Fjallkonan - 04.10.1892, Síða 3
4. okt. 1892.
FJALLKONAN.
169
mikið og skorinort skjal, sem tók yfir flest hin al-
mennu mál, sem nii eru efst á blaði hjá þjóðinni,
oglýsti hann þar skoðun sinniáþeim; geðjaðist mönn-
um vel að heyra það lesið, og má fullyrða, að skjal
þetta og eins3ræða meðmælandans áttu mestan þátt
í að auka ktkvæðafjölda hans á fundinum. — Aftr
var bréf Tryggva Gunnarssonar, sem og var lesið
upp, mjög svo óákveðið í skoðunum; vísaði helst
tii þingmensku sinnar frá 1886, og þótti mönnum
dauft að fá ekki gleggri yfirlýsingu frá hans hendi
um ýms þjóðmál sem nú, enn ekki þá, vóru á dag-
skrá, enda gat ekki meðmælandi hans, sem ekki
var heldr von, svarað því er menn vildu vita í
þeirn efnum. I annan stað kom fyrirspurn um;
hvort það gæti samrýmst stöðu Tryggva sem banka-
stjóra, að vera þingmaðr, þar sem laun bankastjór-
ans hefðu verið hækkuð í því skyni, að hann ekki
þyrfti að leita sér auka-atvinnu, enda væri það
starf þannig vaxið, að ekki yrði hálft gagn af
frammistöðu íhans á þingi vegna anna við bankann;
hlytbþví að vanrækja annaðhvort starfið, enda væri
það gagnstætt tilætlun þingsins. Þessari fýrirspurn
var ekki með rökum mótmælt, enn því hreyft, að
landshöfðingi hefði líka nokkuð að gera, og væri
þó á þingi, án þess að athoga, að hér stendr alt
öðruvísi á, og að störf þingmanna eru mikið inni-
falin í nefndum, sem landshöfðingi mun vera laus
við. Þetta, með fleiru, mun hafa dregið úr áhuga
manna á að kjósa Tryggva á þing, þó hann að
öðru leyti sé viðrkendr öfiugr framkvæmdamaðr,
einkum í brúamálum. — Þorlákr Guðmundsson iýsti
skoðun sinni á ýmsum þjóðmálum vorum; kvaðst
ekki vera fylgjari „Þjóðviljans“ í stjórnarskrár-
málinu, heldr með stjórnarbót, sem gæti kom-
ist á friðsamlega og án aukaþingskostnaðar; sagði,
að meðan Nellemann sæti að völdum, yrði ekkert
gert í þá átt o. s. frv., líkt og oft hefir brugðið
fyrir hjá óeinbeittum stjórnarskrármönnum. Samt
mýktist þetta atriði svo í meðförunum, að menn
fengu tiltrú til hans í þessu og öðrum alþjóðarmál-
um, eins og sýndi sig við atkvæðagreiðsluna“.
Enskr sundmaðr ætlar að synda yfir sundið milli
Englands og Frakklands á 14 timum. Hann ætlar
að synda með bundnar hendr og beita að eins fót-
unum.
Þyskalandskeisari ætlar að fara til Chicago-sýning-
arinnar að sumri.
Iiálskr greifi, Matei, þóttist fyrir nokkrum árum
hafa fundið meðal við krabbameinum, og hefir selt
það út um allan heim. Mr. Stead, ritstjóri í Lon-
don, fékk nokkra góða lækna til að rannsaka meðal-
ið. Þeir segja að það muni vera alveg skaðlaust,
því það er ekkert annað enn tómt soðið vatn.
Híisabyggingar í Cliicago. íbúatalan í Chicago
hefir aukist stórkostlega síðan ákveðið var að sýn-
ingin yrði haldin þar. Árið sem leið vóru þar bygð
11,805 hús, og þau fæst neitt smásmíði. í hverfi
þvi sem nefnt er Ashland-hverfi, og er að mestu
nýbygt, eru allmörg hús með 17 gólfum. Það er
heldr ekki lengi verið að byggja hús í Chicago.
Önnur eins hús og þessi 17-gólfuðu eru fullger
utan og innan á átta vikum, enda vinna smiðirnir
nótt og dag. Húsgrindrnar eru að mestu leyti úr
járni og stáli. Undirstaðan úr stáli og gengr iangt
í jörð niðr.
Smásögur.
— Pjórir menn komu á veitingahús á Skotlandi. „Eitt staup
af whisky11, kallar einn peirra, „því það er svo kalt í dag“.
