Fréttablaðið - 11.03.2002, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
11. mars 2002 MÁNUDACUR
SPURNINC DAGSINS
Finnst þér að sérstök
rannsóknarnefnd ætti að
vinna að rannsókn á
málefnum Landssimans?
Já það finnst mér. Ég treysti þvi ekki annars
að nóg verði gert
Alma Birgisdóttir starfar sem sjúkraliði
Banna föngum að
tala við fjölmiðla:
Engin stoð
í lögum?
fancelsi Fangelsismálastofnun
bannaði föngum á Litla-Hrauni í
síðustu viku að tala við fjölmiðla.
Það bann á sér enga stoð í lögum
að mati fanga. Forsaga málsins
var sú að Atli Helgason, fangi á
Litla-Hrauni, talaði við fjölmiðla
í upphafi vikunnar. Hann hafði
síðan ákveðið að hringja í ísland
í bítið á miðvikudagsmorgun.
Síðdegis á þriðjudag var honum
hins vegar tilkynnt um að hann
fengi það ekki. Á miðvikudag var
búið að hengja upp tilkynningar
um fangelsið um að föngum væri
bannað að tala við fjölmiðla.
Fangar í trúnaðarráði fangelsis-
ins, telja að brotið sé á lögum
með athæfinu. Almennt gagn-
rýna fangar mjög hvernig fang-
elsum er stjórnað. „Löggjöfinni
er beitt mjög frjálslega og
stjórnendur fangelsanna taka
sér mjög mikið vald,“ sagði Atli
Helgason, fangi, í samtali viö
Fréttablaðið. ■
Gerðahreppur:
F-listinn
ákveðinn
framboð Ingimundur Þ. Guðna-
son mun leiða framboðslista F-
lista framfarasinnaðra kjósenda
í Garði við sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Ingimundur var í
2. sæti síðast en tekur við odd-
vitasætinu af Sigurði Ingvars-
syni sem skipar nú 14. sætið.
F-listi hefur fjóra af sjö bæj-
arfulltrúum. Ingimundur er sá
eini þeirra sem gefur kost á sér
áfram. Aðrir í efstu sætum eru
Einar Jón Pálsson, Guðrún S. Al-
freðsdóttir og Gísli Heiðarsson.
Sigurður Jónsson, sveitarstjóri,
er sveitarstjóraefni listans. ■
Útræðisréttur sjávarbænda:
Gagnstæð sjónarmið uppi
sjAvarútvegur Sjávarútvegsnefnd
Alþingis hefur ekki enn tekið til
sérstakrar umfjöllunar umleitan-
ir Samtaka eigenda sjávarjarða
um að fá viðurkenndan og stað-
festan í fiskveiðilögum útræðis-
rétt strandjarða.
Nefndin tók frumvarp sjávar-
útvegsráðherra til nýrra fisk-
veiðistjórnunarlaga til umfjöllun-
ar í lok síðustu viku og sendi það
hagsmunaaðilum til umsagnar,
þar á meðal Samtökum eigenda
strandjarða. „Þannig að við fáum
þeirra sjónarmið inn í nefndina.
Það er hins vegar nauðsynlegt að
taka fram að lögfræðileg álits-
gerð liggur fyrir sem Skúli Magn-
ússon, háskólakennari, vann fyrir
endurskoðunarnefndina sem fór
yfir fiskveiðistjórnunarlögin.
Hans niðurstaða var að heimild
þeirra til fiskveiða sé takmörk-
uð,“ sagði Einar K. Guðfinnsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks og
formaður sjávarútvegsnefndar.
Hann hafði einnig séð álitsgerð
sem samtökin fengu Má Péturs-
son, hrl., til að vinna fyrir sig um
málið. „Mér er auðvitað kunnugt
um að þarna eru uppi tvö gagn-
stæð sjónarmið. Við munum ein-
faldlega fara yfir það. Hvorug
álitsgerðin hefur í raun verið
rædd í nefndinni. Álitsgerð Skúla
liggur fyrir sem fylgiskjal í álits-
gerð endurskoðunarnefndarinnar
og álitsgerð Más Péturssonar, sem
unnin var fyrir hönd bændanna,
hefur verið dreift til nefndar-
manna að mínu frumkvæði,"
bætti hann við. Stefnt er að því að
frumvarp sjávarútvegsráðherra
verði að lögum fyrir vorið, en ekki
er útilokað að á því verði gerðar
breytingar. ■
EINAR K. GUÐFINNSSON
Einar segir að nefndarmenn í sjávarútvegs-
nefnd þingsins hafi undir höndum tvær
öndverðar álitsgerðir sem snúa að rétti
bænda sem land eiga að sjó til fiskveiða.
