Suðri - 09.11.1886, Blaðsíða 4

Suðri - 09.11.1886, Blaðsíða 4
116 Reykjavík 9. nóx.1886. Prestar og prestaköll. Kvíabekk í Eyjafjarðarprófastsdæmi veitti lands- höfðingi 30. f. m. prestaskólakandídat Jóni Jónssyni. Prestvígsla. Sunnudaginn 7. p. m., 20. s. e. Trin., vígði biskup landsins, Dr. theol. Pétur Pétursson, ofannefnd- an kandídat Jón Jónsson til Kvía- bekkjarprestakalls. Hallærislán. Landshöfðingi heíir veitt Gullbringu- og Kjósarsýslu 1500 kr. hallærislán handa Vatnsleysu- strandarhreppi. Guí'uskipið Wergelaud kom hingað 1. p. m. frá Newcastle með vörur til Lauritzen & Co. Fór héðan með fé og hesta í nótt. Siiunlenzka síldveiðaílelagið hélt fund hér í bænum 30. f. m. Var afráðið að slíta félaginu, enda er nú áætlað að hver hlutur (upphaflega 100 kr.) sé nú kominn niður í 40 kr. Skiptapi. Laugardaginn 30. f. m. fórst skip af Akranesi með 7 mönnum sem allir drukknuðu. Skipið fórst á uppsiglingu úr fiskiróðri. sökk við boða nálægt Elösum, sem kallað er, skammt undan landi. fessir 7 menn voru efnilegir menn, ungir og ókvæntir all- ir nema einn, Jón Helgason, sem lætur eptir sig konu og tvö börn. Eormaður var Halldór Erlendsson frá Teigi. Hinir voru, auk Jóns Helga- sonar, Ólafur Magnússon vinnumaður frá Efra-Skarði í Hvalfjarðarstrandar- hreppi, og fjórir bræður: Sæmundur Vilmundur, Guðmundur og Sigurður Guðmundarsynir Oddssonar frá Litla- landi og bræður Odds barnakennara á Skipaskaga. Tíðarfar allstaðar frá að frétta gott. Afli góður hjer sunnanlands, en afla- aust bæði af porski og síld norðan og austan. AxLglýsingax*. Proclama. Samkvœmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janíiar 1861 er hér með skorað á alla þá, er til skulda telja í dánarbúi Jóns sál Magnússonar frá Suðurkoti i Vatns- leysustrandarhreppi, er andaðist 26. j. m., að lýsa kröfum sínum og sanna þcer fyrir skiptaráðandanum í ofangreindu búi inuan 6 mánaða frá siðustu birtingu auglýsingar þessarar. Skrifst. Kjósar-og Gullbringusýslul2.okt. 1886. Franz Siemsen 188] (settur). Proclama. Samkvcemt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér með skorað á alla þá, er til skulda telja i dánarbúi Arna sál. Jónssonar í Hábæ í Vatnsleysustrand- arhreppi, er andaðist hinn 29.. á- gúst þ. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þœr fyrir skiptaráðandan- um í ofangreindu búi innan 6 mán- aða frá siðustu birtingu auglýsing- ar þessarar. Skrifst. Kjósar-og Gullbringusýslu 12.okt. 1886 Franz Siemsen (settur). [189 Proclama. Samkvœmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér með skorað á alla þá, er til skulda télja í dánarbúi fiorsteins sál Halldórssonar, er andaðist liinn 5. júní þ. á. á Bakka í Garðahreppi, að lýsa kröfum sínwn og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í ofan- greindu búi innan 6 mánaða frá sáðustu bírtíngu auglýsingar þess- arar. Skrifst. Kjósar-ogGullbringusýslu 12.okt. 1886. Franz Siemseu (settur). [190 Proclama. Samkv. lögum 12. apríl 1878 og o. br. 