Fjallkonan - 04.02.1886, Page 1

Fjallkonan - 04.02.1886, Page 1
3. JBLAÐ. 1886. FJALUONM EEYKJAYÍK, 4. FEBKÚAR Ný lög. Konungr hefir 16. des f. á. staðfest þessi lög frá alþingi: Lög um lögtak og fjárnám án undanfarins dóms eða sáttar. L. um breyting á 46. gr. í tilskipun um sveitastjórn á íslandi 4. maí 1872. L. um selaskot á Breiðafirði. L. um breyting á lögum 17. marz 1882 um friðun fugla og hreindýra. L., er banna niðrskurð á hákarli í sjó milli Geirólfs- gnúps og Skagatáar frá 1. nóv. til 1. apríl, . og 8. jan. þ. á. hefir konungr staðfest: L. um hluttöku safnaða í veitingu brauða. L. um að stjórninni veitist heimild til að selja nokkr- ar þjóðjarðir. L. um lán úr viðlagasjóði til handa sýslufélögum til æðarvarpsræktar. Eru nú óstaðfest þessi sex lög frá síðasta alþingi auk stjórnarskrárinnar: um friðun hvala, um fiskiveiðar í landhelgi, um stofnum lagaskóla, um utanþjóðkirkjumenn, um fjárforræði þurfamanna, um friðun á laxi. Landshöfðingjaembættinu gegnir justitiarius Jón Pétrsson nú, með því svo er fyrirskipað, að yfirdómsfor- seti skuli ætíð gegna því í forföllum landshöfðingja eða ef hann er í fjarvist eða deyr. . Lanst prestsembætti. f- Saurbær á Hvalfjarðar- strönd. 1338.62. Frá brauðinu greiðast 300 kr. á ári í landssjóð og 138 kr. 62 au. til uppgj.prests. Prestrinn þar, síra þorvaldr Böðvarsson, hefir fengið lausn frá embætti. Styrkr Úr landssjóði. Eornleifafólagið hefir fengið 300 kr. styrk. Wimmers málfræði 120. Konsúll- Sigfús Bjarnarson kaupmaðr er viðrkendr af dönsku stjórninni sem sænsk-norskr konsúll á Isafirði. Alpýðuskólar. I gagnfræðaskólanum á Möðruvöllum eru nú 22 lærisveinar. Per þar nú alt spaklega fram.—I alþýðu- skóla Guðmundar Hjaltasonar á Akreyri eru 14 lærisveínar.— í alþýðuskólanum í Laufási (kennari þar er Priðbjörn Bjarn- arson) eru 10 lærisveinar. Ný rit. Stormrinn (The Tempest) eftir W. Shakspere. ís- lenzk þýðing eftir Eirík Magnússon, M. A., og frumtexti með skýringum. Rvík 188ö. TJm haröindi eítir Sæmund Eyjólfsson. 24bls. 8. (Sig. Kr.) Dalarósir, tvær óðsögur eftir Guðmund Hjaltason. Oddeyri 1885. 112bls. 8. (Höf. ætlar ágóðann til að stofna kvennaskólasjóð.) Sameiningin. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga, gefið út af inu ev-list. kirkjufél. ísl. í Vestrheimi. Ritstjóri (síra) Jón Bjarnason,—Vér leyfum oss að mæla fram með riti þessu, enda höfum vér nú ekkert kirkjulegt tímarit síðan „Kirkjutiðindin11 hættu. Ritið kostar 3 kr. hér á landi. Tíðarfar hart um alt land og fannkyngi mikið. Ovíða er enn talað um heyskort nema í stöku héruðum sunnanlands. Aflabrögð. I Garðsjó og Leiru var fyrir viku góðfiski, enn varð ei fisk-vart síðar. —■ Við ísafjarðardjúp allgóðr afli síðan um jól. Hafíshroði var kominn að Hornströndum um miðjan f. m. Póstskipið (Laura) kom til Rvikr 28. í. m. og er ófarið enn. Xiátinn er 15. f. m. Hilmar Finsen innanríkisráðgjafi og yfir- presídent í Khöfn, fyrrum landshöfðingi á íslandi. Jarðarför landshöfðingja Bergs Thorbergs fer fram 5. þ. m. Herra ritstjóri!—þér hafið í blaði yðar »Ejallk.