Fjallkonan


Fjallkonan - 04.02.1890, Qupperneq 3

Fjallkonan - 04.02.1890, Qupperneq 3
4. febrúar 1890. FJAL LKONAN. 15 ara enn við var búist í fyrstu. Verðið varð þar á árinuminst 8V2 pence og alt að 10 pence liæst, enskt pd. — í Khöfn var verð á hvítri íslenskri vor- ull í sumar frá 64 au. og upp í 721/,,; í sept. og okt. seldist hið mesta af henni og var verðið þá á bestu ull norðlenskri 76—78 au., lakari 72—75 og vestrlensk og sunnl. ull 70—73 au. í okt. og nóv. hækkaði verðið, og komst þá vestrl. og sunnl. ull í ' 76—81 au. pd. — Misl. ull heíir verið seld 60—62 au — Svört u11 65—70 au. Haustull óþvegin var í haust seld á 60—68 au. — Af ísl. ull fluttist til Khafnar árið sem leið um 933,000 pd. Til Englands um 200,000. Öll er þessi ull seld, nema ef vera skyldi lítið eitt af haustull. — SaltfisJcr var að lækka í verði. Stór óhnakkakýldr saltfiskr var seldr á 49 —50 kr. skpd. í nóv. og des. Smáfiskr var boðinn um sama leyti á 38—43 kr., og ýsa 28—32 kr. Von var á farmi af vestrlenskum fiski til Khafnar, er bjóða átti á 60 kr., stóran hnakkakýldan, smáfisk á 40 kr. og ýsu á 30 kr., og var helst búist við að hann gengi ekki út með því verði. — ísl. saltfiskr reyndist miðr vel í sumar, að því leyti að hann hélt sér illa; einkum átti þetta sér stað um smáfiskþann er sendr var til Ítalíu, og af því leiddi að verð á smáfiski hrapaði jafnvel niðr í 35 kr. skpd., enn hafði komist hæst í 55A/2 kr. — Saltfiskr sá frá ís- landi, er fluttr var til Khafnar, var árið sem leið um 5,690,000 pd.; þar af óselt í árslok um 700,000 pd Spánarfiskr frá íslandi f. á. er talinn tæpar 8 milj pd. Til Ítalíu íór beint frá íslandi um 1,200,000 pd. af smáfiski. — Harðfiskr er enginn til á markaðin- um; það litla sem kom (um 45,000 pd.) seldist óðara; verð 87^2 kr.—löú1/^ kr. skpd., eftir því sem eftir- sóknin varð meiri. — Lysi. í nóv. og des. var ljóst hákarlalýsi gufubrætt selt á 34J/2 kr. og pottbrætt 33^/a—34 kr.; dökt lýsi hafði selst á 30—33 algeng- ast; var nú útselt. Til Khafnar komu frá íslandi um 9400 tnnr. f. á.; þar af óseldar 3000 tnnr. og verð. inu haldið í 35 kr. — Saltkjöt fluttist lítið til Khafn- ar f. á. frá íslandi (um 1540 tnnr.), enda seldist það skjótt og hljóp verðið úr 47 kr. upp í 58 kr. á tunn. unni (224 pd.) eftir því sem eftirsóknin jókst. — Tblg. Það litla sem flust hefir árið sem leið til Khafnar af tólg (um 25000 pd.) hefir selst á 30— 32'/2 au. pd. — Saltadar sauðargœrur. Vegna þess að svo lítið kom af þessari vöru (4900 vöndiar) varð verðið 10 kr. á vöndlinum (2 gærum). — Æðardúnn er alt af í lágu verði; var í haust seldr á 11—13 kr.; enn gengr ekki út, norðl. dúnn boðinn á 10— ll1/^ kr., sunnl. á 10—ÍO1/^ kr. Matvöruverð í Khöfn 15. jan. B.-bygg 8—9 kr. 110 pd. eftir tegundum; rúgr 5,60—5,70 100 pd., rúgmjöl 6,00—6,10 100 pd. (matvara því heldrí hærra verði); rísgrjón 78/4 kr.—8Y2 eftir tegundum, 100 pd.; baunir 18'/2 kr. (viktoríubaunir 23 kr.) 224 pd., kandís 19Y2 au., hvítsikr 18 au., kaffi 72—78 au. Póstskipið Laura kom til Rvíkr aðfaranótt 30. jan. og var fátt farþega með því. Ný lög. Þessi lög frá síðasta alþingi eru stað- fest af konungi: 10. L. um breyting á lögum 16. okt. 1875 um laun íslenskra embættismanna, staðf. 