4. janúar 1861 er hér með skorað á alla þá, sem til skulda telja í þrotabúi Sigurðar Andréssonar, er bjó á Litlahólmi í Leiru í Gullbringu- sýslu, að gefa sig fram og sanna kröfur sínar innan 6 mánaða frá birtingu auglýsingar þessarar fyrir undirrituðum skiptaráðanda í téðu búi. Skrifst. Kjósar- og Gullbr.s. 6. nóvbr.m. 1886. Franz Siemsen settur. [191 Uppboðsauglýsing. Fóstudaginn 12. þ. m. kl. 11 f. m. verður opinbert uppboð sett oy hald- ið í verzlunarhúsum kaupm. S. John- sens lijer i bœnum, og verða þar séldir hæstbjóðendum ýmsir eqtirlátn- ir munir eptir kaupmann H. St. Johnsen, svo sem rúmfatnaður, sœng- urstœði, vandað skathol, skrifborð, kommóða, stólar ýmislegir, stunda- klukka, fatnaður o. fl. Ennfremur talsvert af bókum í ýmsum vísinda- greinum. Listi yfir bækurnar liggur til sýnís á skrifstofu bœjarfógetans. Söluskilmálar verða birtir á upp- boðsstaðnum áður en uppboðið byrjar. Bœjarfógetinn í Rvík 3. nóv. 1886. Halldór Paníelsson. [192. Proclama. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og o. br. 4. jan. 1861 er hér með skorað á alla þá, er til skulda telja í þrotabúi Eyjólfs sál. fiorsteinssonar frá Irafelli i Kjósarsýslu, að fram bera og sanna kröfur sínar innan 6 mánaða frá birtingu þessarar aug- lýsingar fyrir skiptaráðanda í þessu búi. Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.s. 29. okt. 1886. Franz Siemsen [193. settur. Verzlun B. H. Bjarnasonar íReyka- vík selur eptirfylgjandi vörutegundir mkið ódýrar móti peningum út í hönd: Matvörur. Syltutau. Bankabygg. Rips Klofnar baunir. Jarðarber. Grjón. Blommer. Do Sago. Ferskener. Hveitimjöl. Pickles. Haframjöl. Nuðlugrjón. Allskonar leirtau Makkaroni. svo sem: Eínt kex (matar). Bollapör. Do kaffibrauð. Diskar. Útl. smjör. Krukkur. ísl. Do. Könnur. Tólg. Brúsar. Saltað flesk. Steikaraföt. Gamal-ostur. Saltfiskur. Blikk ogjárnvörur, Saltskata. svo se^m: Kaffi. Eötur. Export-kaffi. Balar. Kandíssykur. Krukkur. Hvítas. höggvinn. Skálar. Púðursykur. Könnur. Sukkulaði. Olíubrúsar. 'Coccoo. Hnífar. Krydd. Skæri. Skóflur. Ingifer. Naglar o. fl. Allrahanda. Carry. Ýmislegt, Gérpulver. til dæmis: Thee (ágættegund). Segldúk. Citronolía. Lérept. Borðsalt. Sirz. Mustarð. Klútar. Niðursoðið. Lissur (enskar). Spil. Lax. Vasaúr. Kjöt. Reyktóbak (fieiri Humar. sortir). Sardínur. Rjól o. fl. o. fi. Ostrur. Auk pess er von nú með «Lauru» pann 20. nóv. ýmislegs fleira, sem selzt með góðu verði. Reykjavík 27. október 1886. 194.] B. H. B^arnason. Til leigu óskast 3—4 góð íbúðarherbergi með eldhúsi. Lysthafendur eru beðnir að snúa sér annaðhvort munnlega eða bréfiega til ritstjóra pessa blaðs, sem gefur nákvæmari upplýsingar. [195 Barnalærdómskver Helga Hálf- dánarsonar fæst hjá póstmeistara Ó. Finsen og bóksala Kr. Ó. jporgríms- syni og kostar 60 a. í bandi. 196] Gyldendals bókaverzlun. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Pálsson. Prentsmiðja ísafoldar.

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.