Fjallkonan - 10.07.1885, Page 1
13. BLAÐ.
REYKJAVÍK, 10. JÚLÍ
1885.
Þingvalla söngr.
Við lag eftir Helga Helgason.
Oxar við ána
árdags í ljóma
upp rísí þjóðlið og skipist í sveit,
skjótum upp fána,
skært lúðrar hljóma,
skundum á þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja,
fram, fram, bæði menn og fljóð,
tengjumst trygða böndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
Fjallhaukar skaka
flugvængi djarfa,
frána mót Ijósinu hvessa þeir sjón ;
þörf er að vaka,
þörf er að starfa
þjóð, sem að byggir ið ískalda Frón.
Fram, fram, o. s. frv.
Guð gaf oss vígi;
grand ógnar lýði,—
geigvænt er djúpið og bergveggur hár,
ódrengskap, lygi,
landsvika níði,
lævísi, tvídrægni hrindum í gjár.
Fram, fram o. s. frv.
Varinn sé stáli
viljinn, og þreytum
veginn, sem liggur að takmarki beinn,
hælumst í máli
minst eða skreytum,
mál vort er skýlaust og rétturinn hreinn.
Fram, fram, aldrei að víkja,
fram, fram, bæði menn og fljóð,
tengjumst trygðaböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
jSTGI\. 'J'H.
J»ingvallafundr var haldinn 27. f. m. svo sem til
var ætlazt. Var þar saman komið nokkuð á annað
hundrað manna. Jón alþm. Sigurðsson á Gautlöndum
setti fundinn kl. 10. Fulltrúar komu þar úr flest-
um héruðum landsins, 33 að tölu, og að auki all-
margir alþingisménn. A undan fundi var sungið
kvæði það eftir Stgr. Thorsteinsson, er hér er prentað
á undan.
Fundarstjóri var kosinn Björn Jónsson ritstjóri með'
24 atkv. Fulltrúar höfðu éinir atkvæðisrétt, enn allir
höfðu þar málfrelsi, þó svo, að fulltrúar gengu fyrir og
því næst þingmenn.
þar var rætt:
1. málið um endrskoðun stjórnarskrdrinnar, sém var
efst á dagskrá, og varð það niðrstaðan að
Fundrinn skorar á alþingi:
a, að Idta endrskoðun stjórnarskrárinnar ganga fyrir
öllum öðrum mdlum í sumar, nœst fjárlögunum, og leyfir
sér að fara fram d, að þ&ð leggi til grundvallar frum-
varp það, er alþingi samþykti og sendi konungi tit stað-
festingar 1873, meðal annars sérstaklega að því, er snert-
ir fyrirmœlin um jarl hér á Islandi, er skipi stjórnar-
herra með ábyrgð fyrir alþivgi; þó svo,
b, að alpingi komi saman d hverju ári;
c, að kosningaréttr til alþingis sé ekki bundinn við
neitt gjald til almennra þarfa; og
d, að sambandinu milli ríkis og kirkju skuli skipað
með lógum; ^
Og viðaukauppástungurnar:
e, að konungr (eða jarl) hafi takmarkað neitunarvald,
líkt því, sem á sér stað hjd Norðmönnum ;
f, að Island eigi rétt á að hafa sérstakan verzlunar-
fdna ;
g, að bcett sé inn í titil konungs orðunum: »yfir ts-
landú.
Fundarmenn greindi eigi á um nein veruleg atriði í
þessu máli nema um ið takmarkaða (frestandi) neit-
unarvald, er einn fundarmaðr gerði að viðaukatillögu
við álit nefndar þeirrar, er fundrinn kaus til að
íhuga máhð. Jón Ólafsson hélt fast fram inu frest-
anda neitunarvaldi, enn Benidikt Sveinsson o. fl. mæltu
á móti. En svo sem þegar er sagt, náði sú tillaga
fram að ganga.
2. um rétt fríkirkjumanna og skoraði fundrinn á
alþingi að skipa með lögum réttarstöðu þeirra manna,
er eigi eru í þjóðkyrkjunni.
3. um bankamálið og skorað á alþingi að leiða það
til lykta í sumar.
4. um afnám amtmannaembœtta og skorað á þingið
að halda því máli fastlega fram.
5. um mentunarmál alþýðu og skorað á þingið að
koma lögbundinni skipun og svo fullkominni sem unt
væri á uppfræðing alþýðu.
6. um aukning á valdi hreppsnefnda í fdtækramálum.
7. um kosning presta og
8. um landskóla og skorað á þingið að halda þeim
tveimr málum fram í sömu stefnu og á síðasta þingi.
9. um takmörkun á vínsölu og skorað á þingið að
gera sér alt far mn að afstýra ofnautn áfengra drykkja.
Alþillg'i var sett sem lög gera ráð fyrir 1. júlí á
hádegi. Hélt síra Hallgr. Sveineson, dómkyrkjuprestr
og konungkjörinn þingmaðr, ræðu í kyrkjunni. Alþing-