Austri - 19.01.1884, Blaðsíða 4

Austri - 19.01.1884, Blaðsíða 4
AUSTÍÍI. [nr. B. 1. árg. 34 byggja skothús og liggja á peim. Nú eru menn víðast hættir pessari veiði- aðferð. sem áður var altíð. Mundi hún pó viða að góðu gagni koma, einkum við sjó. par sem mest er af tóum og pær ganga iðulega um fjör- urnar. Skothús má svo byggja að grafin er grytja í liól, svo stór að einn maður með byssu komist velfyrirpar niðri. Er svo hlaðið innan í gryfjuna, og rept yfir en gat látið vera á mæni, að maður komist niður um, og erpað byrgt með reiðingstorfu. |>verspíta liggur um húsið, 1 eða 2, par á livílir byssan, en op hennar liggur út um gat á kofanum, er sé svo vítt að sjá megi út með, nokkra faðma burtu. Er snjóköggull, ekki stærri en x/2 fet á hvern veg látinn 3 til 6 faðma frá byrginu. Að pví búnu er byssunni miðað á köggulinn og hún bundin í poim skorðum er hún hafa parf, til pess að skotið liitti markið. Má hafa nagla í spítunum sinn hvoru megin við byssuna, og binda svo með segl- garnsspotta að ekki raskist, pótt komið verði við hana. J>ar næst er smá- brytjað agn borið báðum megin við köggulinn, peirn megin er veit að og frá skotkúsinu. Er svo köggullinn burtu tekinn. þegar skotmaður fer í byrgi sitt, skal annar fara með hon- um; og hafa með sér síðhempu. J>eg- ar búið er að egna og skotmaður er kominn í byrgi, skal hinn l\alda heirn leiðis og bera með sér siðhempu á staf pannig að líkast sé að tveiy menn gangi sapililiða. Heutast er að skot- agnið sé borið út á snjó, að betur megi glöggva ref, er hann kemuy í dimmu að agninu. (Niðurl. næst). MANNALÁT. — Sannfrétt er að Jón bóndi Jóhann- esson í Ejallseli í Fellum er dáinn • var hann dugandi búmaður og sóma* maður í sveit sinni. — Einnig er látinn Anna Jóns- dóttir í Hrafnsgerði, kona Andrésar Kjerúlfs; var hún merkiskona, elskuð og virt af öllum er liana pckktu. F li É T T 111. Ný lög. Staðfest af konungi 8. okt. 1883: [Framh. frá nr. 1.] 7. Fjáraukalög fyrir 1882 og 1883. 8. Lög um breyting á tilskipun- 15. marz 1861 um vegina á Islandi. 9. Lög um bæjarstjórn 4 Akur- eyri. 10. Lög nm bæjarstjórn í ísa- fjarðarkaupstað. Staðfest af konungi 8. nóv. 1883: 11. Fjárlög fyrir árin 1884 og 1885. 12. Fjáraukalög fyrir árin 1880 og 1881. 13. Lög um að stjórninni veitist heimild til að selja nokkrar pjóðjarðir. 14. Lög um að meta til dýrleika nokkrar jarðir í Itangárvallasýslu. 15. Lög um að stofna slökkvilið á ísafirði. 16. Lög um linun í skatti á ábúð og afnotum jarða og á lausafé. („í skatt á ábúð og afnotum jarða og á lausafé, samkvæmt lögum 14. desbr. 1877 skal á manntalspingum 1884 að- eins greiða 7» álnar 4 landsvisu af jarðarhundraði hverju og að eins V, alin á landsvísu af lausafjárhnndr- aði liverju11.) 17. Lög um löggilding nýrra verzl- unarstaða. 18. Lög um breyting á 2. og 3. grein laga 11. febr. 1876 um stofnun læknaskóla í Reykjavík. 19. Lög um afnám konungsúr- skurðar 20 jan. 1841. 20. Lög um breyting á 7. gr. laga um laun sýslumanna og bæjarfógeta, 14. deshr. 