Fjallkonan


Fjallkonan - 11.02.1890, Síða 2

Fjallkonan - 11.02.1890, Síða 2
6 ins fæði til að vaxa og haldast við og til að geta unnið verk. Með meltingunni verðr fæðan líkaman- um að notum, og því er áríðandi, að meltingin sé í lagi; enn til þess þarf fæðið að vera hæíilega bland- að og að þess sé neytt á réttan hátt og á réttum tímum. Fæðan fær nauðsynlegan undirbúning til að geta melst, með því að hún er tuggin og blandast munnvatninu; það er því áríðandi að tyggja vel, og munnvatnið hefir mikla þýðingu fyrir meltinguna. í maganum blandast fæðan við magavökvann, sem leys- ir hana upp og breytir henni þannig, að hún verðr hæf til að ganga ofan í þarmana eða garnirnar. Meðar maginn er að starfi þessu, er hollast að hafa ekki mikla hreyfingu, því það seinkar meltingunni eða skemmir hana, og ætti einkum að gæta þessa á eftir aðalmáltíðum. Maginn þarf hvíldar við öðru hverju; því á að haga máltíðum þannig, að maginn þurfi ekki alt af að vera að melta. Nægir að éta þrisvar á dag, eða í mesta lagi fjórum sinnum, enn hitt er óholt, að vera alt af að fá sér smábita. Llr maganum fer fæðan um hinn langa þarmagang og blandast þá magavökvinn og gallvökvinn saman við hana, enn gallvökvinn styðr einkum að meltingu fltu- efna. í þörmunum verðr aðskilnaðr á þeim hlutum fæðunnar, er hæfir eru fyrir líkamann og sogast út í hann, og hinu, sem ekki getr orðið að notum. Drykk- ir þeir, sem maðrinn neytir, sogast á sama hátt út í líkamann, og eiga þátt í efnaskiftingunni, enn þeir fara oft að miklu leyti bæði með þvaginu og með útöndun húðarinnar og lungnanna. Með þvaginu fara einnig ónýt föst efni úr líkamanum, sem leyst eru upp; ef þau geta ekki skilist við líkamann, vegna þess að nýrun eru í ólagi, verða þau eftir í blóðinu og valda sjúkdómi eða dauða. Meltingarfærin eru löguð til að taka á móti hæfilegum fæðuefnum, sem geti melst. Því meira sem er í fæðinu af meltan- legum hlutum, því betra er það. Fæðu sína tekr maðrinn bæði úr dýraríkinu og jurtaríkinu; af ann- ari tegund eru engin fæðuefni sem teljandi séu, nema vatn og salt. Um vatnið verðr síðar talað. Saltið er líkamanum ómissandi, því það er eitt af þeim pörtum, er mynda líkamann; verðr því að láta það í matinn, ef hann er ekki nógu saltr í sjálfu sér. Holl- ast er að matrinn sé hæfllega blandaðr með efnum úr dýraríkinu og jurtaríkinu, ognálega ómissandi, ef til lengdar leikr. Úr jurtaríkinu er brauðið einhver helsta fæðan, og er það ágætt ef það er vel til búið. Búgbrauð er algengast, og getr það verið gott og næringarmikið. Enn venjulega er það gert úr ósáld- uðu mjöli, og með því móti er í því mikið afómelti- legum pörtum og jafnvel skaðlegum. Svo er brauð- ið venjulega of súrt; maginn þolir ekki slíkan súr og af því koma ýmsir magasjúkdómar, sem eru al- gengir. Rúgmjölið á því að sálda og brauðið má ekki vera sýrt nema sem minst, ef það á að vera góð og holl fæða. Það er enginn sparnaðr að brúka ósáldað mjöl í brauðið, því hinir ónýtu partar eru sannarlega einkis virði; geta miklu fremr verið skað- legir. Það er siðr margra bakara, að sálda mjölið sem haft er í rúgbrauðið, ekki til að bæta rúgbrauðið, heldr til að ná úr besta mjölinu, er þeir hafa í annað dýrara