Fróði - 21.02.1884, Page 4

Fróði - 21.02.1884, Page 4
124. bl. I B Ó Ð 1. 1884. 46 En hvar bafa raenn nú peninga og ávísanir til að borga með? Jó, sjálfsagt þarf að athuga það. Fyrst ætla jeg sje allmikið fje í landsjóði, sem ætlað er til að lána sveitabændum landsins til að auka bústofn sinn; ætla jeg að þeir íái þaö ekki gert á hagan- legri hátt enn þann, að fá peninga til Lagfelldra vörukaupa, og losast fyrir það við að láta sauðfje í verzlanskuldir að hausti; munu fá einir sveitamenn geta notað sjer þ tta ráð. Sparisjóður er og í Höfðahverfi, Abyrgðarsjóður á Akureyri og sparisjóður á Siglufirði, munu einhverjir geta fengið vörusekks verð úr þeim hvorum um sig. Nokkr- ir Þingeyingar munu og eiga einhverj- ar peningaleifar frá sauðasölutíð í haust er var. Sjávarbændur út með Eyjafirði veit jeg beinlínis um að eiga margur hver svo hundruðum króna skiptir inni í verzlanunum á Akureyri, og geta þeir að vonum fengið peninga nær sem þeir vilja cður þá ígildi þeirra, ávísanir, upp á útlend verzl- unarhús, sem hver kaupandi og selj- andi getur notað. Veit jeg og til, aö hinn norski kaupmaður í Hrísey hefir haft við orð að byrja í vor að kaupa fisk, jafnvel móti peningum eða ávís- unum. Fengju Eyfirðingar peninga fyr- ir saltfisk sinn í vor og sumar, myndi ymsum þeirra ekki verða ráðfátt til vörukaupa mót peningum. Það veit nú annars hver bezt, hvað í sínum garði gerist, og jeg ætla nú ekki að gefa fleiri ávísanir upp á náungann, með því þær munu ekki allar óbrigð ular. Að eins vil jeg bæta því við, að hvetja menn til að taka ráð í tíma, slá sjer þegar saman í sveitunum til að tala um og síðan að koma á stór- kaupaverzlan, og að við hafa scm flest Ieyfileg ráð til að gera sig færa um að sæta þeim. Norðurþingeyingnm, eða þeim, sem sækja verlan á Ilúsavík, ætla jeg að ekki þurfi svo mjög hugar að fríja í þessu efni, því þeir hafa þegar reynt til muna að fá útlenda- vöru mót frestlausri borgun, og hafa jafnvel flestum fremur fengið vöru svo að lftill kostnaður heíir áfallið, enda eiga þeir nú hús, og hafa þegar feng- ið æfing og reynslu í því að fá vöru bæði frá Englandi og Danmörku, og senda jafnframt vöru sína þangaö, og munu þeir víst ekki hætta við svo búið. Ritað í janúar 1884. Þingeyingur. Frjettir isiiilendar. Reykjavík 9. janúar. Tíðin hjer á Suðurlandi hefir ver- ið mjög umhleypingasöm í vetur, þó hefir verið fremur frostalítið. Um jólin voru hjer í bænum útsynningshryðjur og bleytur, en þegar leið að nýárinu gerði bezta veður, milt og hægt, og svo viðraði einnig nokkra daga eptir nýárið. En nú fyrir tveimur dögum gerði hríð og frost, sem hefir haldizt 47 síðan. Bæöi í Suðurnesjum og Inn- nesjura er alveg aflalaust af sjó. Dugn- aðarmaður einn á Akranesi, Pjetur Hoffmann, hefir ráðizt f hákarlalegur og aflað vel. Um hátíðirnar var haldinn hjer samsöngur í dómkirkjunni, sem þeir stóðu fyrir söngkennari Steingrímur Johnsen og Björn Kristjánsson, sem áður var organisti á Akureyri. Söng- urinn íór hiö bezta fratn, einkum þótti Steingrímur syngja prýðisvel og Björn spila mætavel á orgel. — Engir gleði- Ieikir hafa verið haldnir hjer í vetur og verða ekki þenna veturinn, einungis vegna þess, að ekkert húsnæði er að fá til slíkrar skemmtunar nú sem stend- ur í sjálfum höfuðstaðnum. Hvað bókmenntir snertir, má geta þess, að helgidagaprjedikanir Helga biskups Thordersens eru komnar út að tilhlutun Kristjáns ó. Þorgríinssonar. Eins og kunnugt er, eru prjedikanir Pjeturs biskups uppgengnar, og mun Kristján einkum hafa viljað sæta því lagi. En nú hafa menn fyrir satt, að Pjetursprjedikanir verði prentaðar hið skjótasta að tilhlutun Siginundar Guð- mundssouar í hinni nýju afbragðs góöu prentsmiðju hans, sem hefir oll tæki til þess að gera bækur betur úr garði enn aðrar prentsmiðjur á landinu. Það er almælt, að svo bráðan bug eigi að vinda að prentuninni, að prjedikanirn- ar geti orðið fullbúnar á vori komanda. svo þær geíi keppt við Helgapostillu undir eins er ferðir og samgöngur liína. 