Fjallkonan


Fjallkonan - 15.03.1892, Qupperneq 2

Fjallkonan - 15.03.1892, Qupperneq 2
42 FJALLKONAN. IX, 11. meining er þá í því, að senda oss aðra eins send- ingu eins og (Skírnir‘ er? Að tína almælt tíðindi saman í eitt safn og senda oss til lestrs, er vér ! þó höfum lesið fyrir ári og hálfu öðru ári. Sú var ennfremr tíðin, að (Skírnir‘ hafði enn aðra þýðingu enn þá, að fræða þjóð vora um er- lenda (menn og mentun': hann hjálpaði til að hefja j ritmál vort á hærra og fegra stig, enn það hafði j staðið á um langan aldr. Margir árgangar hans eru samdir af mönnum, er einna fegrst og snjall- ast hafa ritað tungu vora á þessari öld, svo sem j Jónasi Hallgrímssyni, Guðbrandi Yigfússyni, Arn- j ljóti Ólafssyni og Eiríki Jónssyni. Enn þessa þýð- ingu hefir hann mist í höndum herra Jóns Stefáns- sonar; hann ritar lýtalaust miðlungsmál, og lasta óg manninn ekkert fyrir það. Eg hefi heyrt (Skírni‘ talið það til gildis, að með honum væri fréttum komið í eina heild, að hann væri nokkurs konar mannkynssaga, það sem hann ! næði. Enn það er öðru nær enn svo só. Hann j er sundrlaus árbókaröð, er alla heild og samhengi j skortir til að vera saga, sem von er til, því höf- undar hans hafa aldrei ætlast til, að hann væri það. Það ætti að breyta efni og innihaldi (Skírnis‘ mjög frá því, sem nú er, og þó eigi svo, að hann j geti ekki haldið gömlu einkunnarorðunum sinum, að segja frá (mönnum og mentun’. Hann ætti að hætta að segja almælt tíðindi, sem svo eru kölluð, enn fræða oss í þeirra stað um fornar og nýar stefnur og skoðanir, í skáldskap og heimsspeki, trúfræði, náttúrufræði, siðfræði og fólagsfræði. Eg þykist reyndar vita, að vér höfum ekki mannráð til að frumsemja ritgerðir, svo í lagi fari, nema í sumum þessum greinum, enn þá má þýða. Eg skil varla annað, enn að flestir mentamenn vorir hljóti að sjá, að oss er ærin þörf á þess kon- ar riti. Flestallir straumar og stefnur í áðrnefnd- um fræðum leggja leiðir sínar austr og vestr um þveran heim, langt fyrir sunnan oss. Yfir oss grúfir æ og æ sama sudda og kulda þokan, kyrkj- andi og kveljandi allan andlegan gróðr. Mór finst mega skilja það á (Skírni‘ Jóns Ste- fánssonar, að honum myndi ekki ógeðfelt, að breyta honum eitthvað í þessa átt. Hann er að telja upp fyrir oss nöfn helstu lista- og fræðimanna heims- ! ins. Enn það er í sjálfu sér lítils eða einskis virði að vita nöfnin tóm. Yér höfum vesalan himin höndum tekið, þótt oss só sagt. að þjóðskáld Eng- lendinga heiti B,. Browning; vér erum engu nær j fyrir það, hvað það er, sem þessi hinn mikli maðr' vill og hvert hann stefnir, enn það er þó mergr- j inn málsins. Enn fáist þessi breyting eigi fram á (Skírni‘, þá ætti algerlega að leggja hann niðr, og það sem allra fyrst, og þeim forlögum ætti (Fróttir frá ís- j landi' að sjálfsögðu að sæta. Um (Fróttir frá Islandi‘ er það að segja, að það ! rit hefir frá upphafi sinna vega verið gersamlega | meiningar- og tilgangslaust. Hvert vit er t. d. í því, að tína saman úr blöðunum heilan bálk af alþingisfróttum, og prenta í riti þessu? Hver skynsamur maðr, er nákvæmari fræðslu vill fá um j alþingi, enn þá er í blöðunum er, hann fer ekki í ; (Fróttir frá Islandi‘, hann fer í Alþingistíðindin. Nei, (Fróttum frá íslandi‘ verðr ekkert talið til gildis, þessum (mekaniska‘ frétta-samtíning úr blöð- unum, þessum líflausa og litarlausa annál eða ár- bók. „Árbók! — Eru kann ske allar árbækr meining- arlausar? Eru (Árbækr Espólíns* það?