Fróði - 02.03.1883, Page 3

Fróði - 02.03.1883, Page 3
1883. I R Ö Ð 1. 97. bl. 79 80 81 hey hafa fengizt víðazt hvar allt að því í meðallagi, en lyrir það að heyið hraktist víða töluvert, verður það ekki eins drjúgt og afnotagott sem það annars hefði getað orðið, þar ofan á bætast skemmdir sem hey manna hafa orðið fyrir í haustrigningun- um. Ilausttíðin var mjög vot- viðrasöm og erfið til allra athafna bæði á sjó og landi. IIús og hlöður hafa hrunið á nokkrura stöðum og hey drepið, enda vatn komið upp í húsum og hlöðum og þannig skemmt hey sumstaðar. Með nóvembermánuði kom norðanátt og þurviðri nokkra daga, en eptir 20. s. m. gekk til snjóaáttar og dreif mikinn snjó í logni, bleytti síðan í honuin og hleypti í svell upp til sveita, en við sjávarsíðuna varð autt. Nú er síðustu dagana góður bati kominn. Afnot af sauðfje munu hafa orðið í sumar liin minnstu, og skuröarfje í haust reyndist einnig með rýrasta móti. Verð á sláturfje var 15, 18 og 20 aura pundið af kjöti, 32 au. af mör, og gærur írá 1,25 til 3 kr. Kaupstaðarverðlag í sumar var þetta : hvít ull 80 au., mislit 55 au. —• 200 pd. af rúgi 21 kr., grjónum 27 kr., baunum 26 kr. og hrísgrjón- um 28 kr. — 1 pd. af kaffi 65 au., hvítasikri 45 au., steinsikri 50 au., púðursikri 38 au. — 1 pd. af stein- olíu 20 au. Pó menn hafi nú almennt með langfæsta móti fje á fóðri við það sem í mörg ár hefir verið, þá eru menn í mcsta voða staddir með skepnur sín- ar, ef veturinn verður hjer eptir nokk- uð að mun harður, því bæði var gefin upp hver heytugga í vor, að kalla mátti, og svo er fjenaður orðinn svo beygjulegur og kvillasainur, að hann þolir enga útbeit, þegar nokkur kuldi er, ekki að tala um ef vorharðindi koma önnur eins og í vor sem leið. Fljótsdalshjeraði 26. janúar. Iljeðan er allt bærilegt að frjetta. Frá veturnóttum og fram yfir nýár var tíðin fremur óstillt og umhleypinga- »öm, en snjókomur fremur litlar. Þó setti niður nokkurn snjó á jólaföstuuni, en ekki tók svo fyrir jörð, að eigi mætti beita fje og hestum. Um jólin og fram yfir nýárið var lakast til haga, ekki fyrir snjódýpi heldur fyrir svell í rótinni. 4. þ. m. gekk í ofsa sunn- an rigningu og hláku, svo jörð varð auð að mestu, og síðan hefir að kaila roá verið hláka nótt og dag, að eins komið þrisvar frostdagar, 1 og 2 í hvert skipti. Iiefir því lítið þurít að gefa, og kemur þaö sjer vel, því hey- föngin frá sumrinu voru fremur rýr hjá flesturn og hey þar að auki ekki vel verkuð sökum rigningamia, sem hjer voru óvenjuiega tíðar. Ilugir manna eru heldur að lifna við aptur svo sem í búnaðarskólamál- inu (á Eyðum), í þvf að halda út blaði, sem í ráði er að byrji í vor, í sfldar- veiðaútgerð f sambandi við Norðmenn, og hafa þegar nokkrir bændur lagt fje f það, hver hlutur er 1000 kr. Enn eru menn að hugsa um að fá eptirleiðis í löggilding til verzlunar á Lagarfljótsós, ef aðgrynni bannar eigi úti fyrir ósnum. Eptir sjálfu fljótinu má fara fullum fetum með báta upp að Brekku í Fljótsdal með því móti, að aðrir flutningsbátar sjeu fyrir neðan foss og aðrir fyrir ofan, Mundi slíkt veröa hjeraðinu til ómetanlegs hagn- aðar í einu sem öllu, er að landbúnaði lýtur. Frjetlir íítlendar. (Eptir ísafold.) Frjettir er bárust með síðasta póst- skipi voru litlar, en hvervetna var frið samlegt sem stendur. ’|>að sem mest þótti tíðindum sæta var fráfall Gambetta hins mikla þjóðskörungs Frakka; hann dó eptir stutta legu á nýársnótt í blóma aldurs síns 44 ára gamall; æfiágrip hans er í almanaki J>jóðvinafjelagsins fyrir þetta ár. I Egiptalandi voru Englend- ingar að festa vald Kedivans, skipa mál- um landsins og koma lagi á eptir ófrið- inn, stóð Dufferin lávarður fyrir þeim störfum. I byrjun desembermánaðar fjell dómur í málum Arabis; var hann og