11. janúar. Rjett í þessu berast mjer skelfilegar frjettir. Um seinustu lielgi lögðu 6 skip í hákarlalegu, 1 af Seltjarnarnesi, 1 af Álptanesi, 1 úr Leiru og 3 af Akranesi. Eptir hclgina gerði hjer mesta voðaveður, fádæma storin og hríð. Skipið hjeðan af Sel- tjarnarnesinu náði landi áður enn of- viðrið rak á, en hin urðu öll fyrir hríð- inni og storininum. Vindur stóð al suðvestri. Eitt skipið af Akranesi hefir komizt af. Pað hleypti upp á líf og dauða undan og náði með naumindum landi í Melasveit við Borgarfjörð. Peg- ar skipið kom í brimgarðinn við land- ið, sáu skipverjar hvar þrjú skip fjelaga þeirra voru að veltast á hvolfi og bylt- ast í brimgarðinum. Er þá mælt, að íormanninum hafi fallizt svo hugur, að hann hafi hiaupið undan stýrinu, en það orðið skipverjura til lífs, að einn háset- inn stökk sem kólfi væri skotið undir stýrið, og stýrði gegnum brimgarðinn, og skipsleifar fjelaganna að landi. Pessi 3 skip, sem þyrluðust til og frá á hvolfi í brimgarðinum voru 2 af Akranesi, formenn Pjetur Hoffmann kaupmaður, ungur dugnaðarmaður og Pórður bóndi á Stóra-Háteigi, einnig mesta ötuhnenni. Hið þriðja telja menn víst að verið hafi Álptanesskipið; formaður þess var Pórður bóndi á Hliði, sein er inesti inannskaði að. Hásetar hans voru nær allir ungir efnisbændur á nesinu. Um Leiruskipið vita inenn ekkert enn, en flestir telja það af. 48 Stokkeyri í Arnessýslu 1. janúar: Hjeðan er ekki að frjetta neina góða tíðina fram á jólaföstu, en síðan hafa verið optast útsynningar, og um jólin allmikil ofsaveður og allt til þessa dags, þó ekki hafi oröið tjón að. Fiskist ekki hjer því fyr í vetur, verður víst hart manna á milli, því fólki bregöur við skurðinn, þar sem sumir við sjóinn, er ekki eiga fje, hafa enga skepnu blóðgað, því allstaðar heyjaðist vel og var svo sett á það, sem hver þurfti ekki því nauðsynlegar að skera handa heiraili sínu, en ef einhver gat misst kind, ljet hann hana á markað til útlendinga, og af því fiskurinn var í háu verði í sumar, Ijetu allir þá meira enn þeir máttu í kaup- staðinn af honum. Ekki ofmötumst við heldur af gjafa korninu, því sumir hreppar fá lítið og sumir t. d. Stokk- eyrarhreppur ekki neitt, og hafa þó þeir sem ekkert gátu skorið, en þeir eru helst í Stokkeyrarhrepp, þörf á að fá einu sinni út á askinn sinn. 17. dag f. m. andsðist að Litla- hrauni Jóhanna Andrea Guðmundsens, kona kamineráðs Pórðar Guðmundsens, fyrrum sýslumanns hjer f sýslu, hafði hún Jegið rúmföst síðan í sláttarlok. — J>ar eð pað virðist hafa vakið all- mikið hneyxli hjá sumum bæjarbúum, að tveim kvennmönnum hafi verið neituð innganga í fjelagið „Good Templars11, og þótt ekki sje skylda mín að gera öðr- um grein fyrir gjörðum fjelagsins enn stór- deild þeirri, sem deild vor stendur undir, vil jeg þó lýsa hjer yfir, svo að rjettsýn- ir menn geti sjeð, að ekkert ranglæti hafi átt sjer stað : 1. Að öðrum kvennmanninum hafi alls ekki verið neituð innganga. (Sá sem gerast vill meðlimur deildarinnar, verður 6—8 dögum áður enn fundur er haldinn, að biðja einhvern fjelagsmann að sækja skrifiega um inngöngu fyrir sig á venju- legum fundi samanber aðallög fjelagsins Art. III, 52.) 2. Að hinn kvennmaðurinn var keypt- ur, til að biðjast inngöngu, af manni sem er illviljaður fjelagi voru. 3. Að aðallögum fjelagsins og auka- ögum deildarinnar sje í engu tilliti raskað. Akureyri 20. febr. 1884. Asgeir p. Sigurðsson. V. Æ. T: — Jeg undirskrifaður hefi ásett mjer að láta halda þiljuskipinu „Ægir“ á þorskveiðar á næstkomanda vori frá þeim tíma að veðrátta leyfir eða vertíð byrjar, hjer um bil 1. apríl og þangað til 13 vikur af sumri. þeir sem vilja ráða sig, sem háset- ar á tjeðu skipi, geta snúið sjer til mín hið allra fyrsta, eða til herra Sigurðar Sigurðssonar (Húnvetnings) á Akureyri, sem einnig getur samið við þá og gefið nægilegar upplýsingar um með hvaða kjörum menn verða ráðnir. Oddeyri 12. febr. 1884. J. V. Havsteen. — Við Gránufjelags verzlan á Odd- cyri fæst gott maismjöl. 100 pd. með poka, fyrir 9 kr. 50 a. 250 — — — — 22 — 50 - ÚCgefandi og prentari : Björn Jónssou,

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.