Fjallkonan


Fjallkonan - 07.01.1890, Síða 3

Fjallkonan - 07.01.1890, Síða 3
7. janúar 1890. FJAL LKONAN. 3 Nýjungar frá ýmsum löndum. ■ Stanley. Missögn er það, sem staðið hefir í sumum íslenskum blöðum, að dr. Peters, er ásamt föruneyti var sendr til móts við Stanley, hafi verið drepinn. Hann og félagar hans vóru, er síðast fréttist, heilir á liúfi (í Kenía-fjöllum). — Von á þeim Stanley og Emin pasja á hverri stundu. Bismarck var sjúkr, er síðast fréttist, af tauga- sjukdómi. Hallæri í Transvaal (í Afríku). Þurkar urðu í sumar og iiaust svo miklir þar í landi, að jarðar- gróði skrænlaði, og varð af því bjargarskortr og öll matvæli óvenjulega dýr. Tunnau af kartöflum kostaði t. d. 90 krónur. Einvígi milli gufuskipa. í sumar lögðu 2 gufuskip af stað sama dagiuu frá Kiew á Rússlandi. Hafði skipstjórunum eitthvað borið á milli. Oðara enn skipin vóru komin út á rúmsjó, rendu þau hvort á mót öðru og börðust eins og hrútar. Skipverjar réðu ekki við neitt, og gáfu skipstjórar engan gaum að orðum þeirra. Bæði skipin löskuðust, og margir af skipverjum biðu bana. Skipstjórarnir liöfðu kom- ið sér saman um, að heyja einvígi á þennan hátt. Þeir vóru báðir dæmdir í fangelsi. Al'brigðileg’ blöð. Stærsta dagblað í heimi að brotinu til kemr út í New-York og heitir Courrier and Enquirer. Þó er annað blað margíalt stærra, er einnig kemr út i New-York, enn pað kemr að eins út einu sinni á öld (1. númer 4. júlí 1859, 2. nr. 4. júli 1959 o. s. l'rv). — Minsta blað i heimi kemr einnig út í Ameriku (Colorado), það er 5 pml. á lengd, 4 á breidd. — Blað kemr út í Vín á öllum tungum, að minsta kosti þeim, sem eiga nokkrar bókmentir, og ber það saman og rannsakar bókmentir allra þjóða; samskonar blað eða sama blað heiir komið út i Ongaralaadi. Það hefir flutt ýmislegt á is- lensku, helzt gömul kvæði. — I stóru mentalöndunum gefa flestar stéttir út blöð eiugöngu fyrir sig; betlarar í París gefa jafnvel út blað, sem heitir Betlarinn. — Blindir menn í París gefa út blað með upphleyptu letri. — í Nurnberg kemr út blað til hughreystingar sálum dauðra manna, er kveljast í hreins- unareldinum, enn furðulegast af öilum blöðum er blað spiritista, er út kemr í New-York. I ritstjórninni eru einkanlega dauðir menn, svo sem Goethe, Schiller, Shakspere o. s. frv. — Hið æstasta byltingablað er franskt stjórnleysingja blað, er nefnist „Enginn herra og enginn guð“, sem kennir með berum orðum, að það sé ekki einungis saklaust, heldr sannarlegt góðverk, að drepa rikismenu. Landnám Euglendinga í Al'ríku. Fyrir rúmum mánuði stóð það til að Englands drotning ritaði undir konunglega heim- ildarskrá (royal chartre), er veitir nýstofnuðu félagi, hinu breska Suðr-Afriku-félagi, umráð yfir hér um bil 18000 ferhyrningsmílna landsvæði milli Zambese-fljóts og lýðveldis Suðr-Afriku, svo að þetta lýðveldi og Oransjefljóts-lýðveldið verða eins og hólrnar í landttæmi því er liggr undir Englendinga í Suðr-Afríku. Mun öll sú landeign til satnans ekki minni enn svo sem svarar 35000 ferhyrningsmílutn, og þó heldr lítið í lagt, því félagið er ekki bundið við tnjög ákveðin takmörk. Meðal stjórnenda félagsins eru hertoginn af Fife, hertoginn af Abercorn og fleiri tignir menn, enn aðaltoringi fyrirtækisins er auðmaðr einn er Rhodes heitir, er lengi hefir verið í Afríku. Má af þessu ráða, að Eng- lendiugar ætla sér ekki að láta standa sér á sporði í Afríku. Fyrir tám árum var stofnað Niger-félagið og í fyrra hið breska Austr-Afríku-félag, svo líklega rekr að því, að öll þessi íelög taki höudum saman í miðri Afríku. Sumt af löndum þessa nýja nýja féiags má telja með hinum bestu og frjósömustu í Afríku, t. d. Matabililand, sem kallað er Kanaan Suðr-Afriku; finst þar gnægð gulls1, kopar, járn o. fl. málma. Mikið er þó ókannað í 1) Rhodes leigði námurnar þar í landi