Fréttablaðið - 14.05.2002, Qupperneq 1
SYNING
Fiðla í
kvennmannslíki
bls 16
Jarðgerðartankur
Mínna sorp!
FU/TNINGATÆKN)
§(»d»rv©ai 2, B©ykj
Bími §3§ 2.636
FRETTABLAÐIÐ
89. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 14. maí 2002
ÞRIÐJUDAGUR
70.000 e ',rök
70"% fc ’ks íes b
KVÖLDIÐ í KVÖLD
Tónlist 16 Bíó 14
Leikhús 16 [þróttir 12
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Meðallestur 25 til 39
ára á þriðjudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Callup frá
mars 2002
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
A HÖFUÐBORCARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002.
Peterson sýnir áhuga
á að eignast Línu.Net
Kenneth Peterson hefur óskað eftir viðræðum um að kaupa sig inn í Línu.Net. Hugmyndir eru
uppi um að sameina Línu.Net, Halló - frjáls Qarskipti og Tal í fyrirtæki sem gæti keppt við
Landssímann á öllum sviðum.
viðskipti Kenneth D. Peterson,
eigandi Columbia Ventures Cor-
poration, hefur óskað eftir við-
—t ræðum við for-
svarsmenn Línu,-
Nets um kaup á
meirihluta í félag-
inu. Sjálft fyrir-
tæki Petersons á
meirihluta í fjar-
skiptafyrirtækinu
Halló - frjáls fjar-
„Kenneth
Peterson og
Columbia
Ventures hafa
sýnt að þeir
hafa áhuga á
íslenska
fjarskiptamark- sKipti. Samkvæmt
aðnum, heimildum Frétta-
blaðsins er mark-
miðið með kaupum á Línu.Net að
sameina það Halló.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Western Wireless,
sem á rúm 60 prósent í símafyrir-
tækinu Tal, hafi rætt við Kenneth
Peterson að hann komi inn í rekst-
ur félagsins. Við sameiningu
þessara þriggja fjarskiptafyrir-
tæka gæti nýtt fyrirtæki boðið
upp á heildarlausn fyrir fyrirtæki
og heimili í fjarskiptatækni, sem
keppti við Landssímann.
„Ég get staðfest að Columbia
Ventures, fyrirtæki Kenneth Pet-
ersons, hefur átt í viðræðum við
okkur um aðkomu þeirra að
Línu.Net," segir Alfreð Þorsteins-
son, stjórnarformaður Orkuveit-
unnar. „Á þessu stigi er ekki hægt
að gefa upp neitt frekar um gang
mála. Þær hafa staðið yfir núna
um nokkurn tíma.“ Alfreð segir
þrjá aðra aðila einnig vera í við-
ræðum um að eignast stóran hlut
í fyrirtækinu. Hann kveðst þó
ekki geta nafngreint þá aðila þar
sem hann sé bundinn trúnaði.
Hann á von á því að innan tíðar
verði komnir nýir aðilar í rekstur
Línu.nets eins og stefnt hafi verið
að frá upphafi.
„Kenneth Peterson og Col-
umbia Ventures hafa sýnt að þeir
hafa áhuga á íslenska fjarskipta-
markaönum," sagði Bjarni Þor-
varðarson, framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Columbia Ventur-
es í gær. „Ég vil ekki taka svo
djúpt í árina að það séu formlegar
samningaviðræður í gangi um að
kaupa eitt eða neitt.“
Einn viðmælandi Fréttablaðs-
ins taldi ólíklegt að af kaupum
yrði fyrr en undir haustið eða
næsta vetur. Ljóst væri að menn
vildu styrkja fyrirtækin en
hvernig það færi réðist að hluta
af því hvernig fyrirtæki kæmu
undan sumri eins og hann orðaði
það.
