Fjallkonan - 28.11.1889, Page 3
28. nóvember 1889.
FJAL LKONAN.
139
til Kkafnarháskóla félaus 1732. Háskólarektornum (rect. magni-
ficus) prófessor Gram leist vel á Skúla. Enn þá lagðist hann
þegar í bólusóttinni og lá í þrjár vikur. Að hann lifði af sótt-
ina, má haun næst guði þakka (Gísla) biskupi Maguússyni og
sýslumanni (Guðmundi ?) Sigurðssyni. Skúli, Jón Marteinsson, Jón
Benediktsson og Jón Þórðarson tóku fyrstir allra inntökupróf
opinberlega, og vóru þvi lausir við salt og vín. Við það tæki-
færi hélt prófessor Gram sína nafnkunnu ræðu um hina lærðu
Islendinga, sem enn er ekki komin á prent, enn er til i eltirriti
í vörsluin Skúla.
Fyrir fátæktar sakir var Skúli alráðinn í að hætta námi og
fara með skipi einu, ev átti að fara það ár frá Khöfn til Kína,
enu Gram setti þar þvert nei fyrir. Skúli biðr hann þá að láta
sig fá eitthvað að starfa, sem hann geti lifað af. Gram segir
honum að fara til (Jóns) stúdents Olafssonar, enn koma til sín
við og við, og megi hann eiga aðgang að bókasafni sínu ef hann
viiji. Skúli finnr nú Jón Ólafsson, sem var lærðr vel og drengr
góðr, enn hjá honum fekk hann ekki annað enn heimspekileg
heilræði, og dugði það honum litt i fátækt hans, þótt það væri
að öðru leyti hinn besti lærdómr er hann hefir lært. Etazráð
Gram gaf Skúla þá 10 rd. og áminti hann harðlega, að vera
við nám og sækja fyrirlestra lians. Það var mér oírhægt, þvi
vér komum ekki i keuslusalinn nema einu sinni í mánuði. Eg
var öllum stundum i bókasafni etazráðsins, og meö þvi að ég
taldi mig vera guðfræðingsefni, vanrækti ég heldr ekki guð-
fræðisfyrirlestra próf. Wöldikes og bibliuskýringarnar hebresku.
Ég get ekki sagt að mig brysti nokkuð, enn ég vildi lifa
góðu iifi. Etazráð Gram tók eftir þessu og fær mér i hendr
að eftirrita nokkuð fyrir sig og átti eg um leið að gera útdrátt
af þvi á latinu, svo sem til að sýna kennaranum hve ritfær ég
væri. Með þessu móti vann ég mér inn 12 sk. á dag um eitt
ár, og vann þó aldrei lengr enn einn tíma á dag. Ég hefi
aldrei átt skemmtilegri ævi enn hjá prófessor Gram, því þótt
eg heimskr væri, gat ekki hjá því larið að fyndni hans hefði
áhrif á mig. Um þessar mundir bað hans excellence Plessen, er
þá var forstjóri kammer-kollegisins, um mann, er gæti snúið ís-
lensku á dönsku. Etazráð Gram skipar mér að fara þangað og
kammer koliegiið fær mætur á Skúla f'yrir ómakið. Nú hugsaði
Skúli um að hann þyrfti að litast víðara um i heiminum og
þótti mikils vert um kammer-kollegíið; hinn gamli búðarsveinn
og sýslumannssveinn vildi nú komast í kammer-kollegíið. Þetta
líkar Gram vel og nú var látið i veðri vaka, að Skúli fengi
Norðrsýslu i stað húsbónda hans, sem þá var dáinn, enn svo
íór, að Skúli fær aðra sýslu, nefnil. Austr-Skaftafellssýslu. Þetta
vildi Skúli ekki sætta sig við, fýrr enn kammer-kollegíið beitir
honum, að hann skuli fá hina bestu sýslu er þar næst losni á
íslandi. Hann kvartar um þetta við prófessor Gram, þvi að
hans góða vitnisburði var það að þakka eða kenna, að hann
hafði íengið þessa fátæku sýslu, bláfátækr. Gram segir við hann:
„Sá sem er trúr yfir litlu, verðr síðar settr yfir meira, og geíðu
gaum að heityrði kammer-koliegísins, að þú f'áir betri sýslu þeg-
ar tækifæri býð3t“. Bentuskriíari Holst, siðar kaminerráð, er þá
var i kammer-kolleginu, fullvissaði Skúla um hið sama. Þá vóru
þeir etazráð Berner og justizráð Plessen á hinni islensku skrif-
stof'u. Skúii fer þá til prófessors Wöldike og segir honum
hversu komið var, og fær houurn 15 rd. i bögli sem þakklætis-
merki fyrir fyrirlestra hans. Prófessor Wöldike segir: „Ég tek
ekki móti neinu hjá þér eða þinum líkum, fátækum, ef'nilegum
mönnum. Guð blessi þig, þú hefir verið mér og oss öllum til
mikillar ánægju. Eigðu sjálfr peninga þína“. S’kúli segir:
„Nei, ég á að borga, eins og áskilið er“. Wöldike: „Það er
rétt, þetta er skyldan, enn gerðu nú sem eg þið þig; þú ert nú
orðinn verslegrar stéttar, enn gleymdu ekki guði, sem þú þekk-
ir svo vel; þú hetír svarað spurningum minum i ebresku og
guðfræði og allra best i sögunni. Farðu með þessa peninga á
bókhlöðuna og kauptu þér góða lögfræðisbók ogfarðu nú vel, og
reyndu að sjá um, að fieiri íslendingar komi í þinn stað. Etaz-
ráð Gram sagði þetta seinast orða við Skúla: „Guð hefir gefið
þér góða hæfiieika, þú ert staðfastr og ærlegr, og farðu nú
vel“.
