Fréttablaðið - 14.05.2002, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
Nokkur meirihluti les-
enda visis.is er sáttur
við að lögreglumenn
séu vopnaðir vegna
NATÓ-fundarins.
Ertu sátt/ur við að lögreglu-
menn verði vopnaðir vegna
NATÓ-fundarins?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu farið eða ætlarður að fara á
lístahátíð í ár?
Farðu inn á visi.is og segðu
þina skoðun
______________________________
Kristinn H. Gunnarsson:
Vísar um-
mælum á bug
byccðastofnun Kristinn H. Gunn-
arsson, stjórnarformaður Byggða-
stofnunar, vísar á bug ummælum
Theodórs Agnar Bjarnasonar, for-
stjóra stofnunarinnar, um að skort-
ur sé á faglegri meðferð lánsum-
sókna hjá Byggðastofnun. Að öðru
leyti vildi hann lítið tjá sig um mál-
ið. í síðustu viku gekk Theodór
Agnar út af stjórnarfundi vegna
ósættis við Kristinn H. Theodór
Agnar vildi fá að taka ársreikninga
stofnunarinnar til umræðu en
Kristinn H. neitaði því. Kristinn H.
sagði að reikningarnir hefðu ekki
verið á dagskrá fundarins og því
hefðu þeir ekki verið ræddir. Næsti
stjórnarfundur yrði í lok mánaðar-
ins og þá yrðu reikningarnir líklega
ræddir. ■
ERLENT
Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagðist í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina CNN
ekki trúa því að A1 Aksa herdeild-
irnar hefðu hryðjuverk á samvisk-
unni. „Gefðu mér eitt dæmi,“ sagði
hann. Hann segist vera stoltur af
því að hafa veitt þeim fé.
Arafat heimsótti Betlehem og
fleiri borgir á Vesturbakkanum
í gær og skoðaði eyðilegginguna
þar eftir hernað ísraelsmanna.
Þetta var í fyrsta sinn sem hann
EFNAHAGUR |
Kröftug verðhækkun undir lok
viðskipta leiddi til umtals-
verðrar hækkunar hlutabréfa í
New York í gær. Dow Jones vísital-
an fór upp fyrir 10.000 stig.
Tap á rekstri deCODE nam 11,2
milljónum Bandaríkjadala á
fyrsta fjórðungi ársins. Á sama
tímabili á síðasta ári var tapið 16,1
milljón dollara.
2
14. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Þrjátíu BMW bifreiðar á rauðum númerum:
Fyrirmenni í reynsluakstri?
BfLAFLOTINN
Lögreglan á að hafa eftirlit með notkun á rauðum númerum úti á götu, en hún ekur þeim
bílum sem hingað hafa verið fluttir í tengslum við fundinn.
nató Þrjátíu BMW bifreiðar sem
notaðar verða til að ferja fyrir-
menni á fundi Atlantshafsbanda-
lagsins á milli staða eru á rauðum
númerum. Slík númer eru fyrst og
fremst notuð til reynsluaksturs.
Karl Ragnars, forstjóri Skráningar-
stofunnar, sagði að auðvitað hefði
átt skrá bílana bráðabirgðaskrán-
ingu á venjulegan hátt og svo af-
skrá þá að verkefninu loknu. Þá
hefðu þeir ekið um göturnar á
venjulegum númerum.
„Þeir eru kannski ekki beint
ólöglegir," sagði Karl. „En rauðu
númerin eru náttúrlega til annarra
þarfa. Þau eru fyrst og fremst til
reynsluaksturs og eru notuð þegar
umboðin eru að sýna bfla og keyra
þá frá tollsvæðum í umboðin. Engu
að síður eru þessir bflar skráðir og
tryggðir." Lögreglan á að hafa eftir-
lit með notkun á rauðum númerum
úti á götu, en hún ekur þeim bflum
sem hingað hafa verið fluttir í
tengslum við fundinn. Karl sagði að
lögreglan hefði oft gert athuga-
semdir þegar umboðin hefðu verið
að teygja sig full langt í notkun á
rauðum númerum, t.d. þegar bíla-
blöðin hefðu verið að prófa bíla á
rauðum númerum. ■
Kærir kynferðislega
áreitni í sjúkrabíl
Kona hefur kært sjúkraflutningamann fyrir að hafa beitt sig kynferðis-
legu ofbeldi í sjúkrabíl. Maðurinn neitar sök en rannsókn sýnir að
lífsýni sem tekið var af brjóstum konunnar var úr manninum.
