Fróði - 27.08.1881, Page 1

Fróði - 27.08.1881, Page 1
51. blað. 1881. F r ó II. ÁR. Akureyri, laugardaginn 27- ágúst 245 Þegar menn lesa lögin frá 27. febr. 1880 um eptirlaun presta getur þaö ekki dulizt neinum, sem skoðar hlutdrægnislaust, að þingið vill með þeirn koma í veg fyrir vandræði þau, sem opt hafa hlotizt af því, þegar prestar hafa orðið að „resignera“ á fá- tækum brauðurn, og svo hefir orðið að skerða þær litlu tckjur, sem fylgja brauðinu, með því að veita þeim < eptirlaun frá } til § hluta af föstum tekjum þess til líísframdráttar æfi- langt, svo að brauðið hefir orðið óað- gengilegt með þeim litlu tekjum, sem eptir urðu. Menn geta ekki heldur látið sjer annað til hugar koma, enn að það hafi verið vilji þingsins, að þetta næði eins til þeirra brauða, sem prestar voru þegar búnir að fá eptirlaun af áður en lög þessi öðluð- ust gildi, því þörfin var og er eins mikil þar. Hefði þetta ekki verið, þá verður það ekki rjettlætt með því, að prestar, sem hafi fengið þessi brauð, sem uppgjafaprestar eru í og njóta hluta af tekjunum, hafi vitað, aö hverju þeir gengu, meðal annars vegna þess, að þeir hafa rjett til að sækja í burtu um önnur brauð, og þá er komið i sama horfið. Ekki virðist heldur neitt roeira í því, að svipta uppgjafapresta, sem eptir eldri löguin og venju hafa fengið sjer áskilin eptirlaun af ein- hverjum hluta af tekjum brauðsins, og greiða þeim jafn mikil laun af lands- sjóði, heldur enn að svipta sýslumenn, sem veittar hafa verið tekjur sýsl- unnar að ljeni, tekjum þessum, og og veita þeim laun sín beinlínis af landssjóði, og hefir þetta þó verið gert 246 og hefir engum fyrir það þótt lögin vera látin hafa „tilbaka verkandi krapt“ eða vera órjettlát, sem gerðu þessa breytingu. iJað er þess vegna ekki hægt að sjá, að neitt sje á móti því, að lögin um eptirlaun presta nái einnig, að svo miklu leyti, sem þau geta náð þar til, til þeirra uppgjafapresta, sem þegar hafa fengið lausn frá embætti og eptir- laun af tekjum biauðanna, og að minnsta kosti mun varla nokkrum manni koma til hugar, að þeir sjeu undan þegnir ákvörðunum þeim, sem standa í 5 grein. Sumum kynni heldur að þykja umtalsmál um, hvort 2. og 6. gr. laganna geti náð til þeirra, og það hefði mátt gera það vafasamt, ef þessir uppgjafaprestar væru hvergi nefndir í iögunum, en um þann vafa þarf ekki að ræða hjer, því að þeir eru nefndir þar í fyrri málsgrein 8. greinar: „Uppgjafaprestar þeir, er búnir eru að fá hærri eptirlaun, en til eru tekin í lögum þessum, skulu halda þeirn fyrir sjálfa sig“. Nú eru sumir að líkind- um búnir að fá hærri laun, en sundr jöfn eða lægri, en til eru tekin lögum þessum, eða að minnsta kosti gæti það auðveldlega verið svo. En undan- tekning írá hinni almennu reglu, sem sett er í 2. grein laganna, er hjer gerð við þá, sem íengið hafa hærri eptirlaun, en til eru tekin í 2. grein laganna, til þess að þeir skuli einkis í missa við ákvörðunina í þessari grein, og er með því allurefi burttekinn um það, að þeir uppgjafaprestar, sem búnir eru að fá hærri eptirlaun áður en lögin öðlast gildi, en til eru tekin 247 í þeim, hlýöa undir lögin í öllum öðrum greinum, að svo miklu leyti, sem þær geta við þá átt. En fyrst annar parturinn hlýðir undir lögin með undantekningu, en engiu andan- tekning cr gerð við hinn partinn o: þá, sem búuir eru að fá jöfn eða lægri eptirlaun, en til eru tekin í löguin þessuin, áður enn þau öðluðust gildi, þá hljóta þeir að hlýða undir lögiu undantekningarlaust í öllum þeiin greinum, sem við þá geta átt. — I seinni málsgrein 8. gr. er gerð undan- tekning viö þá presta, sem nú sitja í embættum, frá ákvörðuninni í annari grein, ef þeir hafa rjett til hærri eptir- launa eptir þvf, sem hingað til hafa lög og venja verið til, en þar er til- | tekin, en þar er skýrt ákveðið, að þeir hlýði undir 6. grein undantekningar- laust, með þessum orðum: „og greiðist upphæð eptirlaunanna samkvæmt 6. gr.