Suðri - 30.11.1885, Side 3
143
ur 2. p, m. á Amalíuborg útgefið op.
ið bréf svo hljóðandi: J>ar eð alþingi
hefur fallizt á frumvarp til stjórnar-
skipunarlaga um hin sérstaklegu mál-
efni íslands, sem fer fram á breyting
á stjórnarskrá 5. jan. 1874 um þessi
málefni, pá verður samkvæmt 61. gr.
í lögum þessum að leysa upp alþingi
það sem nú er. Eyrir því bjóðum vér
og skipum fyrir á þessa leið:
Alþíngi, sem nú er, er leyst upp.
Eptir þessu eiga allir hlutaðeigend-
ur sér þegnlega að hegða.
Nýjar Alþingiskosniugar. Sama
dag hefur konungur í öðru opnu bréfi
fyiirskipað nýjar alþingiskosningar á
tímabilinu frá 1—10. júnímán. 1886
að báðuin dögum meðtöldum.
Aukaþing 28. júlí 1886. í hinu
sama opna bréíi hefur konungur stefnt
alþingi sarnan til aukafundar 28. júlí
1886, er eigi skuli standa lengur en 1
mánuð.
Konungleg auglýsing til íslend-
inga. Enn hefur konungur sama dag
gefið út auglýsingu til íslendinga um
stjórnarskrármálið og skal auglýsingin
verða prentuð í næsta blaði
ísafjarðarsýsla og bæjarfógetaem-
bættið á ísafirði er veitt 6. þ. m.
settum sýslumanni og bæjarfógeta,
cand. juris Shúla Thoroddseu.
Forstiiðumannsemhættiðvið prestft-
skólann er veitt 1. þ. m. prestaskóla-
kennara Helga Hálfdánarsyni. (Auk
hans sótti séra Jónas Guðmundsson á
Staðarhrauui).
Fensmark náðaður. Með konungs-
úrskurði 6. þ. m. er hegniugu þeirri,
er Fensmark var dærndur í við lands-
yfirréttinn, 8 mánaða betrunarhús-
vinnu, breytt í 3 mánaða einfalt
fangelsi.
Um sama leyti sem Fensmark var
dærndur í þessa liegning við landsyfir-
réttinn, var þar líka dæmt mann-
tötur úr Árnessýslu í sömu hegning, 8
mánaða betrunarhúsvinnu, fyrir að hafa
stolið einu lambi og þó var umtalsmál
um, livort þessi mann-aumingi væri
mcð öllum mjalla.
Embættismaðurinn með 27000 kr.
sjóðþurð sleppur með 3 mánaða eín-
falt fangelsi!
En auminginn, sem hefur stolið
einni lambkreistu, fær 8 mánaða bet-
runarhúsvinnu!
Skrifað er frá Kaupmannahöfn, að
landshöfðinginn hafi efdci lagt með því,
að Fensmarlc yrði náðaður, en aptur
á móti muni landsyfirrétturinn hafa
gefið náðarbón Fensmarks góð með-
mæli. Hvort sem ráðherrann npp á
eigið cindæmi eða með meðmælum
landsyfirréttarins hefur ráðið konungi
til að náða Fensmark, þá mun það
sannast áður lýkur, að þessi náðun
á Fensmark var frá landsstjórnarinnar
eigin sjónarmiði lang óhyggilegasta
bragðið, sem gripið var til í þessu
Fensmarksmáli, eins og nú stóð á.
Brauð veitt. Landshöfðingi veitti
Bergsstaði í Húnavatnsprófastsdæmi
19. þ. m. séra Brynjólfi Jónssyni á
Hofi í Álftafirði.
Sýslanir við landshankann. Eptir
tillögum bankastjóranna veitti lands-
höfðingi 27. þ. m. bófcarasýslanina
við hinn fyrirhugaða landsbanka Sig-
hvati Bjarnasyni skrifara og féliirð-
issýslanina við sömu stofnun Halldóri
Jónssyni prestaskóiakandídat.
Manualát. Dr. med. Jóu Constant
Finsen, stiptislæknir á Lálandi og
Falstri, andaðist 12. f. m., 58 ára
gamall. Hann var sonur Ólafs (Hann-
essonar biskups) Finsens, assessors við
landsyfirréttinn,bróðir þeirra Yilhjálms
Finsens hæstaréttarassessors, Hannesar
Finsens stiptamtsmanns í Rípum og
Ó. Finsens póstmeistara í Reykjavík.
Hann ólst upp hjá Árna biskupi Helga-
syni í Görðum, sem giptur var föður-
systur hans, Sigríði Hannesdóttur, út-
skrifaðist úr skóla 1848 og sigldi til
háskólans. Embættispróf í læknisfræði
tók hann 1855, síðan varð hann hér-
aðslæknir á Akureyri þangað til 1867
að hann fluttist til Danmerkur og varð
héraðslæknir í Örsted á Jótlandi, en
stiptislæknir á Lálandi og Falstri varð
hann 4. júní 1875. Hann dispúteraði
fyrir doktorsnafnbót við háskólann
4. nóvember 1874. Hann var giptur
danskri konu og dó barnlaus. Dr.