1877. * * TJt af fyrirspurn frá biskupi og landshöfðingja um pað, hvoit að prest- pjónusta sira Lbrusar Halldórssonar við hina svo nefndu utanpjóðkyrkju- menn í Hólmaprestakalli væri lögheimil og livort honum væri lieimilt að nota kirkjugarð við embættisverk, o. s. frv. hefir stjórnarherrann svarað svo 8. nóv. að Reyðfirðingum verði að vísu sam- kvæmt stjórnarskránni eigi bannað að láta sira Lárus framkvæma prestverk fyrir sig; en hins vegar geti peir eigikomizt hjá að greiða sóknarprest- inum lögboðin gjöld, sem ná megi, ef til kemur, með lögsókn, enda sé sira Lárusi óheímilt að pota Hólmakyrkju eða áhöld hennar við guðspjónustugjörð sina. J> ar að auki hafa prestverk sira Lárusar ekki pað borgaralegt gildi, sem slikum athöfnum fylgir að lögum, pegar prestar pjóðkyrkjunnar fram- kvæmapau. Hjónaband sé eigi löglegt, er sira Lárus gefur saman, börn slíkra hjóna séu óskilgetin og óarfgeng, og loks geti sira Lárus eigi hfjdið hinap skipuðu kyrkjubækur. svo að gilt sé. [Eptir „ísafold11] Sama veðurblíðan og að undan- förnu. I nýárshlákunni kom upp jörð par sem haglaust var áður. Póstur kom hér eigi fyr en 8. p. m. ag olli pví bið hans á Akureyri (í 14 daga) eptir sunnanpósti. Ollum aðalpóst- leiðum á landinu hefur nú verið skipt í tvær póstleiðir hverri. Akureyrar- og Seyðisfjarðarpóstarnir raætast á Grímsstöðum á Fjöllum; póstferðum einnig fjölgað. Fiskialii ágætur í Fáskrúðsfirði 12 36 pegar seinast fréttist, og nokkur' í Reyðarfirði; lítill eða enginn afii í norðurfjörðunum. Hinn 7. desbr. f, á. brann bærinn á Streitistekk i Breiðdal eða nokkuð af lionum. Hjónin, er par bjuggu, komust út ásamt 3 börnnm — fleira fólk var ekki í bænum —; fóru svq hjónin inn aptur til að bjarga kú, er inni var, en komu eigi út aptur; fundust pau bæði örend daginn eptir í göngunum, maðurinn fremstur og kýrin dauð ofan á lionum, en konan innst;hefur reykjarsvælan eflaustorðið peim að bana. Til pess að fyrirbyggja missagnir skal pess getið, að á einum bæ í Jökulsárhlíð liefur komið upp illkynjv aður óprifakláði í sauðfé og hafa 3 kindur frá næsta bæ, er lentu saman- við hið kláðasjúka fé, sýkzt af sama kvilla. Eru pegar gjörðar ráðstafanir til að varna útbreiðslu sýkinnar. — Nýjustu fréttir úr suðurfjörð- unum eru bær, að í Reyðarfirði er mikil síld (10—20 tn. á nóttu), en úr Fáskrúðsfirði mokafli af síld og fiski. Norðmenn par kváðu hafa fengið mikla veiði (1000 tn. ?) en ógreinilegt er um afla upphæð fleirra. — 1 ráði er, að fleiri héðan fari suður til að ná í pessa miklu björg. Auglýsiiigar- Skip til sölu. Jagt „Katrine“ 50 tons ekki gömul en sérlega vönduð, )iar á meðal er allur botn skips- ins úr mahqni og eirseymdur — Lysthafendur snúj sér annaðhvort til Björns bókbindara Jónssonar á Eskifirði oða kjpbmand A. Heino- sen Midvág, Fær0erne. A Yestdalseyri eru 1 eða 2 íbúðar- hús til sölu. Lysthafendur snúi sér tii Sigurðar verzlunarstj. Jónssonar á Vestdalseyri. Hjá S. verzlunarstj. Jónssyni á Yestdalseyri eru pessar bækur til sölu: Agrip af sögu íslands. Agrip af mannkynssögunni. r Aldaskrá. Alma- nak 1882-3-4. Andvari (flestir árgang- ar). Auðfræði.'Um hráðasóttina á Is- landi, Hýrafræði. Dómasafn. Félagsrit (flestir árgangar). Fréttir frá Islandi Fornaldarsagan. För pílagrímsins. Glúma og Ljósvetningasaga. Grýla. Yorhugvekjur P. Péturssonar. Heljar- slóðarorusta.JIðun. íslenzkt fonibréfa- safn (einstök hefti). íslensk garðyrkju- bók. Krókarefssaga. Agrip afErslevs landafræði. Ljóðmæli Bólu-Hjálmars. (Framh. i næata blaði) Afgreiðsla „Austra44 cr hjá Sig. faktor Jóussyni á Yestdalseyri. Ábyrgðarm. Páll Vigfússon eand. ph.il. Prentari: (Tuðni. Sigurðarson.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.