“ f’etta ákvæði ura greiðslu eptir- launanna er tengt við málsgreinina með samtengjandi samtengingarorði 9og“, eins og einnig seinni málsgrein við hina fyrri með „svo — og“, og sýnir það ljóst, að svo á að skiljast, að bæði ákvæðið í seinni málsgreininni um upp- hæðina á eptirlaununura og eins í viðaukanutn er í fullkominni samhljóöan við málsgreinina á undan, því annars, hefði viöaukinn um greiðsluna átt ein- ungis að skiijast um seinni málsgreinina, þá hefði hann átt að tengjast við ináls- greinina sjálfa með andstæöilegu sain- tengingar orði „en“. En þegar menn þess utan skoða fyrri inálsgreinina: „uppgjafuprestar þeir, er búnir eru að fá hærri eptirlaun, en til eru tekin f Jóuas sjervizkusegg’iir. 1. kafli. Árið 1594 kom einusinni skrítinn gest- ur að heimsækja bæjarfógetann i Nyrðrabæ. Einn góðan veðurdag kom inn á skrifstof- una ókunnur maður, sem leit út fyrir að vera um tvítugt. liann var heljarrnenui að vexti, en töturlega og sóðalega lil fara. Hann nam staðar frammi fyrir fógetanum, starði á hann, en þagði eins og steinn. Fógetinn mælti snöggt og snúðuglega: <'hvað viltþú?« komumaðursvaraði í sama róm «snöru». Fógeti mælti: «þú hefir far- ið húsavillt, góðurinn minn, kaðlarinn á heima í næsta húsi». «Jeg á ekkert er- indi við kaðlarann», sagðikomumaður«held- ur böðulinn». Hann kvaðst vilja láta hengja sig. Bæjarfógetanum fannst sjer renna kalt vatn milli skinns og körunds. Hann hjelt að maðurinn væri vitlaus. Honum þótti því vissara að kalla á efldan karlmann, áður enn hann talaði meir við þenna pilt. Komumaður kvaðst nú vera lands- hornamaður, sem hvergi ætti heima. Hjá stalibræðrum sínum kvaðst hann vera kallað- urJónas sjervizkuseggur. í máli hans voru jafnmargar sveitamállýzkur og bætur voru á treyjunni hans. Hvorki hafði hann prestsseðil nje sýslupassa, og urðu menu því að trúa því, að svo væri sem hann sagði, að hann ætti heima allstaðar og hvergi. Hann sagði síðan svo frá vífilengju- laust, að hann heífci fyrir nokkrum vikum myrt varningsmann einn skammt fráNyrðra- bæ,ogaukþess kvaðsthann hafa komiðfyrir Gyðingi einum frá Sljettumannalandi milli Kaupbæjar og Ágsborgar. Nú sagðist hann engan frið hafa nótt nje dag fyrir aðsókn varningsmannsins og Gyðingsins. því kvaðst hann vilja láta hengja sig. Nú hefði hann unnið seinnavígið í Nyðrabæjar landareign og því mundu yfirvöldin þar eigi geta skorazt undan að láta hengja sig í Nyrðrabæjar gálga. Bæjarfógetinn skalf og titraði. Svona gæti komið hver af öðrum, hugsaði hann með sjer. Bærinn hefði reist gálga sinn til handa sínurn eigin borguruin, en ekki allskonar aðkomanda óþjóðalýð. þó Ijet hann stinga Jónasi inn og ieggja málið fyrir bæjarstjórnina. Nú var haldinn bæjarstórnarfuudur. Bæjarstjórunum gat ekki orðið það Ijóst, hvort kumpán þessi væri vitlaus maður eður örvinglaður glæpamaður. En það gerði ekki svo mikið til. í þá tíð var venja að fleygja vitlausum mönnum í sömu kompu og þjófum og bófum. Jónas var nú vel geymdur í dýflizunni. Málið var þannig byrjað, en enginn vissi enn,hvern- ig því mundi Ijúka. Böðullinn, presturinn og læknirinn fóru nú hver af öðrum að heimsækja hann, til þess að kynna sjer ástand hans, hver upp á sinn hátt. þeim kom ölium saman um, að hann væri maður harla ósiðaður og illa fræddur, en góðar gáfur sögðu þeir að hanu mundi liafa, og fast stæöi hann

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.