„Og mér eitt“, segir annar, „því ég er svo þyrstr“. „Og mér
eitt“, gellr við sá þriðji, „því læknirinn segir mér að drekka
það“. „Ekki það“, grenjaði sá fjórði og barði rokna högg í
borðið, „komið þið með eitt handa mér, því mér þykír það
gott“.
— Mark Twain kom á fund málflutningsmanns. Málflutnings-
maðrinn stingr höndunum í vasana. „Hvað er þetta“, segir
Mark Twain, „þetta er í fyrsta BÍnni, sem ég hefi séð málfærslu-
mann stinga höndunum niðr í sinn eiginn vasa“.
Alþingiskosuing í Dalasýslu fór fram 26. sept.
Kosiun Jens prestr Pálsson með 36 atkv. Björn
sýslumaðr Bjaruarson fékk 28 atkv. og Þorlákr
bóndi Bergsveinsson á Melum og séra Jóhannes L.
Lynge Jóhannsson nokkur atkv. hvor.
Alþingiskosning í llangárvallasýslu. Þar eru
kosnir Þbrdr Quðmundsson í Haia og Sighvatr Arna-
son í Eyvindarholti. Séra Óiafr Ólafsson fékk
nokkur atkv.
Verslunarfréttlr, 5. sept. Sunnlensk vorull, hvít, hefir selst
á 59 a., vestfirsk 60, norðlensk 60—61 (besta 65 a.), mislit ull
40 a., hvít haustull óþvegin 39‘/2 eyri. Alt að meðtöldum um-
húðum. Á Englandi sunnlensk vorull hvit seld 77/16 d. (56 a.)
og norðlensk 76/8 (57 a.) pd. án umbúða. — Saltfiskr. Prá Spáni
seinast gefið fyrir farm frá Vestmannaeyjum (af stórum fiski)
36 rm. (33 kr.) á skipsfjöl við ísland. Tveir vestfirskir farmar
frá ísafirði seldir á 41—42V4 rm. (36V2—37V8 kr.) að meðtöld-
um flutningi til Noregs. Tveir vestfirskir farmar af smáfiski og
ýsu seldir til Genua, á 50 og 40 kr. skipd. á skipsfjöl við ísland.
Á Englandi seinast gefin 15V2 pd. steri. fyrir smáfisk, 12V2 pd.
sterl. fyrir ýsu, þ. e. smálestina. í Khöfn vestfirskr fiskr hnakka-
kýldr stór seinast seldr á 52—55 kr. og austfirskr óhnakkakýldr
40, 42, og 43 kr., enn sunnlenskr 38 kr., ýsa 33—34 kr., smá.
fiskr 35—38 kr. og langa 50 kr. — Rarðfiskr besti seldr á 136
kr., lakari 72 kr. Nú óselt í Khöfn um 450 skpd. af lakara
harðfiski, sumt freðíiBkr. — Lýsi. Ljóst hákarlslýsi gufubrætt
síðast selt á 303/4—313/4 kr., og pottbrætt 30V2—31 kr., þorska-
lýsi ljóst Sl’/a—32V2 kr., alt grómlaust og auk ílátsins. Dökt
lýsi 23, 26, 27, 28—29 kr. — JJúnn 83/4 til 10 kr. eftir gæðum.
Sundmagar 40—45 a. — Lambskinn seinast seld á 75, 80, 82*/«
85 til 90 kr. hundraðið (100) einlitt; nú fást varla meira enn
80 kr. — Sauðakjöt á boðstólum á 38 kr. tunnan i haust, enn
árangrslaust. — Sauðskinn, söltuð, 4—5 kr. vöndullinn (2 gærur).
Búgr 5,80—6,25 100 pd. Rúgmjöl 6,50—6,80. Bankabygg
8,50—8,25. Kaffi, meðal 64—66 a., lakara 61—63 a. Kandís 17
a. Hvítasykr 173/4—18 a. Púðrsykr (farin) 14—24V2 a.
Laust prestakall. Staðr í Grunnavik (1041).
Á því hvílir lán 1000 kr., er borgast með 62,60
árlega í 16 ár auk vaxta. Augl. 28. sept.
Ileiðrsgjafir af styrktarsjóði Kristjáns konungs
9. hafa þessir menn fengið í þetta skifti: Guðmundr
bóndi Guðmundsson á Auðnum á Vatnsleysuströnd
fyrir framúrskarandi húsabyggingar, jarðabætr
og sjávarútveg og Jón bóndi Guðmundsson áEfriBrú