Fjallkonan - 16.12.1890, Blaðsíða 1
Kemr út 4 þriðjudögum.
Árg. 2 kr. (3 kr. erlendis)
36 bl. -f aukaútgáfu 1 kr.
-1,50 (1,50—2 kr. erl.).
Gjalddagi i júlí.
FJfllL
NA
Uppsögn ógildnema
skrifl. komi til útgef.
fyr. 1. okt. Skrifstofa í
Veltusundi 3. Útgef.:
Vald. Ásmundarson.
VII, 36.
REYKJAVÍK, 16. DESEMBEK.
1890.
Brúkuö íslensk frímerki
kaupir skrifstofa almennings fyrir hæsta verð.
Nokkur orð um uppeldi
eftir
Guðmund Hjaltason.
1. Hvað er uppeldi? Það er eiginlega þrenskonar:
iíkamlegt uppeldi, þekkingar uppeldi og siðferðislegt
uppeldi.
Líkamlegt uppeldi er einkum falið í því, að veita
börnum fæði, föt og skýli og annast heilsu þeirra.
Þekkingar uppeldi er hin eiginlega kensla í öllum
bóklegum námsgreinum.
Siðferðislegt uppeldi er fólgið í góðu eftirdæmi og
réttri hegðun við börnin; einnig í því að kenna þeim
að vinna fyrir sér og verða sjálfstæð, dygðug og
guðrækin.
2. Uppéldið hefir óniælanlega þyðing fyrir mann- I
félagið. Sérhver maðr hefir mikil áhrif á heimili sitt,
ekki einungis sem húsbóndi, heldr einnig sem hjú. j
Heimilið heíir áhrif á sveitina, sveitin á þjóðina,
þjóðin á mannfélagið.
f áhrifum sínum lifir því hver maðr lífi, sem, ef
til vill, getr orðið endalaust.
Enn alt er komið undir því að áhrifin séu góð.
Duglegr, mentaðr, dygðugr og sjálfstæðr maðr lifir
því öðrum til endalausrar blessunar, sem nær frá
einum stað til annars, frá einni öld tii annarar. Þótt
minning hans hveríi eins og ský, og þótt hann liafi
engin svo nefnd frægðarverk unnið, þá gerir hann j
oft meira gagn enn margr „frægr“ maðr.
Þesskonar menn þurfum vér marga, og þá á gott
uppeldi og þar afleiðandi betri kynslóð að gefa oss.
3. Ennhverjir eruþeir sem uppala? Foreldrar, fóstr-
foreldrar, húsbændr og kennarar. Jafnvel hjú og
allir, sem umgangast börnin, hafa mikil áhrif á upp-
eldi þeirra, og hafa því uppeldisskyldum að gegna,
ekki mikið færri enn þeir, sem beinlínis eiga yfir
börnum að segja.
Er því nauðsynlegt að gllir æðri sem lægri þekki
uppalara skyldurnar. Ef þeir þektu þær, þá mundu
þeir hika við að skifta sér heimildariaust af annara
börnum til þess að setja þeim reglur og laga þau
eftir sínu höfði. Þeir mundu þá líka varast að hafa
ilt fyrir þeim og gera þeim rangt.
4. Enn liverjar eru uppalara skyldurnar? Að geta
veitt börnum áðr nefnt þrenskonar uppeldi.
Enn til þess þarf mikla hæfileika og þekking.
Helstr þessara hæfileika er élska til barnanna.
Vel færi ef sem flestir hefðu lært að elska börn
áðr enn þeir verða feðr eða fóstrfeðr. Þá myndu þeir
fá hugmynd um þá miklu ábyrgð, sem hver faðir og
móðir hefir. Kjör barnanna bæði þessa heims og
annars mundu þá standa afmáluð fyrir augum þeirra
skelíileg eða gleðileg og ætíð mjög mikilvæg.
Hvað þekking snertir, þá ætti helst hver sem hugsar
um hjúskap sem búandi maðr að hafa lært almenna jarð-
vinnu, svo sern túnsléttu, garðhleðslu og almennar
húsabyggingar, og sjálfsagt vera vel heima í skepnu-
hirðing, eða þá sjómensku. Og þá gæti hann kent
og ætti líka að kenna börnum sínum þessi verk.
Hann ætti líka að hafa lært að lesa, rita og reikna
rétt, þekkja landið og sögu þess, einnig ágrip af al-
mennri sögU og landafræði.
Hann ætti einnig að vera búinn að læra nokkuð
að stjórna, og til þess útheimtist meðal annars að
geta haldið reikning um tekjur sínar og gjöld og talið
eða notað tímann. Enn enginn getr samt vel lært
að stjórna, nema sá, sem lært hefir að hlýða hús-
bændum sínum og foreldrum.
Enginn getr kent öðrum dygðir, nema hann hafi
eitthvað af þeim sjálfr.
Með fám orðum: enginn ætti að hugsa um hjú-
skap, fyrr enn hann getr haft að minsta kosti ofr-
litla von um, að geta haft ánægju af börnum, skilið
þau, veitt þeim föt og fæði, alið önn fyrir heilsu
þeirra, mentað anda þeirra, göfgað hjarta þeirra og
stjórnað þeim.
Sá faðir eða móðir, sem getr þetta og gerir lika,
verðr besti kennari. Og þurfi hann að láta kenna
börnum sínum, þá hefir liann sjálfr lagt grundvöll,
sem auðvelt er að byggja ofan á. Kennarinn þarf
þá ekki að skifta sér af miklu öðru enn þekkingar-
uppeldinu. Hans dæmi og hegðun við börnin er þá
nóg siðferðis uppeldi. Hann þarf þá ekki að vera á-
minningaprestr, pólití eða þá stundum böðull barn-
anna, heldr að eins fræðari og eldri vinr þeirra. Þetta
flýtir mjög fyrir námi og menning þeirra. Enn þurfi
kennarinn að „siðau börnin og auk þess að kenna
þeim, þá verðr alt örðugra og kostnaðar meira. lUir
foreldrar ónýta oft verk góðs kennara. Góðir for-
eldrar eru hans önnur hönd, og af þeim hefi eg sem
kennari mest að segja.
Já gætum allir að skyldum vorum við blessuð börn-
in. Elskum þau og önnumst og gleðjum; gerumþeim
rétt og segjum þeim ætíð satt; virðurn þau eins og
bestu blóm mannlífisins; verum þeim tryggir og orð-
heldnir. Breytum við þau með reglusemi og stað-
festu. Kennum þeim sem mest gagnlegt til lífs og
sálar. Enn kennum þeim líka að virða réttlæti og
sannleik, reglu og iðni. Foreldrar, fóstrforeldrar,
húsbændr, kennarar, hjúogallir sem umgangist börn!
Gætið þess, að hegðun ykkar við þau hefir endalaus
áhrif, ill eða góð!
5. Engir hafa þó eins mikla ábyrgð, engir van-
rækja skyldur sínar eins og margir feðr óskilgetinna
harna. Þau eru arflaus, fátæk og fyrirlitin og fá
sjaldau nokkra mentun til lífs eða sálar, nema þeg-
ar einhver mannvinr tekr þau að sér.