Meðan Skúli var i Kaupmannahöfn við háskólann, var hann
gleðimaðr mikill og það stundum svo, að nætrverðirnir drógu
hann á ráðhúsið á nóttunni; var þó ekki sektaðr nema einu
sinni fyrir ógætileg orð, og er sú saga þannig: Lögreglumeist-
ari Thorn kærði hann fyrir það, að hann hef'ði ráðist á fjóra
nætrverði og brotið þrjár morgunstjörnur1. Skúli svarar: „Þó
1) Eins konar gaddakylfur, sem nætrverðir báru fyrrum.
það hefði verið fjórir lögreglumeistarar, hefði átt að brjóta þær
allar. Það er heiðr fyrir íslendinga að hafa þannig farið
með lögreglumennina. sem ráðast á ókunnuga menn, er sitja
saman við drykkju, innan lukt.ra dyra, af þeirri einni ástæðu
að kl. er hálf tólf'. Það er yfirsjón min, að eg ekki þegar í
stað stakk 2 rd. í lófann á nætrverðinum". Etazráð Thorn segir:
„Láttu undir eins 2 rd. og farðu svo“. Skúli lætr þegar pen-
ingana og spyr, hvort hann megi koma aftr. Lögreglumeistar-
inn segir: „Mér líst svo á þig, sem þú rnunir ekki koma hing-
að aítr“. Hvort Skúli hafi batnað við þessa ráðningn, skal ó-
sagt látið. Osiðsamleg veitingahús og þess konar kvennahús
forðaðist hann, enn hann sagði að glas af góðn víni væri ó-
missandi til að þýða freðinn íslending. Hann stundaði nám sitt
með reglu, kom jafnan á fyrirlestrana og í „klaustrið“ á réttum
tíma. Utan háskólans kom hann sér fyrir við nám hjá bók-
bindara frá kl. 9—10 á kveldin og varö svo fullnumi i þeirri
iðn, sem eintak það sýnir af „Norsku-lögum“, er hann hefir
ínnbundið, útdrættir hans, lögfræðilegar atliuganir og registr,
að hann er góðr bókbindari. Það var ekki þessi iðn ein, er
hnýstist í, heldr margt annað er snerti verklega fræði.
Þegar Skúli f'ór f'rá Kaupmannahöf'n, orti hann þetta:
Þótt eg Hafnar fái’ ei fund
framar enn gæfan léði,
ljúft er hrós fyrir liðna stund:
lifði’ eg í Höfn með gleði.
Hann var ekki einungis fátækr, heldr í talsverðum skuldum.
Þeir sem helst styrktu hann með f'é, vóru justizráð Henrichsen,
faðir hins fræga konferenzráðs Hjelmstiernes, og kaupmaðr Jón-
as Biis, siðan faktor i Gluckstað, sem virðist vera sá er upp-
lýsingar hefir gefið borgmeistaranum i Hamborg, Andersen, eða
þá Wilhelm B.osenmeyer kaupmaðr, sem þá var í förum til ís-
lands. (Framh.).
Nýjungar frá ýmsum löndum.
—oOo—
Hálvél eða hljóðriti (fónógraf) Edisons var til sýnis i Kaup-
mannahöín í haust og var fyrst reyndr i viðrvist konungs og
síðan í viðrvist blaðamanna i Khöfn, og var almenningi boðið
að sjá og heyra; flutti bæði ræður og söng, og dáðnst menn
mjög að þessu undrasmiði. — Nýjustu fregnir segja nú að fund-
in sé i Ameriku ný málvél, sem skari fram úr hljóðrita Edisons,
nefnist „fónortógraf11 og ritar hljóðið á pappír. Á einnig að
vera margfalt ódýrari enn vél Edisons.
Kona, sem var stjörnuiTæðiiigr, er nýdáini Ameríku. Hún
hét María Mitcheil, og var prófessor í stjörnufræði við háskóla.
28 ára gömul (1847) fann htin nýja halastjörnu, og varð þá
þegar heimsfræg, fekk t. d. gulluiedaliu frá Danakonungi.
Bókasöín. Stærsta bókasafn í heimi er landsbókasafn Frakka
í Paris (Bibl. nat.) yfir 2 milj. binda; þar næst „British Mu-
seum“, 1 milj. binda, bókasafnið i Miinchen 800,000 b., bóka-
safnið í Berlín 700,000, bókasafn i Dresden 500,000, og í Wien
300,000. Bókasafn páfa er 30000 bindi, þar af 25000 merkileg
handrit. — Til samanburðar má geta þess, að landsbókasafnið í
Beykjavík er 35000 bindi.
Nýr turn i London. Englendingar vilja ekki verða minni
enn Frakkar, og hafa nú í ráði að byggja turn i London í lík-
ingu við Eiffelturninn í París. Þessi nýi turn á að verða
1250 feta hár.
Aflraunir. í öllum mentuðum löndum leggja menn stund á,
að venja og herða likamann með ýmislegum fimleikum og afl-
raunum — nema hér á landi. Hér er allt þess konar að kalla
niðr lagt, eins og glimurnar. Sem dæmi þess, hversu menn
geta tamið sér að bera mikinn þunga, má geta þess, að í haust
bar einn maðr i Kaupmannahöfn byrði sem vó 13 tíu fjórðunga-
vættir. Hann var úr dönsku félagi, er temr sér aflraunir.
IIcyK javilk.
Þorl. 0. Johnsson kaupmaðr heldr enn uppi „skemtunum fyr-
ir fólkið“ hér í bænum í vetr; hefir nú nokkur kvöld sýnt
skriðljóss-myndir af ýmsum landshlutum erlendis, mannvirkjum
og atburðum og skopmyndir. Auk þess hefir hann haft sam-