Fréttablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 24
FRETTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍI*.IS Fyrstur með fréttirnar
Jarðgerðarta nkur
Minna sorp! J O | RJJTNINGATÆKNi 1 a i iU»>
SúOsrvogí 2, Reykjavík flH Símí 535 2535 . 4
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
r
Imynd,
fattaru?
Aþessum tímum ímyndarveikinn-
ar eru allir, fólk og fyrirtæki,
með svokallaða „ímynd“ á heilanum
og ímyndarsérfræðingar, grafalvar-
legir, eins og skraddararnir úr Nýju
fötunum keisarans, þéna grófa pen-
inga á að kenna fólki sjálfsagða hluti
„til að koma vel fyrir“. Mönnum er
kennt að girða skyrtuna vandlega
ofan í brækurnar og renna upp
buxnaklaufinni áður en þeir mæta í
fjölmiðlaviðtöl og vera í ljósblárri
skyrtu en ekki snjakahvítri og
minntir á að vera brosmildir og
djarfmannlegir á svip eins og hjarta-
hreinir og ábyrgir aðilar en ekki
flóttalegir eins og sauðaþjófar elleg-
ar strokumenn. Og konur í fjölmiðl-
um kappkosta að sýna að þær séu
með háa litgreindarvísitölu og eru í
hárfínum sjatteringum eins og þær
hafi verið hannaðar af snjöllum mál-
verkafalsara.
ALLT er þetta gott og blessað og
ástæða til að fagna því að landinn til-
einki sér kurteisa og snotra fram-
komu og hætti að bora í nefið á sér
eða klóra sér milli fótanna við hátíð-
leg tækifæri.
ÍMYNDARFRÆÐIN mættu þó
gjarna rista dýpra. Skikkanlegt fas
og þokkalegur klæðaburður er skref í
rétta átt hjá þeim sem vilja koma
fram fyrir almenning og vekja traust
á sér og þeim málstað sem þeir (þær)
vilja flytja. En ákveðin hirðusemi í
málfari er líka nauðsynleg.
ÞEGAR fólk byrjar að tala kemur
nefnilega í ljós í hvers konar hugar-
heimi persónan býr og þá stoðar lítið
að vera í Armani-fötum af bestu gerð
ef maður segir „fökking" og „dsjísös11
í öðru hverju orði og sú ræða sem
upp úr manni stendur iðar af ein-
hverri málfarslegri óværu. Þarflaus
aukaorð eins og „sem sagt“ (í dag-
legu tali borið fram ,,sesad“), „sko“,
„þú veist", „fattaru" og fleiri eru
furðulega algeng í munni fólks sem
að öðru leyti virðist láta sér annt um
ímynd sína. Þessar málfarslýs þyrftu
ímyndarfræðingar að kemba úr hári
skjólstæðinga sinna áður en þeir fara
út á markaðstorgin að tala yfir okkur
í fjölmiðlum eða á mannamótum og í
rauninni ætti hver og einn að reyna
að aflúsa eigið málfar. Því að eins og
þar stendur: „Deyr fé, sem sagt,
deyja frændur, sko, en ímynd, þú
veist, deyr aldregi, fattaru?"
Byggöu á þínum tíma
Klukkubúðir í þínu hverfi
Grafarvogi | Ármúla | Vestur í bæ | Kópavogi
Tími þinn er það sem skiptir mestu máli
þegar þú vinnur að viðhaldi og nýbyggingu.
Hjá Klukkubúðum Húsasmiðjunnar nýtur þú
góðs af rúmum afgreiðslutíma, miklu vöruúrvali
og fyrsta flokks þjónustu. Við erum í Grafarvogi,
Ármúla, vestur í bæ og höfum opnað nýja
Klukkubúð við Dalveg 4 í Kópavogi.
HUSASMIÐJAN
www.husa.is
r
(Í)inDesiTAEG
Kælískápar, frystiskápar, frystíkistur
m I*1
Næstu daga
bjóðum við kæliskápa,
frystiskápa og frystikistur
með 15-20% afslætti.
Hörku tæki af öllum
stærðum og gerðum, frá
heimsþekktum
k frameiðendum.
< J/ )
1922 ( j( J 2002
B R Æ P U R N I R
Uágmúla 8 • 8lmi 630 2800