Lyíjum ýtt að föngum
Trúnaðarráð fanga á Litla-Hrauni gagnrýnir harðlega aðbúnað þar. Engin meðferðarúrræði en
lyf innan seilingar. Fjölskyldan líður fyrir aðbúnað.
fangelsi „Þrisvar á dag er gengið
í dag eru
allir nýir
fangar settir
inn á deild 3,
í svokallað
Refsihús.
um og hrópað lyf, lyf, lyf! Þetta
er náttúrulega alveg óviðunandi
því að flestir okkar eru fíklar,"
segir Atli Helgason, fangi á Litla-
Hrauni. Hann situr í trúnaðarráði
fanga þar ásamt þeim Guðmundi
Inga Þóroddssyni og Júlíusi K.
...4.. Eggertssyni. Atli
telur umgengni
stjórnenda á Litla-
Hrauni við lyf
vera lýsandi
dæmi um hvernig
menntunarskort-
ur þeirra birtist.
Hann hefur gagn-
rýnt skort á menntun stjórnenda
harðlega. „Fangelsið ýtir þessum
lyfjum að okkur, þetta eru róandi
lyf, svefnlyf, jafnvægislyf og svo
framvegis.Það gefur auga leið að
svona væri aldrei farið að ef að
þeir hefðu menntun og þekkingu
við hæfi,“ segir Atli.
Þrátt fyrir þetta telur hann
misnotkun fanga orðum aukna.
„Það er Fangelsismálastjórn sem
talar mest um lyfjanotkunina. Ég
tel að um 20% fanga misnoti lyf.“
Trúnaðarráðið hefur farið
fram á að fangar fái að setja
ATLI HELGASON
Ég tel að um 20% fanga misnotí lyf.
LITLA-HRAUN
Þangað eru fangar líka sendir sem verða uppvísir að fíkniefnanotkun.
nefnd á laggirnar sem myndi
taka á móti nýjum föngum, kynna
þeim kerfið og þá möguleika sem
föngum bjóðast.
„í dag eru allir nýir fangar
settir inn á deild 3, í svokallað
Refsihús. Þessu erum vió mjög á
móti því að þar á sér stað lang-
mest misnotkun á lyfjum sem fer
fram á Hrauninu. Þangað eru
fangar líka sendir sem verða
uppvísir að fíkniefnanotkun.
Þetta er ekki umhvei’fi sem er
vænlegt fyrir nýja fanga, sem
flestir eru í öngum sínum þegar
þeir koma inn.“
Atli segir að þrátt fyrir að
hugmynd þeirra um hóp til
styrktar nýjum föngum hafi
fengið góðan hljómgrunn hjá
stjórnendum, þá gerist ekki neitt.
„Við erum búnir að bíða í marga
mánuði eftir svörum.“ Guðmund-
ur Ingi bendir á að um væri að
ræða úrræði sem kostar ekki
neitt fyrir yfirvöld og því sé
skrítið að ekkert hafi veiúð gert.
Trúnaðarráðið segir einnig
afar gagnrýnivert hversu erfitt
föngum er gert að hafa samband
við fjölskyldu sína. Reglur um
heimsóknatíma séu mjög strang-
ar og langtímafangar fái ekki
dagvistarleyfi fyrr en eftir fimm
ár. „Það er sá tími sem tekur að
eyðileggja manneskju," segir
Atli. „Það er miklu líklegra að
fangelsið skili skemmdum ein-
stakling þegar svona er staðið að
málurn." Hann segir mikinn galla
að sá réttur sem föngum sé
tryggður í lögum sé skertur með
reglugerðum. „Þetta er reglu-
gerðarfrumskógur sem þyrfti að
taka til í.“ ■
m
FYRIRTÆKJASALA
ISLANDS IIS,rÚLA 15
.'YHIRTÆKI TIL SOLU
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
: 588 5160
Cissur V. Kristjánsson hdl. og
iögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
! 6
NOREGUR
Norska kirkjan vill aðskilnað frá ríkinu.
