Fréttablaðið - 11.03.2002, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
_________ Fyrstur með fréttirnar
Bjálkahús ehf sími 511-1818 fax 511-1822
HÚSogheimili
www.husogheimili.is
{{7HRAFLAGNIR ÍSLANDS ehf.
kl I VERSLUN - HEILDSALA
FAMI hillukerfi
Hitlur fyrir vandláta - Óþrjótandi
möguleikar og sérsmíði. Slétt
yfirborð auðveldar þrif og
umgengni. G07T VERÐ______
Hamarshðföa 1 - Sími 511 1122
www.simnet.is/ris
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Hjartalínurit
Hjörtu Framsóknarmanna tóku
undir sig stökk eins og lömb á
vordegi í síðustu viku þegar skoð-
anakönnun DV sýndi hreyfingu á
línuritinu sem mælir lífsmagn
stjórnmálaflokka. Fylgið rauk í einu
vetfangi úr sljóum þrettán prósent-
um upp í rammelfd 21%. Halldór
formaður fór samstundis í líkams-
rækt og Guðni varaformaður glotti
við tönn eins og Skarphéðinn frændi
hans og hljóp hæð sína í loft upp
eins og Gunnar langafi hans á Hlíð-
arenda.
—4—. ■
SKOÐANAKANNANIR fjölmiðla
hér á landi eru fyrir löngu orðnar
svo nákvæmar að kosningar eru
nánast eins og formsatriði, nema
hvað Sjálfstæðisflokkinn varðar sem
ævinlega kemur ennþá sterkari út
úr skoðanakönnunum heldur en
kosningaveseninu þegar fólk er skil-
ið eftir eftirlitslaust í kjörklefanum.
Fyrir mína parta er ég mjög undr-
andi á því hversu margir eru svo
kærulausir um framtíðarmöguleika
sína og afkomu að þeir segja ókunn-
ugu fólki í síma að þeir séu svo and-
félagslegir í hugsun að kjósa annað
en Sjálfstæðisflokkinn.
ALLTAF þegar fólk hringir í mig og
segist vera að gera skoðanakönnun
um fylgi stjórnmálaflokka tek ég því
vel og fullvissa það um að ég hafi
verið tryggur og trúr Sjálfstæðis-
maður alla ævi og allt mitt fólk og
muni halda því áfram hinum megin
ef einhvers konar lýðræði ríkir þar,
þótt ég geri raunar fremur ráð fyrir
einhvers konar menntuðu einveldi
hjá Guði, Kristi og Heilögum anda
og frjálslyndri og mannúðlegri
miðjustefnu í anda Framsóknar-
flokksins.
- .-»..
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
er nú genginn í endurnýjun lífdag-
ana og nú má gera ráð fyrir því að
stuðningsmenn þessa flokks um land
allt komi hópum saman út úr skápn-
um og viðurkenni að það hafi þá
stjórnmálaskoðun sem bleyjubörn á
fjölmiðlum nútímans telja í sínum
verkahring að leggja í einelti. Fyrir
utan að vera í einelti hjá fjölmiðlum
hefur Framsóknarflokkurinn verið í
langvarandi pólitískri misnotkun hjá
íhaldinu sem felst í því að Sjálfstæð-
isflokknum er þakkað fyrir það sem
er í lagi en Framsóknarflokknum
kennt um hitt. Kannski sigrar rétt-
lætið að lokum og þjóðin leiðir hina
klóku ömmu, Framsóknarmaddöm-
una, til öndvegis á ný?
Ein mest selda fermingarstæðan þrjú ár í röð!
BRÆÐURNIR
QRMSSON
Légmúia 8 • Simi S30 2800
\