af Lobengula blá- mannakonungi fyrir 100 pd. sterl. á ári og 1000 bissur með skotföngum og græddi á því svo miljónum skifti. þessum landageim. Eitt hið fyrsta er félagið ætlar að gera, er að leggja járnbrautir og málþræði frá Kaplandi til Zambese- fljóts. Félagið hefir lögregluráð, umboðsstjórn, dómsvald o. s. frv. undir umsjón ensku stjórnarinnar; öll verslunareinokun er bönnuð og ríkt á lagt að ganga ekki á hlut innlendra manna og er stranglega bannað að selja þeim áfenga drykki. — Fyrir fram- tíð Suðr-Afríku hefir fyrirtæki þetta eflaust mikla þýðingu. ÍSLENSKR SÖGUBÁLKR. -•W-'UV-W-V- Þorsteinn Hjaltalín. [Hér kemr litið sögu-ágrip um íslending einn, sem orðið hefir frægr erlendis, enn er svo ókunnr hér á landi, að fæstir munu hafa heyrt hans getið. Það er Þorsteinn Hjaltalín málari. Árið 1884 varð próf'. Fiske var við málverk eftir þenna Þorstein Hjalta- lín i konunglegu safni í Dresden, og las æviágrip hans í ævi- sagnasafni þýsku, er heitir „Allgemeine Deutsche Biographie“, og er hann varð þess vís, að maðr þessi hafði verið íslendingr, vildi hann fá að vita glöggari deili á ætt hans og uppruna, og um það ritaði hann dr. Birni Olsen. Dr. Björn Ólsen leitaði síðan upplýsinga hjá fróðustu mönnum, enn enginn vissi neitt um Þor- stein Hjaltalín. í sumar sagði dr. B. Ólsen mér frá þessu, enn ég mintist aftr á það við Hannes Þorsteinsson kandídat, sem nú mun vera mannsagnafróðastr maðr á landinu annar enn Jón Pétrsson, og gat þess, að þessi Þorsteinn hefði verið einn af 16 ? systkinum; sagði þá Hannes undir eins, að hann hlyti að hafa verið sonr sira Illuga Jónssonar á Kirkjubóli á Langadalsströnd (d. 1782), og hefir það reynst rétt vera. — Þetta söguágrip er hér tekið eftir „Allgemeine Deutsche Biographie11 XII, bls. 383 —4, og dönsku blaði, „Fortid og Nutid", frá 1808. Frásögnin um síra Illuga eftir Daða fróða o. fl. Útg.]. Síra Illugi Jónsson, sem síðast var prestr áKirkju- bóli á LangadaJsströnd, var sonr Jóns bónda Þor- steinssonar á Blikalóni á Melrakkasléttu og konu bans Þorgerðar Illugadóttur (systur síra Grimólís í Grlaumbæ). Síra Illugi var fæddr í Ási í Keldu- hverfi 1728 (?); útskrifáðist úr Hólaskola 1750, varð prestr að Árnesi 1754, kvæntist 1760 Sigríði dóttur Magnúsar próf. Teitssonar i Yatnsfirði og varð s. á. aðstoðarprestr hjá tengdaföður sínum, og fór hann nauðugr frá Árnesi; i Yatnsfirði var hann 20 ár og fékk þá Kirkjubólsþing (1780). Yar heldr kalt milli þeirra síra Gruðlaugs Sveinssonar, er þá hafði fengið Vatnsfjörð. Síra Illugi bjó á lénsjörðinni Bakka á LangadalsstrÖnd. Hann var vel að sér, vitr og forspár, góðr kennimaðr, og jafnan virtr og elskaðr af sóknarfólki sínu, því hann var mesta Ijúf- ! menni. Hann sagði fyrir dauða sinn og með hverj- um atvikum verða mundi; einnig sagði hann fyrir, hvað koma muudi fram við börn sín, og rættist það, enn um Jón son sinn sagði hann einungis, að sér væri það hulið, hvað fyrir honum lægi. Á nýárs- dag 1782 sagði hann um tvo heldri bændr í sókn sinni, að það væri sveitinni mikill skaði, að þeir yrðu báðir látnir fyrir næstu sumarmái, „enn þó lifa þeir mig“, sagði hann. Skömmu síðar fór hann sjóveg i kaupstað vestr á Skutulsfjörð. Vir á skipi með honum Jón sonr hans og Jón stúdent son Jóns [ prófasts Sveinssonar á Stað í Steingrímsfirði og 3 menn aðrir. Að kveldi 14. jart. komu þeir að Eeykja- nesi til Jóns sýslumanns Arnórssonar og ætlaði prestr að gista þar um nóttina, enn fbrmaðrinn, sem Hinrik hét, vildi það fyrir engan mun, og kallaði þá alla til ferðar. Kvað prestr ekki mundu duga að fresta því sem fram ætti að koma. Skipið fórst um nóttina á skeri fyrir framan lendinguna á Arn- gerðareyri; fundust skipverjar allir látnir á skerinu, nema Hinrik, og með þeim ummerkjum sem þeir

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.