Hann var sendur í leyfi þegar sú niðurstaða lá fyrir.
Maðurinn
neitar sök en
var sendur í
leyfi I kjölfar
DNA-rann-
sóknar.
lögreglumál Sjúkraflutningamað-
ur í Reykjavík hefur verið kærður
fyrir að hafa leitað á konu sem
hann flutti á spítala í sjúkrabíl í
fyrra.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leiddi rannsókn lögregl-
unnar í Reykjavík m.a. í Ijós að
munnvatn úr
sjúkraflutninga-
manninum var á
líkama konunnar.
Konan mun segja
manninn bæði hafa
þuklað á sér og
sleikt brjóst sín.
^ Sjúkraflutn-
ingamaðurinn hef-
ur verið í starfi í 13 ár. Hin meinta
kynferðislega áreitni á að hafa átt
sér stað í lok síðasta árs. Maðurinn
hefur ávallt neitað sök. Hann var
sendur í leyfi í mars þegar DNA-
rannsókn leiddi í ljós að lífsýni úr
honum voru á líkama konunnar.
Málið mun hafa vakið upp heit-
ar tilfinngar í liði sjúkraflutning-
manna. Innan hópsins mun hafa
komið upp sú hugmynd að fram-
vegis verði ávallt tveir starfs-
menn aftur í hjá sjúkliningi eða
jafnvel myndavél. Þannig verði
tekin af allur vafi um það sem
fram fer í bílnum.
Birgir Finnsson, deildarstjóri
útkallsdeildar hjá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins, segir slík
kærumál vera erfið fyrir alla að-
ila. Hann segist ekki vita til þess
að álíka ásakanir um meinta kyn-
ferðisráreitni sjúkraflutninga-
«
I
|
1 sM
SJÚKRABÍLL
Sjúkraflutningamaður neitar ásökunum konu sem telur hann hafa beitt sig kynferðislegu
ofbeldi í sjúkrabll.
manna hafi komið upp áður hér-
lendis.
„Starfsmaður hefur verið
leystur undan starfsskyldum
vegna kæru um meinta kynferðis-
lega áreitni,“ staðfestir Birgir.
Hann segist ekki vilja tjá sig um
málið að öðru leyti á meðan það sé
til rannsóknar hjá lögreglu.
Engar upplýsingar eru gefnar
um þetta mál hjá lögreglunni í
Reykjavík. Eins og áður segir er
rannsókn lögreglunnar lokið. Mál-
ið er komið til lögfræðideildar
embættisins. Þar ræðst hvort gef-
in verður út ákæra og málið sent
áfram til dómstóla. Búist er
ákvörðun um það í lok mánaðar-
ins.
gar@frettabladid.is
Innbrot í Firðinum:
Stálu um
tveimur millj-
ónum króna
lögrecla Brotist var inn í verslun-
ina 10-11 í Firðinum í Hafnarfirði
í fyrrinótt. Að sögn lögreglu er
talið að um tveimur milljónum
króna hafi verið stolið. Á eftirlits-
myndavélum sáust tveir menn en
ekki sást í andlitið á þeim.
Mennirnir brutu upp hurð og
stálu fjármununum úr peninga-
skáp verslunarinnar. Þjófavarnar-
kerfi fór í gang en mennirnir voru
á bak og burt þegar lögreglan kom
á staðin. Enginn hefur verið hand-
tekinn vegna málsins, sem er í
rannsókn. ■
Heilbrigðismál í Japan:
Fyrirfór
sér vegna
kúariðu
kúariða Japönsk heilbrigðisyfir-
völd hafa greint frá því að fjórða
tilfelli kúariðu hafi greinst þar í
landi. Tilkynningin kemur í kjöl-
far ítrekaðra yfirlýsinga þar-
lendra yfirvalda um að sjúkdóm-
urinn hafi verið upprættur og allt
kjöt og mjólk í landinu sé í lagi.
