Fjallkonan - 08.02.1893, Page 1
Nr. 6.
X. ár.
FJALLKONAN.
Arp. 3 kr. (4 kr. erlendis). Gjalddagi 15. julí. Reykjavík, 8. febrúar 1893. Skrifsí. og afgreiislust.: Þingholtsstrseti 48.
Sveitamenn
sem koma til Reykjavíkr, bæði langferðamenn og
kaupendr blaðsins úr nærsveitunum, ættu að koma
við á afgreiðslustofu biaðsins í Þingholtsstræti 18,
þar sem útgef'andann er venjulega heima að hitta.
Með þvi móti getr blaðið oft fyr fengið fregnir um
ýmislegt sem við ber, einkanlega hér nærlendis,
og það getr einnig greitt fyrir útsending þess í
nærsveitirnar. Þótt aðrir blaðstjórar sýni ef til vill j
gestum sínum meiri mannúð og gestrisni, vonum
vér, að langferðamenn og kaupendr Fjallkonunnar
hér í nágrenninu telji ekki eftir sér að koma við í j
Þingholtsstræti 18.
Drykkjuskapr, hófsemi, bindindi.
n.
(Niörl. síðari greinar).
Harðar deilur hafa oft orðið um það í ritum og
ræðum, hvort hollara sé eða affarasælla, hófsemi
eða algert bindindi. Hinir ströngustu bindindis-
menn halda þvi fram, að hófsemi i drykk sé engin j
dygð, enn vitanlega kemr sú kenning í bága við i
kenningar biblíunnar, þar sem hófdrykkja er leyfð j
og miklu fremr boðin enn bönnuð, og því er það,
að ýmsir guðfræðingar eru mjög mótfallnir albind-
indi. Yér erum þó ekki svo fastir við kenningu ]
biblíunnar í þessu atriði, að vér getum álitið hana
eiga við á vorum tímum. Hófsemin getr verið góð,
og dygð getr hún talizt hjá sumum, enn mennirn-
ir eru svo misjafnlega gerðir, að það sem er dygð j
af einum er engin dygð af öðrum. Það er og víst,
að ekki geta allir vanið sig á að gæta hófs í drykk,
að minsta kosti meðan menning manna er ekki
komin lengra á leið enn nú er. Er því í öllu til-
liti tryggast fyrir almenningsheillina, að enginn
neytti víns, þótt það geti verið skaðlaust fyrir
suma af einstaklingunum, og jafnvel holt í ein-
hverjum tilfellum.
Það er líklegt, að reglulegum bindindisfélögum
geti með góðri stjórn tekizt betr að útrýma drykkju-
skap enn hófsemdarfelögunum, af því að í bind-
indinu verða minni undanfærin, enn því miðr hefir
reynslan sýnt, að fjöldi þeirra manna, sem gerast
bindindismenn, drekka eftir sem áðr, enn drekka
þá venjulega minna, fylgja þá hófsemdarreglunum,
þar sem hófsemdarfélagsmenn hafa að likindum
enn minna taumhald á sér. — Hvorttveggja miðar
til að útrýma drykkjuskapnum, og vér erum á því,
að hollast sé að beita sem flestum ráðum gegn
honum, og þvi geti hófsemisnautn áfengra drykkja
verið gagnleg til siðbóta, ekki síðr enn albindindi.
Þegar um algerða útrýming drykkjuskapar er að
ræða, er að voru áliti ekki um annað að gera enn
algert vínsölubann. Þetta játa einnig bindindis-
mennirnir, og að þessu takmarki virðast Gróðtempl-
arar nú keppa, þótt það sé sama sem dauðadómr
bindindisfélaganna. Enn vér þykjumst vissir um,
að alþingi mundi naumast fyrst um sinn fallast á
slíkt frumvarp og mundi drykkjuskaprinn geta
gert hér ærið tjón áðr enn því máli yrði framgengt,
og þó alþingi kynni að samþykkja slík lög, mundi
stjórnin verða enn ótilleiðanlegri. Yér hyggjum
því, að til þess sé ekki hugsandi að svo stöddu.
Hinsvegar erum vér góðrar vonar um, að al-
þingi kynni að fallast á lög, er veitti sýslunefnd-
um og bæjarstjórnum heimild til að gera samþykt-
ir til að takmarka vínsölu eða banna hana, á líkan
hátt og lög eru í Noregi og víða í Bandaríkjunum.
Yér höfum hér að framan drepið á, að slík lög
hafi reynzt vel, og þau gæti jafnvel orðið nauðsyn-
legr undirbúningr til þess, að algert vínsölulubann
yrði lögtekið fyrir alt landið, eða bann á aðflutn-
ingi víns og víngerð.
í annan stað álítum vér rétt, að alþingi, til reynslu,
veitti bindindisfélögunum nokkurn fjárstyrk til
eflingar bindindi með vissum skilyrðum, svo sem
500 kr. á ári.
Niðrjöfnun aukaútsvara.
(Niðrl.). 3. gr. Álagningu aukaútsvars á hina föstu
gjaldstofna skal haga þannig:
1. Á lausafé, er gjaldandi á sjálfr, legst víst gjald
á hvert tiundarhundrað, sem ekki er undanþegið í
annari grein, tölul. 1. og 2.
Á byggingarpening, er full leiga gelzt eftir, skal
gjaldið vera helmingi lægra.
2. Á eignartekjur leggist jafnmikið gjald á
á hverjar 100 kr., sem á 21/,, lausafjárhundrað, með-
an tekjurnar stíga ekki yfir 500 kr., enn það sem
þær eru fram yfir, jafngilda hverjar 50 kr. tveimr
lausafjárhundruðum.
3. Á atvinnutekjur leggist:
a) Á hverjar 100 kr. sem á eitt lausafjárhundrað.
b) Á hverjar 150 kr. sem á eitt lausafjárhundrað,
meðan tekjurnar ná ekki yfir 900 kr. Enn frá
900 kr. upp að 1800 kr., jafngildi hverjum 125
kr. eitt lausafjárhundrað.
Fari tekjurnar þar á móti yfir 1800 kr., telst
það sem framyfir er undir stafl. a.
4. Á fastar verzlanir legst útsvarið þannig:
a) Á húsverð jafnmikið á hverjar 1000 kr., sem á
eitt lausafjárhundrað.
b) Á vörusölu alt að 24000 kr. leggist jafnt á
hverjar 800 kr. sem á eitt lausafjárhundrað og
*/4 hærra á það sem umfram er.
5. Á húseignir einstakra manna sé farið eftir
sömu hlutföllum sem á verzlunarhúsum.
4. gr. Yið niðrjöfnun aukaútsvara skulu sérstak-
ar ástæður gjaldenda teknar til greina, að þvi leyti