“ Nei; vegna þess að (Árbækr Espólíns' eru í (sögu- formi‘ og að í þeim eru kaflar, sem ritaðir eru af íþrótt sagnfræðingsins — vegna þess, að margar þær heimildir eru glataðar síðan, er ritað var eft- ir, — vegna margs konar fróðleiks um einstaka menn, er samtímis lifðu höfundinum, — vegna fagrs og einkennilegs ritmáls; — vegna alls þessa eru (Árbækr Espólíns‘ dýrmæt þjóðeign. Ekkert af þessu á sór stað í (Fréttum frá Islandi‘, og meira að segja, getr ekki átt sór stað, nema málið, kring- umstæðnanna vegna. Jóhannes Þorlœlsson. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn 1. mars 1892. Frákkland. Hinn 19. janúar varð rimma mikil og barátta í franska þinginu. í einu af blöðum Boulangersinna vóru born- ar mjög ófagrar sakir á Constans innanríkisráðgjafa. Greinar þessar vóru samdar af Roehefort. Yar Conetans þar kallaðr þjófr, morðingi og mörgum öðrum illum nöfnum. Tveir hinna æstustu Boulangersliða, Le Senne og Laur, báðu forsetann Pioquet um leyfi til að gera fyrirspurn um áburð þennan, enn l’reyeinet og forsetinn kváðust ekki gefa leyfi til þess, þar eð það auðsjá- anlega væri gert að eins til að óvirða stjórn þjóðveldisins. Heimt- aði þá Laur, að gengið væri til atkvæða um það, hvort þeir fengju leyfi til að gera fyrirspurnina, og reis Laur þá upp og kvað ekki sæma að hlífa þeim manni, er væri að almennings- dómi stórglæpamaðr. Sprettr Constans þá upp og ryðr sér braut, uns hann nær i Laur og gefr honum tvo væna löðrunga. Yarð þá alt i uppnámi, og gáfu menn hver öðrum löðrunga óspart; varð forseti að slíta fundi og láta rýma salinn. Að tíma liðn- um var fundr settr aftr. Bað Constans þingmenn fyrirgefning- ar, og var honum veitt hún. — Laur sendi hraðskeyti til Kochefort, sem er i Lundúnum, og spurði hann hvort hann ætti að bjóða Constans til einvígis, enn Bochefort kvað það ósæmi- legt fyrir Laur að hafa vopnaviðskifti við annan eins mann. Komst þetta þegar í blöðin, enn samt sem áðr bauð Laur hon- um til einvigis nokkru seinna, enn það kvaðst Constans ekki vilja, þar eð hinn hefði leitað ráða annara manna. — Flestir untu Laur þess, að hann fékk þennan skell, enn því verðr ekki neit- að, að þetta atvik spilti mjög fyrir Constans, þótt allir verði að játa, að hann hafi verið einna fremstr i ráðaneyti Freyeinets, og Frakkar hafi honum mikið að þakka, þvi það var hann, sem steypti Boulanger. — Enn nú átti Freycinetsráðaneytið ekki langt eftir ólifað. Fyrir jólin hafði Freycinet lofað að koma með frv. til laga um félög, sérstaklega klerkafélög. Pótti brýn nauðsyn að reisa einhverjar skorðr við þvi, að þau gengu í ber- högg við stjórnina, enn það drógst. Hinn 18. febr. skoraði Hubbard á stjórnina að flýta frv. þessu og stuðla að því, að að- skilnaðr rikis og kirkju væri gerðr, þvi að öðrum kosti mundu klerkar halda fram sínum vanalega undirróðri gagnvart þjóð- veldinu. Bar þá einn af Bónapartesinnum harðar sakir á Frey- cinet fyrir hönd klerka, og skoraði á hann að láta i ljósi, hvaða stefnu hann ætlaði að fylgja. Freycinet hvað nauðsynlegt að hafa gætr á klerkum, og reisa skorður við því að þeir sýndu landstjórninni óhlýðni; hinsvegar væri hann mótfallinn því, að kirkja og ríki væru skilin að. — Þannig ætlaði hann að sigla á milli skers og báru, gera bæði klerkum og framsóknarmönnum til hæfis, enn það varð ekki. Dví næst var komið með frv., er laut að því, að skorað væri á stjórnina að halda stefnu sinni áfram. Kvað Freycinet, að þingmenn lýstu trausti sínu til stjórn- arinnar, ef þeir samþyktu það, enn það var felt með 304 atkv. á móti 202. Gengu ráðgjafarnir þá af þingi og fengu allir saman lausn daginn eftir. Þannig varð Freycinetsráðaneytið að fara frá, og hafði það setið allengi, eftir því sem siðr hefir

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.