Netútgáfa Aftenposten segir frá
því að japönsk heilbrigðisyfirvöld
hafi tengt sjálfsmorð talsmanns
heilbrigðisyfirvalda við uppgötv-
unina.
Tilkynningin þykir nokkuð
áfall fyrir japanskan matvælaiðn-
að sem hingað til hefur haft á sér
ímynd öryggis. Eins þykir upp-
götvunin koma á slæmum tíma
þar sem þúsundir fótboltaunn-
enda komi til með að heimsækja
landið í tengslum við HM í knatt-
spyrnu. ■
—*—
U mhverfisráðherra:
Staðfesti úr-
skurð Skipu-
lagsstofnunar
umhverfismál Umhverfisráðherra
hefur staðfest úrskurð Skipulags-
stofnunar frá 17. október sl. varð-
andi umhverfisáhrif jarðgangna
og vegagerðar á norðanverðum
Tröllaskaga milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar. Þó er bætt við skil-
yrði um að endurheimta skuli vot-
lendi til jafns við það sem raskast
eða verður fyrir áhrifum vegna
framkvæmdanna. Úrskurður um-
hverfisráðherra nú er vegna
kæru Guðjóns Jónssonar og
Trausta Sveinssonar sem þeir
lögðu fram í kjölfar úrskurðar
Skipulagsstofnunar. ■
Taktu þátt í skemmtilegri og líflegri kosninga-
baráttu. Skráning liðsmanna fer fram í kosninga-
miðstöðinni að Túngötu 6, í síma 512-7000 og
ínetfanginuxrixr.is.
www.xr.is -xr@xr.is
reykjavikurlistinn
Stefnt að fjölgun hjúkmnarrýma í Reykjavík um 284 fyrir árið 2007:
Kostnaður borgarinnar
er um 1,4 milljarður
framkvæmdir Reykjavíkurborg og
ríkið hyggjast fjölga hjúkrunar-
rýmum í borginni um 284 fyrir
árið 2007. Stofnkostnaður við
framkvæmdirnar eru á fimmta
milljarð króna. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri og Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
undirrituðu í gær viljayfirlýsingu
þessa efnis. í fréttatilkynningu
frá Reykjavíkurborg kemur fram
að í dag sé 201 Reykvíkingur í
brýnni þörf fyrir rými.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
er gert ráð fyrir að 326 ný hjúkr-
unarrými verði tekin í notkun á
árunum 2003 til 2007. Á sama tíma
verður 42 rýmum ýmist lokað eða
breytt í sérbýli og því verður
nettófjölgun um 284 rými. Áætl-
aður kostnaður Reykjavíkurborg-
ar vegna framkvæmdanna er um
1,4 milljarður króna. Ríkið mun
standa straum af 70% kostnaðar-
ins við nýbyggingar.
Ráðgert er að reisa nýtt hjúk-
runarheimili með 100 nýjum rým-
um í Sogamýri austan við Mörk-
ina í janúar árið 2005. Ennfremur
er stefnt að því að ljúka við
stækkun hjúkrunarheimilanna
Eir, Hrafnistu og Droplaugar-
staða fyrir árið 2005. Árið 2007 er
síðan áætlað að taka í notkun nýtt
hjúkrunarheimili með 100 nýjum
hjúkrunarrýmum. Ákvörðun um
staðsetningu liggur ekki fyrir en á
meðal þeirra staða sem koma til
SÓLTÚN
Sóltún, nýjasta hjúkrunarheimilið I Reykja-
vik, var tekið í notkun í janúar. Þar eru
92 rými.
greina eru fyrirhuguð landfylling
við Ánanaust, Grafarholt og Norð-
lingaholt. ■