 3”élejg«tegundum
Gildir frá 3. des. til og með 10. des. jafU § húsið fi
Tilboð miðast við að það sé sótt j^Mr JB
S: 533 2200 Opið alla virka daga frá kl. 11 - 01, um helgar frá kl. 11 - 03 f
F ær ekki að líta foður sinn augum
Mikilvægt
að draga úr
hraðanum
HVERS vegna verða fleiri árekstrar
þegar færðin versnar eins og núna er?
„Það er til dæmis vegna þess að öku-
menn gæta þess ekki nægilega vei
að stöðvunarvegalengd er meiri í
hálku en vanalega. Auk þess er hálla
í beygjum og þetta verður til þess að
ökumcnn missa stjórn á bílum sín-
um.
r
I dag [í gær] urðu þrettán árekstrar á sex
klukkutímum, er það óvenju mikið?
Ég hef oft séð það verra. Það hefur
ekki verið eins mikil holskefla í
árekstrum og oft áður, þegar færðin
hefur verið slæm, enda aðdragand-
inn að ófærðinni lengri. Það er hins
vegar skelfilegt til þess að hugsa að
í ár eru 55 sem hafa látist í umferð-
inni á tæpum tveimur árum. Alvar-
legustu slysin verða reyndar á sumr-
in en flest slys verða á tímabilinu
frá desember fram í mars. í ár hef-
ur sigið á ógæfuhliðina á seinni
hluta ársins, en tjónum hefur hægt
og sígandi fjölgað síðan í ágúst.
HVAÐ er hægt að gera til að draga úr
hættunni á árekstrum?
Menn þurfa að draga meira úr hrað-
anum. Vegfarendur geta komið í
mörgum tilvikum í veg fyrir árek-
stra með því að sýna meiri aðgætni.
Árekstrar verða einkum vegna gá-
leysis ökumanna, ekki er hægt að
kenna færðinni alltaf um.
Þetta ætti fólk að hafa í huga núna
þegar sá tími ársins er að fara í
hönd sem fólk er sérstaklega mikið
að flýta sér.
HAFIÐ þið gripið til einhverra sér-
stakra ráða til að reyna að draga úr árekstr-
um?
í desembermánuði höfum við bent
fólki á að eyðileggja ekki jólagleðina
með ölvunarakstri en í desember er
eins og allir vita mikið um vinnu-
staðajólaglögg. f ár ætlum viö að
fara óhefðbundnari leið að markinu
en hún á eftir að koma í ljós.
Sumarliði Guðbjörnsson er deildarstjóri
bifreiðatjóna hjá Sjóvá-Almennum.
BOGOTfl. ap Um helgina hafnaði rík-
isstjórn Kólumbíu tilboði frá
skæruliðum um fangaskipti.
Skæruliðarnir buðust til þess að
láta lausan lögreglumann að nafni
Norberto Perez, sem þeir hafa
haft í haldi sínu í tvö ár, í staðinn
fyrir skæruliða að nafni Ignacio
Gonzales Perdomo, sem situr í
fangelsi en sagður er vera veikur.
Málavextir eru þeir, að tólf ára
gamall sonur lögreglumannsins
liggur fyrir dauðanum og hefur
beðið um að fá að sjá föður sinn í
hinsta sinn. Sonurinn, sem heitir
Andres Felipe Perez, er haldinn
hvítblæði og á hugsanlega aðeins
Þótt Ríkisútvarpið hafi fengið
samþykkta 7% hækkun af-
notagjalda er búist við því að
stjórnendur fyrirtækisins grípi
til uppagna til þess að reyna að
koma böndum á hinn eilífa út-
gjaldavanda þess. Fjölmargir
starfsmenn stofnunarinnar eru
lausráðnir eða á verktakakjörum
og er búist við að í þeim hópi
verði fyrst borið niður í uppsögn-
um. Meðal lausráðinna starfs-
manna má nefna þekkt sjón-
varpsandlit fréttamanna eins og
Rakel Þorbergsdóttur, Finn Beck,
Sigríði Margréti Guðmundsdótt-
ur, Margréti Marteinsdóttur og
Borgþór Arngrímsson.
Ostaðfestar heimildir herma að
fulltrúar norska fyrirtækisins
Telenor og þýska risans Deutsche
Telekom hafi verið sem gráir
kettir undanfarnar vikur í húsa-
kynnum Landssímans í þeim til-
gangi að safna gögnum sem gætu
leitt til tilboðs. Það er einnig haft
fyrir satt að rannsóknar- og þró-
unardeild þýska fyrirtækisins
hafi sýnt sérstakan áhuga, en
talið er að slíkt yrði tækninýj-
ungagjörnum íslendingum mjög
til hagsbóta. Þar er horft til þess
að okkar smái en öflugi markaður
yrði reynslusvæði eða jafnvel
markaðshermir fyrir nýjasta
nýtt.
Hjá Samfylkingunni sækjast
þau Helgi Hjörvar, Steinunn
Óskarsdóttir og Hrannar Arnar-
son öll eftir endurkjöri. Fleiri eru
nefndir til hitunn-
ar. Formaður
Samfylkingarfé-
lagsin í Reykja-
vík, Stefán Jó-
hann Stefánsson
er sagður heitur,
en hann nýtur
álits fyrir elju-
semi. Þá ér Ingvar Sverrisson
varaborgarfulltrúi nefndur, en
hann kom á óvart í kjöri til fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingar-
innar á dögunum. Sá sem örugg-
lega myndi þó velgja sitjandi
borgarfulltrúum undir uggum er
Stefán Jón Hafstein. Það kom öll-
um á óvart þegar Össur Skarp-
héðinsson fékk hann sem for-
mann framkvæmdastjórnar Sam-
fylkingarinnar á landsfundi þeg-
ar búist var við að Ása Richards-
dóttir, gömul forstýra Kaffileik-
'
fáa daga eftir ólifaða.
