Fjallkonan - 04.02.1886, Page 4
12
FJALLKO'NAN.
Eyjafjaröarsýslu, 8. jan. Hér er kominn upp pólitískr
flokkr eða félag; er það marlc og mið þeirra kumpána, að reyna
að telja alþýðu trú um, að það sé ekki nema barnaskapr að
hyggja á endrbót á stjórnarskránni og reyna að drepa því
máli niðr. Helztu forvigismenn þessa flokks eru þeir Jón
Hjaltalín og síra Arnljótr, er báðir munu nú bjóðast oss sem
þingmenn; Einar gamli í Nesi mun nú ekki framar gefa kost
á sér. Ýmsir fleiri bjóðast oss nú, svo sem GuðmundrHjalta-
son og Jón Jónson á Arnarvatni við Mývatn. Hann tel ég
gott þingmannsefni.
Strandasýslu, 12. jan. Veðrátt hörð, sífeldir umhleypingar,
oftast frostlítið (mest í vetr 14° K.). Haglaust alstaðar. Fiski-
afli brást hér árið sem leið, eins og nokkur undanfarin ár.
— 19. des. var hér ofviðri af suðaustri; rak þá i land á Reykjar-
firði;þiljubát, er Thorarensen kaupmaðr átti, og braut í spón.
Árnessýslu, 22. janúar Síðan nýár hefir hér verið harð-
inda-tíð og umhleypingar með spilli-blotum, svo nú er alger-
lega haglaust bæði hér og í Rangárvallasýslu. Frost hafa og
verið talsverð öðru hverju, hæst 14° R. Heyskapr var hér
með rýrara móti næstl. sumar, svo illa litr út með að hey-
forði endist, nema vetrinn verði £óðr upp frá þessu. I
Rangárvallasýslu liggr við borð að skera af heyjum, einkum í
Holtamanna- og Rangárvallahreppum, og er það betra nú
strax meðan fjenaðr er í haustholdum. Yfir höfuð er annars
í þessum sýslum mjög iskyggileg tíð, hvort sem litið er á hey
eða matarbirgðir almennings, þar sem kaupstaðirnir eru mjög
matvörulitlir og skuldir manna hafa aulcizt svo mjög síðastl,
ár vegna fjárfellis og fiskileysis. það leiddi eðlilega af fisk-
ætisleysi og málnytuskorti að bændr urðu að taka miklu meiri
kornvöru enn venjulega í sumar, og hefir það víst fremr verið
orsök til þess að kaupstaðirnir urðu svo fljótt uppiskroppa
með hana, heldr enn það, að minna hafi fluzt af henni enn
venjulega. borvaldr bóndi Björnsson á Núpakoti hefir samt
haft nóg af matvöru til þessa, og hefir það hjálpað mörgum
í Rangárvallasýslu í bráðina, því hann hefir verið fús á að
lána hana mót því, að hún yrði borguð íyrir lok í vor með
hrossum, peningum eða kaupstaðarvöru. Hann er sá eini, sem
hefir tekið upp sveitaverzlun hér austanfjalls, svo að verulegt
gagn sé að.
J>á sjaldan róið hefir orðið á Eyrarbakka í vetr, hefir þar
verið nærri því fiskilaust, enda fiskast þar sjaldan nema um
vetrarvertíðina, og þá mest ýsa á lóð.
Tvö af nauðsynjamálum þessarar sýslu liggja nú í þagnar-
gildi, nfl. brúarmálið og unglingaskólamálið. Brúarmálið var
felt með 1 atkv. mun á þinginu í sumar, eins og kunnugt er,
enn sjálfsagt verðr því haldið áfram þing af þingi þar til það
nær fram að ganga, því áhugi almennings hér er eindreginn
með þessu nauðsynjamáli sýslunnar. — Unglingaskólamálinu
frestaði sýslunefndin í fyrra þar til betr léti í ári, því hún á-
leit ókleyft að leggja fé til hans í þessu harðæri. Ahugi
manna virðist annars ekki sérlega mikill með unglingaskóla-
stofnun þessari- enn sem komið er, enn vonandi er að hann
glæddist, ef skólinn kæmist á stofn, því hann myndi geta gert
hér mikið gagn, ef honum væri vitrlega stjórnað og nýtr
kennari fengist: er því vonandi að málið nái fram að ganga
þegar í ári batnar. — Barnaskólar eru haldnir í vetr á Eyr-
arbakka, kennari Hjálmar Sigurðarson, realstúdent; á Grötu í
í Stokkseyrarhverfi, kenn. Bjarni Pálsson, organisti; á Gaul-
verjabæ, kenn. fröken Sigriðr Gudmundsen; á Kröggólfs-
stöðum í Ölfusi, kenn. Guðni Símonarson. Verið getr þeir sé
víðar haldnir, þótt ég hafi ekki heyrt þess getið. Uppfræðing
barna og unglinga hefir farið hér mikið fram, síðan skólarnir
fjölguðu, enn þvi miðr endar lærdómrinn hjá flestum þegar
þeir eru búnir í barnaskólunum, meðan unglingaskólana vant-
ar til að taka við af þeim.