« borið á borð fyrir lesendr blaðsins nokkurar greinir, er þér nefnið »palladóma« um okkr þingmenn er sátum á síðasta þingi. |>að sé fjarri mér að fást um það eða finna að því, þó okkr þingmönnum só veitt sórstök eftirtekt, og þó kveðinn sé upp óhlutdrægr dómr um framkomu okkar á þingi, því slíkt er ef til vill nauðsynlegt til að leiðbeina alþýðu við kosningar til þingsins framvegis. Enn þá sanngirniskröfu eigum við þingmenn, að þeir dómar, sem þannig eru uppkveðnir um oss í blöðunum og bornir á borð fyrir almenning sem algildr sannleiki, sóu svo réttir og sanngjarnir sem unt er, því annars leiða þeir alþýðu í villu. Eg skal ekkert um það segja, hvort palladómar yðar hafa þessi einkenni—um það munu verða tvískiftar meiningar—enn eg get ekki stillt mig um að benda yðr á, að mér virðist þér leggja ofmikla áherzlu á það í fram- komu okkar þingmanna á þingi, sem alls eigi er aðalat- riði, t. a. m. hvernig við erum í vaxtarlagi, andlitsfalli, á háralit o. s. frv., enn minna á hitt, hvernig við rækjum skyldur okkar sem þingmenn og hve þjóðhollir vér erum yfir höfuð að tala. þ>ví að mínu áliti varðar minna um það, að þingmaðrinn komi svo glæsilega fram á þingi— þó það sé gott með öðru góðu—enn meira um hitt, að hann sé skyldurækinn, samvizkusamr og sannr ættjarðar- vinr. |>etta eru þeir þingmannskostir, sem meira er í varið enn glæsilega framkomu, tnælsku og annað líkam- legt atgervi. Enn það var eigi tilgangr minn með línum þessum að knésetja yðr og kenna yðr að rita nýja palladóma. Nei, langt frá, heldr hugkvæmdist mér að nota þetta tækifæri og hnýta aftan við palladóma yðar einfaldlegri skoðun minni á þeirri stefnu og þeim anda, er nú ræðr mestu á þinginu, eins og þetta kemr mér fyrir hugarsjónir. Les- endr blaðs yðar mega álíta þetta hvort sem vera vill framhald palladómanna eða athugasemdir við þá. Mór stendr á sama. það var einni sagt á þingi—mig minnir það væri 1867 —að einhver ósýnilegr andi sveimaði yfir þinginu. þetta átti að vera sneið til Jóns heitins Sigurðssonar, svo sem að hans stefna og andi réði fyrir þinginu. þetta var heldr eigi alveg gripið úr lausu lofti, því að meðan Jóns Sigurðssonar naut við á þinginu, réði þar ávalt góðr og frjálsmannlegr andi, er hafði in beztu áhrif, ekki einung- is á flokksmenn hans, heldr einnig á hina sem stóðu utan við flokkinn. Allr heigulskapr, launráð og undir- ferli voru J. S. svo fjarlæg sem austrið er vestrinu. Hann bar vopn sín frjálsmannlega við hvern sem etja var, svo í ræðu sem riti, og svo vildi hann láta flokks- menn sína gera. Menn fóru ekki í felur hver fyrir öðr- um, og menn erfðu það ekki hver við annan, þótt nokk- ur meiningamunr kæmi fram í þingmálum. Nú er þessi góði, frjálsmannlegi andi þingsins á förum og andi smámunaseminnar, hégómans og eigingirninnar hefir tekið sér þar bólfestu. Eftir að Jóns Sigurssonar misti við, myndaðist flokkr í neðri deild þingsins, er hefir magnazt svo á seinni tíð, að svo má heita, að hann hafi ráðið lögum og lofum á síðustu þingum. það væri synd að segja, að þessi flokkr — ef slíku má það nafn gefa—hefði nokkurt pólitískt stefnumið, eins og þessleiðis

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.