Margir Kólumbíubúar eru
ákaflega hneykslaðir á því að
skæruliðasamtökin FARC skuli
krefjast þess að fá félaga sinn
lausan í skiptum fyrir föður
drengsins. Ríkisstjórnin komst að
þeirri niðurstöðu á laugardaginn
að ekki kæmi til greina að verða
við þessu. Mannréttindasamtök
hafa einnig lýst yfir stuðningi sín-
um við þessa ákvörðun.
Skæruliðasamtökin, sem kenna
sig við byltingu, hafa barist við
stjórnarher landsins og vopnaðar
sveitir hægrimanna í 37 ár, og hef-
ur sú styrjöld verið afar blóðug. ■
ANDRES FELIPE PEREZ ÁSAIMT IVIÓÐUR SINNI
Þessi mynd var tekin í júní síðastliðnum á sjúkrahúsi i Bogota, þar sem hann gengst undir
meðferð vegna krabbameins.
Langri bið lokið
Brettasvæðið í Skálafelli var opnað um helgina og búist er við því að í
Bláfjöllum verði opnað á næstu dögum. Brettamenn eru búnir að
draga fram græjurnar og búist er við góðum vetri.
SNJÓbretti „Upp á síðkastið erum
við búnir að renna okkur innan-
bæjar, finna handrið hér og þar
til að renna okkur niður. Sem bet-
ur fer getum við nú farið upp í
fjall,“ segir Sigurður Árni Jós-
efsson brettamaður. Sigurður
vinnur hjá Nanoq og segir söluna
á brettum vera komna á mikla
siglingu. „Þó tíðin hafi verið
slæm undanfarna vetur hefur
snjóbrettaiðkendum ekki fækk-
að. Það var aukning í fyrra og
virðist vera enn meiri í ár. Það er
eins gott að það skyldi koma al-
mennilegur snjór því það er byrj-
að að taka upp efni fyrir snjó-
brettamynd, sem á að frumsýna í
vor. Þetta verður fyrsta íslenska
snjóbrettamyndin."
Meirihluti þeirra sem lögðu
leið sína upp í Skálafell um helg-
ina voru brettamenn. „Þetta er
jafn stór hópur og skíðamenn,"
segir Haukur Þorsteinsson, for-
stöðumaður í Skálafelli. „Maður
sér sífellt fleira fólk um þrítugt á
brettum. Ég stundaði skíðin
sjálfur mikið en fékk leið á þeim.
Síðan ég prófaði bretti hef ég
ekki stigið aftur á skíði,“ segir
Haukur en hann er 35 ára.
„Það er greinilega svakaleg
stemmning fyrir því að fjallið
er að opna. Síminn stoppar ekki
hjá okkur. Við erum að manna
stöður, ganga frá stólalyftunni
og redda öllu sem eftir er. Það
er kominn snjógrunnur í allt
fjallið hjá okkur. Það er svolítið
BRETTIN FRAM
Sigurður Árni Jósefsson hjá Nanoq hefur að undanförnu rennt sér á brettinu innanbæj-
ar. Nú flykkjast bretta- og skíðamenn hinsvegar upp í fjöll.
langt síðan það kom almennileg-
ur vetur,“ segir Haukur en
Skálafell opnaði aldrei síðasta
vetur.
Skálafell býður upp á þá nýj-
ung í vetur að vera með
brekkurör (e. halfpipe) fyrir
brettamennina en í tækjabúnað
fjallsins bættist nýlega sérstök
græja til að snyrta og útbúa rör-
ið. „Það hefur margt breyst á
fimm árum. Þá sendi maður tvo
troðara út til að fara yfir skíða-
leiðirnar. Nú sendir maður einn í
skíðaleiðirnar og annan til að út-
búa palla og annað fyrir brettin.
Það getur verið flókið. Bretta-
menn verða að vera þolinmóðir á
meðan við lærum almennilega á
græjurnar."
Skálafell verður opið seinni-
part dags og fram á kvöld alla
vikuna, ef veður leyfir.
halldor@frettabladid.is
hússins, yrði fyrir valinu. Össur
og svilkona hans borgarstjórinn
liggja undir grun um að vilja
Stefán Jón í borgarstjórn til að
hafa sterkan kandídat í borgar-
stjórastólinn ef svo færi að Ingi-
björg Sólrún söðlaði um og kæmi
yfir í landsmálin eftir að hafa
unnið borgina.
Ifjörugum umræðum á Alþingi
um Evrópusambandið sl.
fimmtudag vakti athygli ákveðið
samspil Halldórs Ásgrímssonar
og Össurar Skarphéðinssonar,
formanns Samfylkingarinnar
gagnvart Sjálfstæðisflokknum.
Þegar Halldór hafði lýst því að
hann teldi nauðsynlegt að endur-
skoða ákveðna bókun við samn-
inginn um EES um tollfríðindi
vegna fiskútflutnings gerðist það
óvænta að Tómas Olrich, formað-
ur utanríkismálanefndar, lýsti
annarri skoðun. Það þykknaði
bersýnilega í ráðherranum. Hins-
vegar var það erfitt fyrir hann að
hjóla í Tómas, sem var talsmaður
Sjálfstæðisflokksinsm í umræð-
unum. Það glaðnaði hinsvegar
aftur yfir Halldóri þegar Össur
stóðst ekki mátið og hakkaði mál-
flutning Tómasar í sig fyrir hönd
utanríkisráðherra. Ýmsir sem á
hlýddu þóttust finna lyktina af
nýrri ríkisstjórn í loftinu.
„Sá sem seair orö vera ódýr
nefur ekki tarið að
með
inn
mommu