Til stendr að kirkja verði bygð á Eyrarbakka áðr langt um
líðr, enda er orðin þörf á því vegna fólksfjölgunarinnar. J>ar
eru nú komnar flestar tegundir af handiðnamönnum, t. d. tré-
járn- og blikksmiðir, gullsmiðir, beykir, bakari, bókbindari, skó-
smiðr, söðlasmiðir. far eru 3 sölubúðir, 1 brauðgerðarhús og
2. veitingahús. Enn fremr eru þar 2 lestrarfélög og ábyrgðar-
sjóðr fyrir fiskibáta í sýslunni. ,
Bindindisfélög hafa verið stofnuð í haust og vetr í Stokks-
eyrarhverfi, á Eyrarbakka og í Gaulverjabæjar- og Sandvíkr-
hreppum; eru þau öll sömu lögum háð og nefnast einu nafni
„Bræðrafélag Arnessýslu11. Lögin eru að mörgu leyti sniðin
eftir Good-Templars-lögum. Tala bindindismanna mun vera
orðin l'/2 hundrað og vex óðum. Einnig er nýstofnað hóf-
semdarfélag á Eyrarbakka með sparisjóð fyrir félagsmenn. Nú
þegar eru sýnilegar verkanir þessara bindindisfélaga hvað
reglusemi snertir, enda var hér orðin þörf á þeim eins og víð-
ar, og vonandi að þau útbreiðist áðr langt um líðr í alla hreppa
sýslunnar, og svo sýslu úr sýslu.
Mælt er að Jens prestr Pálsson á Jungvöllum ætli að gefa
kost á sér til þingmensku að sumri, og ættu sýslubúar hér
ekki að hika við að kjósa hann, því liann er maðr einarðr,
drengr góðr og inn frjálslyndasti.
Um Iiriiiiia-Lífs-Elixír.
Allskyns sótt ég áður var
Og iðraverkjum kraminn;
Mitt væri horfið heilsufar
Hefði’ ekki komið Braminn.
Kveisan stöðugt kvaldi mig,
Kalt var hennar gaman;
Nú hefir maginn sansað sig
Síðan ég fékk Bramann.
Púlverin og pillurnar
Pundum tók ég saman,
Alt að einu’ ég eftir var
Aðr enn fékk ég Bramann.
Mixtúrur og dropa’ ég drakk
Drjúgt, og var hinn sami;
Undir eins í stúf þá stakk
Er staup ég fékk af Brami
Af olíum ég orðinn var
Algulur í framan;
Kafrjóðar má kinnarnar
Kalla eftir Bramann.
Eftir Kriigers apótek
Allur er ég sami;
þ»að einasta sem inn ég tek
Er nú tómur Brami.
Jónas lækni’ og Lárus þá
Legg ég og Tómas saman;
Með ánægju læt ég alla þrjá
Eitt fyrir glas af Brama.
Ljúft er að vera lífs á ferð
þ>á lítið er til ama;
Odauðlegur að ég verð
A ég að þakka Brama.
Z.
AUGLÝSINGAR.
Tií vesturfara.
Bezt og ódýrast far frá Islandi til flestra staða í Ameríku
fæst hjá Allanlínunni; hún sendir einnig skip hingað i sumar
komandi til að sækja vesturfara, ef nógu margir haía skrifað sig
í tíma eða svo tímanlega, að jeg hafi fengið að vita tölu
þeirra, er ætla að fara, fyrir 20. apríl næstk. Einnig sendir
línan íslenzkan túlk með fólkinu alla leið til Ameríku. Canada-
stjórnin sendir og ísl. túlk til Quebec á móti fólkinu, sem
fylgir því vestur til Winnipeg eða lengra, ef 100 fullorðnir
eða sem því svarar, eru i hóp, og hafa tekið farbrjef til
Winnipeg eða annara staða í Canada. — Fargjald verður um
150 kr. frá Islandi til Winnipeg, og máske lægra, ef margir
færu í einu.—Fyrir því aðvara jeg hjer með alla þá, er ætla
að flytja sig til Ameríku á komanda sumri að innskrifa sig svo
tímanlega hjá mjer, eða agentum mínum, að jeg verði búinn
að fá að vita tölu þeirra fyrir næstkomandi 20. apríl.
Sigfús Eymundsson, útflutningastjóri.
Vestrfarar
þeir sem fara með Allan-línunni fú hjá mér ókeypis ýms-
ar bækr Og kort yfir Ameríku, sem hafa inni að halda
lýsing á landi, landshögum, landskostum og lífernishátt-
um, þar á meðal leiðsögubók handa vestrförum með upp-
lýsandi myndum og kortum. Sigfiis Eymundsson.
Eg undirskrifaðr auglýsi hér með, að ég hýsi ferðafólk
og veiti því kaffi og hressingu ef það óskar frá 1. maí
næskomandi, gegn borgun út í hönd.
Ólafsvík 17. janúar 1886. Jón Árnason.
pakkarávarp. — það hefir oflengi dregizt fyrir mér
að votta opinberlega til verðugs heiðrs inum háttvirta
höfðingsmanni borgara herra Einari Jónssyni á Eyrar-
bakka mitt innilegt þakklæti fyrir alla hans velgjörn-
inga mér auðsýnda, sem mér,er ekki unnt að telja síðan
hann býrjaði verzlun sína. I fyrra haust gaf hann mér
42 kr., og hefir lánað mér meira og minna ár hvert til
lífsframdrags; þar að auki tekið mér sem bezti faðir,
þegar ég hefi heimsótt hann, sem oftast hefir verið tvis-
var ár hvert, og mér því minnissamara, þar ég nú mörg
undanfarin ár hefi verið blindr, og orðinn örvasa. Allar
þessar veglyndis höfðingsgjafir og velgjörðir bið ég inn
algóða föðrinn að launa þessum mínum velgjörðamanni
af sínum dýrðar ríkdómi framar enn ég kann að hugsa
eða mæla um. Rauðsbakka við Eyjafjöll í des. 1885.
porsteinn Jónsson.
Utgefandi og ritstjóri: Valdimar Ásmundarson.
Prentuð í prentsmiðju ísafoldar.