9. des. 11. L. um sölu nokkurra þjóðjarða s. d. 12. L. um varúðarreglur að forðast ásiglingar s. d. 13. L. um lögreglusamþyktir fyrir kaupstaðina, staðf. 3. jan. 14. L. um ibreytingar á tilsk. um póstmál 26. febr. 1872 o. s. frv., s. d. 15. —19. L. (fern) um löggilding verslunarstaða) að Arngerðareyri, við Hólmavík í Steingrimsfirði, að Stapa í Snæfellsnessýslu, á Búðareyri við Reyð- arfjörð, að Múlahöfn við Héraðsflóa, öll s. d. Dómkirkjuprestakaliið er veitt 2. jan. síra Jó- hanni Þorkelssyni á Lágafelli samkv. kosningu safnaðarins. Rangárvallasýsla laus. Hermanníus E. Johnsen, sýslumaðr Rangæinga, hefir fengið lausn frá em- bætti 2. jan. með fullum eftirlaunum frá 1. maí þ. á. Lausn frá prestskap. Síra Jón Hallsson próf. í Grlaumbæ fekk 30. f. m. lausn frá prestskap. Endrskoðari við landsbankann er skipaðr land- ritari Hannes Hafstein í stað yfirdómara Jóns |Jens- sonar, sem var endrskoðari áðr. Síra 0. V. Ríslason hélt fyrirlestr hér í bæn- um 28. þ. m. um bjargráð sjómanna, sem hann skifti j þrent: 1. andleg bjargráð, trúna og traustið águði. 2. bjargráð í lífsháska og 3. bjargráð til hagsbóta; gaf ýmsar skýrslur um þetta, uppörvanirj og bend- ingar í líka stefnu eins og í þeim fyrirlestrum sínum, sem hann hefir áðr haldið um þetta efni. Rjúpnadráp hefir verið með langmesta móti sunn- anlands nú í jan. Hafa kaupmenn hér gefið fyrir þær 20 a. nú síðast, enn meira (alt að 35 a.) áðr. Það er ætlun manna, að um 100,000 rjúpur séu nú komnar til bæjarins, sem eigi að fara með þessu póstskipi. Skipstrand. 29. jan. um kvöldið strandaði skip í Keflavík „Málfríðr", er nýkomið var þangað með vörur frá útlöndum, rak upp og brotnaði í spón. Farmrinn allr skemdist og var það mestmegnis mat- vara. Skipverjum varð bjargað með naumindum. Látnir menn. Snemma í jan. lést á Torfastöð- um i Yopnafirði Ludvig Schou, fyrrum verslunar- stjóri á Húsavík. — 15. des. andaðist á Seljamýri í Loðmundarfirði Ólöf Einarsdóttir, ekkja síra Finns Þorsteinssonar á Klippstað. — Nýiega er látinn dbrm. Daníel Jónsson á Fróðastöðum í Hvítársíðu, 1 gamall og greindr bóndi. Jarðarför frú Sophiu Jónassem íór fram í gær með fjöl- mennri líkfylgd. Vestmannaeyjum, 27. jan. „Síðastliðið sumar var hér hið æskilegasta sem annarstaðar. Grasvöxtr í betra lagi; fuglatekja eins. Kálgarðaávöxtr með mesta móti. Það sem af þessum vetri er, hefir ver- ið ákjósanlegt, jafnvel þó jólafastan öll væri storma- og hrakviðrasöm. Snjókoma því nær engin, og frost lítil. — Algert fiskileysi hefir verið hér síð- an í ágústm. f. á. og til þessa dags. Hér var al- ment róið seinast 23. þ. m. og komu 3—4 fiskar á land. 24. þ. m. fóru 8 skip héðan til hákarla; 4 af þeim fengu 3, 4, 6 og 7 tunn. lifrar, hin því nær ekkert; eitt lá 34 tima. Enginn hefir dáið hér á þessum vetri. — Vöruverð var hér síðastliðið ár þannig: Saltfiskr (stór) 45 kr. skpd., hrogn 15 kr., langa 42 kr., hákarlalifr, 15 kúta mál, 12 kr., hvít ull pd. 70 a., lundafiðr 70 a., smjör 50—60 aura. Bankabygg 28 kr. tunn., rúgr 14— 16 kr. tunnan,

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.