ymsir af fylgismönnum hans dæmdur til útlegðar og er mælt að honum sje bústaður ætlaður á eyjunni Ceylon við Indland og allmikið fje til uppeldis; þyk- ir norðurálfumönnum þeim, er eiga um sárt að binda fyrir manndrápin og of- sóknirnar í Egiptalandi, dómurinn ærið vægur og segja hætt við, að slíkur dóm- ur muni eigi fæla aðra frá að taka upp lík ráð gagnvart norðurálfumönnum ef svo ber undir. Við rannsókn málsins hafði það komið fram að Arabi hafði verið örfaður tii stórræða sinna úr yms- um áttum og þar á meðal af mönnum er standa í nánu sambandi við soldán- inn í Miklagarði og jafnvel að soldán sjálfur hafi verið í vitorði um ráð hans. í írlandi þykir nú vera minna farið að bera á óspektum heldur enn að undan- förnu, enda hafa stóreignarmennirnir ensku á margan veg sýnt tilslakanir við leiguliða sína. í Noregi höfðu kosning- ar til stórþingsins gengið svo að vinstri menn hafa enn meiri atkvæðafjölda á þinginu enn áður. I Danmörku hafði það sem af var vetrinum verið kalt og frostasamt. í Bandaríkjunum í Ame- ríku hafa kosningar gengið mjög í vil ríkjavaldsmönnum (demokrötum). Embœttispyóf í lögum hefir hr. Hall- dór Daníelsson (frá Hólmum Halldórs- sonar) tekið með 1. einkunn. Hr. Eiríkur Magnússon M. A. bóka- vörður í C ambridge hefir verið sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar. Jón Jónsson, landritari og þiugmað- ur Skagfirðinga audaðist snögglega 4. janúar. Akureyri 2. marz. Veðurátta var mjög umhleypinga. söm allan febr., ymist hlánaði eða fristi eða snjóaði. Tvo næstliðna daga var bezta hláka, svo snjó og klaka tók mjög. Húsbruni. 20. dag f. m. brann í Nesi íHöfðu- hverfi timhurhús, byggt fyrir þrem ár- um. Eldurinn hafði kviknað í mæni hússins af neistum úr ofnpípu, sem þó var 9 álna löng frá ofninum og 4 hnje á. Veður var ákaflega hvasst, og varð ekki eldsins vart fyrri enn hann var orðinn óslökkvandi í slíkum ofsastormi. Öllu varð bjargað sem var niðri í hús- inu og svo í kjallara undir því, en að eins litlu af því sem var á loptinu. Brann þar talsvert af ymsu tægi, svo sem borðviður, ull, færi, rúmfatnaður og bezti klæðnaður nokkurra heimamanna, einnig nokkuð af matföngum, fiski, hangi- kjöti, mjöli og ymislegt fieira. Auglýsingar. Embættaveitingar: Landlœknisenibcettið er veitt settum landlækni hr. G. Schierbeck. Skaptafellssýsla er veitt settum sýslu- manni hr. Sigurði Olafssyni. Breiðabólstaðar prestakall á Skógar- strönd er veitt kand. Magnúsi Hélgasyni (frá Birtingaholti Magnússonar). „Þess ber að geta, sem gert er“. Fegar jeg árið 1881 varð fyrir því tilíinnanlega tjóni að missa heils- una, og þar af leiðandi heíði ekki getað sjeð mjer og mínuin fyrir sóma- samlegu uppeldi, án þess að þiggja opinberan sveitarstyrk. En þá urðu margir sveitungar mínir ásamt fleirum, fyrir tilmæli herra hreppst. II. Ó. Briem, til að styrkja mig ineð ríkuleg- um gjöfum. Björn Antoníusson bóndi á Flugu- stöðuin 10 kr. , Sigurður Björnsson bóndi á Þvottá 6 kr., Stefán Guðinunds- sori yngism. á Sturmýri 8 kr., Guð-m. Eyúlfsson samast. 6 kr., Jón Antoníus- son Markúsarseli 6 kr., Antoníus Anto- níusson Tunguhlíð 5 kr., Siguröur Jónsson llærukollsnesi 4 kr., Gísli Sig- uiðsson Múla 10 kr., Sæmundur Sig- urðsson Múla 5 kr., Sigfús Jónsson Hvannavöllum 4 kr, Sigurður Ás- mundsson Geithellum 6 kr., Kristján Jónsson Hnaukum 4 kr, Sigurður Jóns- son samast. 4 kr., Brynjúlfur Jónsson sainast. 6 kr., Guðmundur Halldórsson samast. 1,50 a., Sigríður Þórðardóttir samast. 2 kr., Þorsteinn Jónsson samast. lamb og 6 kr., Guðinundur Jónsson sainastaðar 6 kr. Jón Árnason Múla 10 kr., Árni Antoníusson samast. 8 kr., Lúðvík Ólafsson samast. 3 kr., Sigurður Sæmuudsson samast. 6 kr., Kristín

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.