brauð. Rúgbrauðið er þá gert úr því sem eftir verðr, og er slíkt rúgbrauð næringarlítið, eða nálega næringarlaust, og þess vegna óhæfilegt til matar og skaðlegt fyrir heilsuna. Hinar ýmsu korntegundir aðrar eru góðar og nærandi, ef vel er með farið. Kartöflur og rófur er hollr og góðr matr, ef ekki er neytt ofmikils af þeim, einkum ómissandi með kjöti og fiski. Menn eiga að hafa meira af jurtafæðu enn dýrafæðu; enn þetta fer þó nokkuð eftir lof'tslaginu. í köldustu löndunum, t. d. Grænlandi, lifa menn eink- um á kjötmat og borða mikið af' fitu, sem er nauð- synleg til að halda við líkamshitanum. í heitu lönd- unum sumum, t. d. Kína, er jurtafæða höfð nálega eingöngu. Buddha-trúarmenn bragða ekki kjöt. Það hefir verið sagt, að íslendingar ætu mikið af smjöri, og kann eitthvað að vera hæft í því að svo hafi verið, enn það er eðlilega samfara loftslaginu. Ekki þykir líklegt að íslendingar éti ofmikið af kjöti nú orðið, þar sem svo mikið er flutt úr landi af fénaði, að búþröng verðr hjá mörgum. Kjötið sem hér er haft til matar, er nálega eingöngu saltkjöt, og oft og tíð- um skemmist það. Saltkjöt og hangikjöt er, þó það sé vel verkað, hvergi nærri jafngóð og holl fæða sem nýtt kjöt, og ætti menn að hafa minna af saltkjöt- ' inu, enn éta meira af nýju kjöti, og er það hægt að minsta kosti framan af vetrinum. Saltkjöt verðr hollara ef haft er með því kálmeti eða kartöflur. Hér á landi éta menn fjarska mikið af skyri og súrsuð- um mat og er sama að segja um hann sem salt- kjötið, að hann er ekki jafnhollr sem nýr matr. Einkum kemr þetta fram ef súr eða saltr matr er hafðr mest matar, og það getr ekki verið holt að éta jafnmikið af súru skyri eins og tíðkast hér á iandi og mundi mega leggja niðr þann óvanda. — í búskapar- legu tilliti mundi það ekki verða ódrýgra, að hætta mjólkrsöfnuninni á sumrin og láta ærnar ganga með dilkurn. — Um fisk er hið sama að segja sem kjöt, að nýr fiskr er betri til matar enn saltfiskr eða harðfiskr. — Mjólk er hollari og næringarmeiri enn j flestar aðrar fæðutegundir; hún er hinn eini holli og nærandi drykkr hér á landi; í kaffi og te eru engin næringarefni, enn það eru hressandi og skaðlausir drykkir ef hófs er gætt; kaffi dregr úr matarlystinni, og hafa því sumir ranglega ætlað að það væri nær- andi. Miklar kaffidrykkjur valda taugaveiklun og hjartasjúkdómum. Sikr er mjög næringarmikið, enn mikið sikr og önnur sætiudi skemma tennrnar, og kemr það oft fram á börnum sem éta mikið af sæt- indum. (Framh. síðar). Smásögur. — Stúdent nokkur kom heim frá háskólanum til foreldra sinna. Faðir hans spurði, hvernig hon- nm hefði tekist prófið. „Sórlega vel“, svaraði hann, „já, svo prýðilega, að allir skora á mig að taka það upp aftr“. — Kennari: „Af öllum þessum áðrnefndu ástæð- um hafa menn fyrir satt, að bygð sé í tunglinu eins og á jörðunni“. Lærisveinninn: „Enn með leyfi að spyrja, herra kennari, hvað gerir þá aumingja fólkið af sér þeg- ar tunglið þverrar?“ — Kandídat: „Hvernig getið þér verið svo djarfr að ætla yðr að „dispútera11 við mig. Þér skuluð vita, að ég hefi gengið á tvo háskóla“. Böndamaðr: „Æ, það held ég hafi ekki stórt að

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.