Finsen var vinsæll maður, höfð-
inglyndur og mesti merkislæknir.
— Hinn 16. þ. m. andaðist hér í
bænum eptir stutta legu Hannes
(Steingrímsson biskups) Johnsen, á 7.
ári um sjötugt. Hann fæddist á
Lambastöðum á Álptanesi 22. maí
1809. Faðir hans var þá skólameist-
ari á Bessastöðum, giptur Valgerði
Jónsdóttur, ekkju Hannesar Finnsson-
ar biskups. Hannes sál. útskrifaðist
frá Árna biskupi Helgasyni í Görðum
1830. Síðan sigldi hann til liáskól-
ans og tók að stunda læknisfræði, en
hætti fyrir sjúkdóms sakir öllu bók-
námi og varð verzlunarstjóri hér 1
Reykjavík fáein ár, en byrjaði síðan
sjálfur verzlun og var kaupmaður nær
því í 50 ár. Langa liríð sat hann í
bæjarstjórn Reykjavíkur og var sátta-
semjari í meira en 20 ár. Árið 1835
kvæntist hann fröken Sigríði Hansen,
er andaðist mörgum árum á undan
honum. J>au hjón áttu 8 börn og
lifa af þeim að eins þrjú: Ólafur
Johnsen yfirkennari í Odense, frú
Sofí'ía Thorsteinson (kona landfógetans)
og Steingrímur Johnsen cand. theol.
og kaupmaður. Hannes sál. þótti
manna skemmtilegastur í umgengni,
glaðvær og gamansamur, var hugljúfi
hvers manns og öðlingur að mann-
kostuin. — Hinn 12. þ. m. andaðist
hér í Reykjavík húsfrú Guðný Eiu-
arsdóttir, kona séra Sveins Skúlasonar
á Kirkjubæ í Hróarstungu, alsystir
H. E. Helgesens skólastjóra. Hún
fæddist 23. sept. 1828. Húsfrú Guð-
ný var ágætiskona og hin mikilhæf-
asta. — Hinn 24. þ. m. varð fáheyrt
slys hér í bænum. Bóndi austan úr
ölvesi, Gottskálk nokkur Eiuarsson
frá Sogni, bað samferðamann sinn um
í staupinu inni í búð einni hér í bæn-
um. þessi samferðamaður vísaði hon-
um á brennivínsflösku í ferðapoka
sínum. Gottskálk heitinn fór svo í
þennan poka og fann þar flösku, sem
hann hélt vera brennivínsflöskuna og
saup á. En til allrar ógæfu var þetta
karbólsýruflaska og beið maðurinn bana
af sopanum eptir tæpan klukkutíma.
|>að mun mega ganga að því vísu,
að yfirvöldin láti rannsaka þetta mál.
Sérstaklega virðist það mjög ískyggi-
legt, ef satt er það er sagt er, að
þessi karbólsýruflaska hafi verið án
yfirbands og án flöskumiða, (etikette);
það er ótrúlegt, að lyfjabúðum sé leyfi-
legt að láta úti slíkt eitur sem kar-
bólsýra er, án þess að láta miða á
slíka flösku og binda yfir hana. |>að
virðist liggja í augum uppi, að það
hljóti að baka viðkomandi lyfjabúðum
ábyrgð, ef eigi er gætt allrar varúðar,
þegar eitur er látið úti.
Árferði. Hér syðra hefur nú stað-
ið blíðviðri og þíðviðri um hríð. Er
vonandi, að þessar þíður hafi náð
norður og austur, því Norðurland og
Austurland munu mjög hafa þurft
þess við. — Matvöruskortur 1 kaup-
stöðum fréttist alstaðar að; þó er verst
látið af matvöruleysinu vestra. J>ar
er sagt að alls engin matvara sé til
í nokkrum kaupstað nema 150 tunnur,
sem Jón Guðmundsson kaupmaður í
Flatey fekk núna með póstskipinu og
sendi fiskiskip sitt eptir hingað suður.
(Aðsent)
Bjarnabænir
séra Bjarna sál. Arngrímssonar prests
á Melum eru nú nýlega gefnar út af
Einari þórðarsyni prentara. Bæuir
þessar hafa ætíð verið í miklu afhaldi,
er sjá má af því, að þetta mun vera
10. útgáfa þeirra frá þeim tíma, er
þær voru fyrst prentaðar, 1798, og
mun því mega telja víst, að þær verði
kærkomnar alþýðu manna hér á landi
nú sein fyrri.
Húslestra vinur.
Anglýsingar.
Eggert Tlieodór Jóuasseu
bœjarfógeti í Reykjavík
Gjörir kunnugt, að Klemens bóndi
pórðarson í StapaJcoti í Oullbringu-
sýslu hefur tjáð mér, að fyrir sér
hafi glatazt Jilutabréf í hinu sunn-