Fjallkonan


Fjallkonan - 10.05.1892, Side 1

Fjallkonan - 10.05.1892, Side 1
IX. ár. Nr. 19. FJALLKONAN. Árg. 3 kr. (4 kr. erleudis). Gjalddagi 15. júlí. Reykjavík, 10. maí 1892. Skrifst. og afgreiðslust.: Þingholtsstræti 18. Stjórnartíðindin. n. Eins og nú er ástatt, eru þeir fáir, sem lesa Stjórnartíðindin. Þó þau sé send í hvern hrepp og sókn á landinu, er aimenningr jafnnær fyrir það; enda mun þeim eintökum ekki vera haldið reglulega saman á sumum stöðum, og munu þau víða ekki vera til heil. Askritendr eru mjög fáir, eða að eins um 100, og flestir þeirra í Eeykjavík. Má því segja að rit þetta sé í fæstra höndum. Kostnaðrinn við útgáfu tiðindanna er allmikill, hátt á 2. þús. krónur á ári. Oss hefir nú komið til hugar, að bæta mætti landssjóði þennan kostnað að miklu eða öllu leyti og jafnframt gera tiðindin miklu útbreiddari. Það yrði með þvi, að allar embættislegar aug- lýsingar yrðu framvegis settar í Stjórnartíðindin, þ. e. auglýsingar þær sem ákveðið er í opnu bréfi 27. maí 1859 aðbirta skuli í einhverju blaði, sem út kemr í Kvík, og aðrar auglýsingar, sem snerta ýms embættisstörf eða sýslanir, svo sem auglýsing- ar um óskilafénað o fl. Tekjur af þessum auglýsingum mundu, eins og nií stendr, geta numið alt að helmingi af útgáfu- kostnaði Stjórnartiðindanna, þótt auglýsingaverðið yrði lægra í Stj.tíð. enn í blaði því sem nú hefir a uglýsingarnar. Enn auk þess mundi þessi breyt- ing verða til þess, að miklu fleiri yrðu kaupendr að Stjórnartíðindunum, þvi þörfin að lesa auglýs- ingarnar mundi þrýsta betr að almenningi, og mundi sá kaupandaauki og það, að auglýsingarnar mundu þá verða meiri enn nú, nægja til þess að lands- sjóðr þyrfti engan kostnað að hafa af útg. tíðind- anna, er fram í sækti. Isafold hefir hátt upp í 1000 kr. tekjur á ári af hinum „opinberu“ auglýsingum og öðrum slikum auglýsingum, sem snerta embættisstörf og sýslanir. Yera má að stjórnin hafi þá [skoðun, að það sé gott fyrir hana að styrkja jafnan eitthvert af blöð- unum. Vér ætlum að svo sé þó ekki, því einmitt stjórn- in sjálf lagði fyrir nokkrum árum (1885) fyrir al- | þingi frumvarp, sem fór því fram að stjórnarráðið mætti skipa svo fyrir, fað opinberu auglýsingarn- j ar yrðu prentaðar í Stjórnartíðindunum, alveg eins og vér höfum lagt hér til. — Frumvarp þetta var samþykt í efri deild, enn felt í neðri deild, eink- anlega af þeim ástæðum, að auglýsingarnar mundu ekki fá næga útbreiðslu í Stj.tíð. og að þær kæm- ust ekki nógu fljótt út um landið á þann hátt. — Að því er snertir útbreiðslu tíðindanna, hefir hún aukist síðan, og mundi einmitt aukast mest við þessa tilhögun, eins og vér höfum þegar bent á, enn sú viðbára að auglýsingar komist seinna út um land í Stj.tíð. enn í blöðunum er vitleysa tóm, þar sem Stj.tíð. eru send með hverjum pósti eins og blöðin, enda mundu tíðindin koma út oftar, ef þau ættu að fiytja auglýsingarnar. Yér vonum að máli þessu verði hreyft á næsta alþingi og fái framgang. Yið það væri einkanlega tvent unnið: almenningr fengi hvöt til að kynn- ast betr lögum og stjórnarathöfnum enn áðr og landssjóðr fengi dálitla nýja tekjugrein. Um fylgdarmenn útlendinga. Það er orðinn stór munr á því, móti því sem var fyrir ekki allmörgum árum, hvað margir út- lendir ferðamenn leggja leið sína til Islands, til að kynna sér landið og háttu þjóðarinnar, og lítr út fyrir að þessum ferðamönnum fjölgi ár frá ári; þetta ætti að geta orðið landinu til mjög mikils gagns, ef vel væri á haldið; og er því áríðandi að menn geri sér alt far um að það megi verða. Þessir útlendu ferðamenn þurfa flestallir að fá sór túlka eða talsmenn, og má skoða þá sem milli- göngumenn milli alþýðu og útlendinga; það er því einkaráríðandi að þeir heppnist; þeir geta miklu ráðið, og þuifa þeir jafnvel að gæta réttar hvorra- tveggja, landsmanna og útlendinga, enn á því hef- ir stundum orðið brestr; mér er kunnugt um það. Eg, sem þessar línur rita, byrjaði fyrir 40 árum að fylgja bæði innlendum og útlendum Sprengi- sandsveg, þá Þingeyingr, enn í seinni tíð Arnes- ingr. Eg hef því átt kost á að kynnast mörgum útlendum ferðamönnum, enn einkum túlkum þeirra og fylgdarmönnum; finst mér sumir þessara fylgd- armanna hafi staðið miðr vel í stöðu sinni, bæði gagnvart útlendingum og alþýðu. Þekki ég ýms dæmi því til sönnunar bæði frá fyrri og seinni tíð. Enn ég ætla í þetta sinn að eins að tilgreina eitt dæmi, sem kom fyrir fyrir nokkrum árum. Einusinni sem oftar fylgdi ég útlendum ferðamanni og túlki hans norðr Sprengisandsveg fyrir umsamið kaup. Þegar norðr í bygð kom og óg bjóst við að skilja við þá, vildi ég fá kaup mitt. Þegar ég fór að tala um þetta við túlkinn, rétti útlendingrinn mér 8 kr. Sagði túlkrinn þá, að þetta væri alt, sem hinn útlendi vildi borga mér fyrir ferðina, og yrði ég að sitja við það, enn sjálfr kvaðst hann enga peninga hafa. Eg sagðist hafa samið við hann enn ekki útlendinginn, sem nærri má geta, þar sem ég ekki skil útlent mál, og yrði ég að halda mér til þess, sem ég hefði samið við. Yið þessum 3. kr. tók ég ekki, því ég áleit mig smánaðan með þessu. Kvaðst ég nú mundu hraða ferðum mínum og finna viðkomandi sýslumann, er mundi,geta hindr- að ferð þeirra um tíma. Eg bjó mig þegar til burt- ferðar; enn þegar hann sá að alvaran átti að gilda, sagði hann mér að biða stundarkorn, brá sér snöggv- ast burtu, og kom bráðum aftr, og borgaði mesta hlutann af hinu umsamda kaupi; það, sem efbir stóð, bað hann mig um að lána sér, enn ég neitaði því

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.