Fréttablaðið - 25.05.2002, Qupperneq 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á WÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Jarðgerðartankur
Minna sorp!
FUJTNINGATÆKNI
Súöarvogi 2, Reykjavík
Sími 535 2535
tölvuskiáir
Þú getur treyst á gæðin
69.28
ID
ViewSonic VE150
LCD 15" TFT
1024x768,
TC099
Gaman að vera kjósandi á kjördegi.
Stjórnmálamennirnir leika við
hvern sinn fingur og vilja allt fyrir
mann gera. Man eftir einum sem ég
hitti á Austurvelli og vildi gefa mér
rjómaís. Annar bauð mér vinnu í Bún-
aðarbankanum. Sá þriðji sagðist elska
mig og fjölskyldu mína meira en sína
eigin. Allt á kjördegi. Mættu allir dag-
ar vera eins.
—♦—
ÞVÍ MIÐUR hefur dregið úr því að
fólk klæði sig upp á þessum degi og
leiðist saman á kjörstað. Frambjóð-
endurnir gera það þó enn og reyna að
vera fyrstir. Þá má eiga von á að ljós-
myndarar fylgist með. Sjálfur reyni
ég alltaf að vera með þeim fyrstu á
kjörstað og hef fyrir bragðið þrisvar
lent sem aukapersóna á mynd í Mogg-
anum. Tvisvar á bak við Markús Örn
Antonsson og einu sinni til hliðar við
Sigrúnu Magnúsdóttur.
ÞÓ ÉG NJÓTI þess að kjósa hefur
mér alltaf þótt heldur lítið að fá bara
eitt atkvæði til ráðstöfunar. Miðað við
vit mitt á pólitík ætti ég að hafa 100
atkvæði (myndi sætta mig við 50). En
á kjördegi eru allir jafnir og það er
einmitt það sem gerir daginn merki-
legan. Þar kristallast stjórnmálaskoð-
anir barna sem skilja ekki enn hvers
vegna fólk er með mishá laun. En þau
skilja það síðar og vilja þá líka fá
fleiri atkvæði eins og ég.
—♦—
ÞAÐ ER EKKI flókið að skilja
stjórnmálamenn sem bjóða rjómaís og
vinnu í Búnaðarbankanum á kjördag.
Þeir eiga allt sitt undir því að mér líki
við þá þennan dag. Og hvað eru
nokkrir rjómaísar á milli frambjóð-
anda og kjósenda? Þeir geta tryggt at-
vinnu stjórnmálamannsins í heil fjög-
ur ár og aðgang hans að kjötkötlunum
sem krauma án afláts á hverju sem
gengur. Sumir detta að vísu ofan í þá
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum
eins og dæmin sanna. Aðrir eru
smekklegri og sneiða hjá. En ná þó
sínu.
—*—
MESTU SKIPTIR þó að kjósa rétt.
Og þegar öllu er á botninn hvolft er
það kjósandinn sjálfur sem skiptir
mestu máli í eigin lífi. Því hvers
vegna ætti fólk að vera að kjósa D eða
R á fjögurra ára fresti ef það ber ekki
gæfu til að kjósa sjálft sig á hverjum
einasta degi þess á milli. Valið er því
einfalt: Kjósið lífið! ■
Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
þó kjósendur kjósi ekki rétt í dag fá þeir
annað tækifæri eftir fjögur ár. Það eru
eittþúsundfjögurhundruðogsextíu dagar.
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
A allt kosið
Setjum Reykjavík í fyrsta sæti
Ágætu Reykvikingar.
Kjördagur er hátíðisdagur í huga okkar allra. í dag höfum við tækifæri til að hafa bein áhrif með því
að ákveða hverjum við felum stjórn Reykjavíkurborgar næstu fjögur ár.
Við viljum öll geta verið stolt af Reykjavík. Við viljum búa í hreinni og öruggri borg og við viljum geta
boðið ungum sem öldnum hina bestu þjónustu.
Reykjavík er góð borg. Vegna hennar eigum við að setja markið hátt og gera miklar kröfur. í þeim
anda höfum viö boðiö Reykvíkingum að gera við okkur samning með atkvæði sínu í dag. Með
samningnum skuldbindum við okkur til að bæta kjör aldraðra, endurmeta skipulagsmálin, eyða
biðlistum og rétta við fjárhag borgarinnar. Við skuldbindum okkur til að gera góða borg betri og
höfum kynnt tímasetta verkáætlun aö því marki.
Kosningabaráttan hefur verið ánægjuleg og ég vil þakka öllum, sem tekið hafa þátt í henni með
okkur frambjóðendum D-listans. Einnig vil ég þakka fyrir einstakt tækifæri sem ég hef fengiö til að
stofna til nýrra tengsla við þúsundir borgarbúa á hundruðum funda undanfarnar vikur.
í dag er tækifæri til að móta framtíð Reykjavíkur. Ég hvet ykkur öll til aö nýta ykkur það - saman
gerum við góða borg betri.
Setjum Reykjavík (fyrsta sæti!
Fyrir hönd frambjóðenda Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík,
Reukjavík
í fyrsta sæti
Björn Bjarnason
MEiKilTlH
Skjár, ViewSonic E95,19"
0.22mm "hor dot pitch"
1280x1024® 88Hz
26.36
ViewSonic E70,17"
0.27mm "dot pitch"
1280x1024 @65Hz
-1024x768 @87 Hz
Skjávarpar ViewSonic
margar tegundir
BOÐEIND ^
^ sala@bodeind.is
TÖLVUVERSLUN - ÞJÓNUSTA www.bodeind.is