bjorgvin@frettabladid.ís
brynjolfur@frettabladid.is
ÞETTA HELST
Kona hefur kært sjúkraflutn-
ingamann fyrir að hafa áreitt
hana kynferðislega þegar hún
var flutt með sjúkrabíl. bls. 2
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
Jón Kristjánsson hafa undirrit-
að viljayfirlýsingu um uppbygg-
ingu 284 hjúkrunarrýma til árs-
loka 2007. bls. 2
Flokkur Pims Fortuyns verður
næst stærsti flokkurinn á hol-
lenska þinginu eftir kosningar
samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
bls. 4
Eimskip hefur lýst áhuga á að
eignast meirihluta i Skag-
strendingi. bls. 6
Öryggisráðstafanir vegna Natófundarins:
Mega ekki mæta í vinnu
LÖGREGLUMÁL Fjórir starfsmenn
Radison SAS Hótel Sögu fá ekki
að vera í vinnunni meðan á
Natófundinum í Reykjavík
stendur að kröfu Ríkilögreglu-
stjóraembættisins. Anna Dóra
Guðmundsdóttir, starfsmanna-
stjóri á Hótel Sögu, segist ekki
hafa upplýsingar um hvað varð
þess valdandi að starfsmennirnir
fá ekki að sækja vinnu á meðan
fundinum stendyr. Starfsfólkið
sem um ræðir mun allt vera af
erlendu bergi brotið. Sá sem
lengstan starfsaldur hefur við
hótelið hefur starfað þar í um 4
ár en sá með skemmstan í nokkr-
ar vikur. „Það sem maður undrar
sig helst á er að sumir úr hópnum
hafa verið nokkuð lengi hjá okk-
ur. Ég held að Ríkislögreglustjóri
verði eiginlega bara að svara því
hvað fyrir þeim vakir og hverjar
viðmiðanirnar séu,“ sagði hún.
„Ríkislögreglustjóri tjáir sig
ekki um framkvæmd einstakra
öryggisráðstafanna vegna
Natófundarins," sagði Guðmund-
ur Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Ríkislögreglustjóra-
embættinu, að hafi verið niður-
staða ráðandi manna þar innan
dyra við umleitunum um frekari
skýringar á því að meina fólki
aðgangi að öryggissvæðinu.
Hann sagði þó ekki loku fyrir það
skotið að betur mætti fara yfir
öryggisákvarðanir að fundi lokn-
um. ■
Hvaða blöð lesa 25 til 39
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á þriðju-
dögum?
ára
REYKJAVÍK Norðaustan
8-13 m/s og léttskýjað.
Hiti 1 tíl 6 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 8-13 Léttskýjað ^4
Akureyri O 10-15 É1 ©0
Egilsstaðir Q 10-15 Él Q0
Vestmannaeyjar Q 10-15 Léttskýjað Q5
Menningarmál
kosningar Leikfélag Reykjavíkur
og Bandalag íslenskra listamanna
heldur fund með frambjóðendum
til borgarstjórnar um stefnumörk-
un Reykjavíkur í menningu og list-
um. Fundurinn verður haldin í
Borgarleikhúsinu og mun standa
frá klukkan 17 til 19. Fulltrúi R-
lista verður Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri og fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins oddviti listans
Björn Bjarnason. Fulltrúi F-lista
verður Olafur F Magnússon.
SPRENGJULEIT Á FUNDARSTAÐ Fyrri dagur vorfundar Atlantshafsbandalagsins er í dag. Utanríkisráðherrar aðildarríkja bandalagsins
komu til landsins í gær og verða 46 utanríkisráðherrar á fundarstað áður en yfir lýkur. Miklar öryggisráðstafanir eru í tengslum við fund-
inn. Sprengjuleit fer reglulega fram á fundarstað.
Benjamin Netanjahu, fyrrum
forsætisráðherra ísraels, er
farinn að láta að sér kveða í ísra-
el á nýjan leik. bls. 8
Múm
á tveimur
tungum
SÍÐA 14
ÍÞRÓTTIR
Grindavxk
spáð
titlinum
Var Laxness
vont leikskáld
menning í tilefni af
aldarafmæli Hall-
dórs Laxness efnir
Vaka-Helgafell til
röð fyrirlestra í
Norræna húsinu. í
dag heldur Hrafn-
hildur Hagalín Guð-
mundsdóttir erindið „Var Laxness
vont leikskáld?" Aðgangur er
ókeypis.
Heldur
rauða strikið?
verðbólga Hagstofa
fslands birtir
klukkan 10 vísitölu
neysluverðs fyrir
maí. Mælingarinnar
hefur verið beðið
með nokkurri eftir-
væntingu enda
kemur í ljós hvort rauða strikið
heldur. Vísitalan má hækka um allt
að 0,3% án þess að verðlagsmark-
mið aðila vinnumarkaðarins sé í
hættu. Spár fjármálastofnana gera
ráð fyrir 0,1% til 0,2% breytingu
vísitölunnar.
IvíðíTðTdagI