HÚSGAGNAVERSLUN sérhæfð með gegn-
heil glæsileg húsgögn , miklir möguleikar
BARNAFATAVERSLUN í úthverfi með eigín
innflutning, góður hagstæður rekstur
SJÁLFSALAR HOBBY FYRIRTÆKI góðir
tekjumöguleikar, verð 1,5 millj, skipti
BÍLAUMBOÐ í FULLUM REKSTRI ásamt
varahlutasölu og þjónustuverkstæði
FEGRUNAR- OG NUDDSTOFA með góð
tæki í hentugu húsnæði á góðum stað Verð 2,5
BLÓMABÚÐ M/ EIGIN FRAMLEIÐSLU
falleg verslun og rekstur með mikla mögu-
leika
GRILL M/ SALLATBAR. NAMMI OG FL
sæti fyrir 20, fín aðstaða, opið 8-18
1.100 FM HÓTEL í REYKJAVÍK með 18 hót-
elibúðir, vaxandi rekstur verð 150 millj.
VIDEÓSJOPPA MIKILL HAGNAÐUR velta
70-80 millj. nettóhagnaður 6-9 millj.
HÚÐMEÐFERÐARSTOFA góð tæki til að
vinna á appelsínuhúð og fl. og fl.
LYFTARAÞJONUSTA innflutningur, sala, og
viðgerðir. Eitt elsta fyrirtækið í sinni grein.
DAGSÖLUTURN í MÚLAHVERFI , rekstur
sem skilar góðum launum, Verð 2,7 m
SÓLBAÐSSTOFA í Kópavogi, 7 bekkir, góð
aðstaða, góður rekstur sem skilar finum
gróða.
SÉRVERSLUN RITFÖNG. LEIKFÖNG
gjafavöru, bækur og fl. i verslunarkjarna.
KAFFIHÚS MEÐ MEIRU velta ca 38 millj,
2-3 starfsm. opið 7.30-18.00, frábær afkoma
DEKKJAVERKST. INNFLUTNINGUR og
sala á dekkjum, felgum, aukahlutum og fl
HÓTEL Á AUSTURLANDI 7 herb., bar, veit-
ingasalur, verð 15 millj. Athuga öll skipti,
HEILSUSTUDIO í FLOTTUM REKSTRI
mikill nýlegur búnaður, auðveldur rekstur.
MIKIÐ ATVINNUHÚSNÆÐI Á SKRÁ
MIKIL SALA, VANTAR ALLAR
GERÐIR FYRIRTÆKJA Á SKRÁ
Norska þjóðkirkjan:
Vill aðskiln-
að ríkis
og kirkju
í Noregi
ósló. ap Nefnd á vegum norsku
þjóðkirkjunnar segir að nú sé
kominn tími til að skilja milli rík-
is og kirkju þar í landi. Rétt sé að
öllum trúarbrögðum verði gert
jafn hátt undir höfði.
Evangelíska lúterska kirkjan
hefur verið opinber kirkja Noregs
alit frá því 1537. Alls eru 86%
landsbúa skráð í hana.
Stjórnarskrárbreytingu þarf í
Noregi til þess aðskilnaður ríkis
og kirkju geti farið fram. Allar
stjórnarskrárbreytingar þurfa að
hljóta samþykki norska þjóð-
þingsins tvisvar sinnum. Þess
vegna getur ekki orðið af aðskiln-
aði fyrr en í fyrsta lagi árið 2005.
Sautján manna nefnd á vegum
kirkjunnar hefur verið að skoða
þetta álitamál í fjögur ár. „Megin-
reglan er sú að öllum trúarbrögð-
um skuli gera jafn hátt undir
höfði,“ sagði Trond Bakkevig, lút-
erskur guðfræðingur sem jafn-
framt er formaður nefndarinnai’.
Hann sagði að núverandi fyrir-
komulag hafi í för með sér að rík-
ið lendi í hagsmunaárekstrum.
„Ríkið ber ábyi’gð á því að vernda
réttindi og hagsmuni allra borg-
ara, en um leið ber ríkinu skylda
til að vernda hin opinberu trúar-
brögð norsku kirkjunnar," sagði
hann. ■
Skoðaðu heimasiðuna www.fyrirtaekjasala.is