Fjallkonan - 08.02.1893, Qupperneq 4
24
FJALLKONAN.
það um varnarþing í skulda-
málum og ýms viðskiftaskil-
yrði, sem fram kom á alþingi
1889. Slík lög væru jafnt í hag
skuldheimtumöanum sem skuldu-
nautum sjálfum. Ennffemr leggr
höf. til, að það mundi heppilegt
að gefa sáttanefndum dómsvald í
hinum minni skuldamálura og gera
málfærsluna óbrotnari í þeim, eins
og nú er orðið að lögum í Noregi.
— 4. ritgerðin er „um doða á
kúm og lækningatilraunir við hon-
um“ eftir Jónas Jónasson. — 6.
ritgerðin er „um sjúkdóma hús-
dýra vorra“ eftir séra Stefán Sig
fússou. — Aftast í ritinu er yfir-
lit yfir atvinnumálahagi hór á landi
1891, og upptalning 4 ritgerðum
í biöðum og bókum um það efni,
sem út komu það árið.
Lungnabólga stingr sér niðr
austanfjalls og hafa dáið úr henni
tveir jbændr: 1. þ. m. Jón bóndi
Eiríksson í Kampholti, 54 ára, og
18. jan. Mattías Sigurðsson á Syðra-
Yelli, 61 árs, báðir velvirðir menn
og vinsælir.
Hafís rak að Ströndum nyrðra
seint i jan. og gerði landfastan í
Húnaflóa rétt fyrir mánaðarlokin.
Ekki var ísinn mjög mikill úti
fyrir, enn fylti allar víkr. Yeðr-
áttan var jafnframt farin að versna
nyðra, norðanrok og snjókoma.
Prestaköll. Um Arnarbæli eru í kjöri:
Bjarni prófastr Þórarinsson á Prestsbakka,
séra Jónas Jónasson á Hrafnagili og séra
Ólafr Ólafsson í Guttormshaga.
Um Háls í Fnjóskadal eru í kjöri kandi-
datarnir: Einar Pálsson, Ófeigr Vigfússon
og Vilhjálmr Briem.
Póstskipið er enn ókoraið, enn
átti að koma hingað 28. jan. eftir
áætluninni. Liklega hefir skipið
tafizt af óveðrum í Færeyjum, eins
og oft hefir áðr komið fyrir, (nema
is hamli) því í Pórshöfn er hafn-
leysa eins og hér og uppskipun
miklu verri enn hér, ef nokkuð er að
veðri. Pessi viðkoma póstskipanna á
Færeyjum gerir oft mikla hindrun á
ferðum póstskipanna hingað og getr
kveðið svo ramt að því, að menn
um alt land bíði tjón af því, eins og
nú lítr út fyrir að verði, þar sem
póstrinn frá útlönduin kemst ekki
út um landið með fyrstu póstferð-
x 6
Hinn eini ekta
Brama-lífs-elixír.
(Heilbrigðis matbitter).
I þau 20 ár, sem almemiingr hefir notað bitter þenna, hefir hann
rutt sér i fremstu röð sem matarlyf og lofstír hans breiðst út um
allan heim.
Honum liatá hlotnast hæstu verðlaun.
Þegar Brama-lífs-elixír hefir verið brúkaðr, eykst öllum líkamanum
þróttr og þol, sálin endrlifnar og fjörgast, maðr verðr glaðlyndr, hug-
rakkr og starffús, skilningarvitin verða nœmari og menn hafa meiri
ánœgju af gæðum lífsins.
Enginn bitter hefir sýnt betr að hann beri nafn með rentu enn
Brama-lífs-elixír, enu sú hylli sem hann hefir náð hjá almenningi,
hefir gefið tilefni til einskisnýtra eftirlíkinga, og viljum vér vara
menn við þeim.
Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá útsölumönnum vorum,
þeim sem fengið hafa umboð frá oss, sem eru þessir:
Akreyri: Hr. Carl Höepfner.
---- Grránvfélagið.
Borgarnes: Hr. Johan Lange.
Dýrafjörðr: Hr. N. Chr. Gram.
Húsavík: Örum & Wulffs verslun.
Keflavík: H. P. Duus verslun.
—— Knudtzon’s verslun.
Reykjavík: Hr. W. Fischer.
---- Hr. Jón 0. Thorsteinson.
Raufarhöfn: Gránufélagíð.
Sauðárkrókr: -------
Seyðisfjörðr: -------
Siglufjörðr: -------
Stykkishólmr: Hr. N. Chr. Gram.
Vestmannaeyjar: Hr. J. P. T. Bryde.
Vík pr. Vestmannaeyjar: Hr. Halldór Jóns-
son.
Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Gunnlögsson.
Einkenni: Blátt Ijón og gullinn hani á einkennismiðanum.
Mansfeld-Búllner & Lasscn.
hinir einu sem böa til hinn
verðlaunaða Brama-lífs-elixír.
Kaupmannahöfn, Nörregade 6.
um. — Þessar Færeyja-ferðir póst-
skipanna ættu því íslendingar að
afsegja með öllu.
Komi skipið ekki í þessari ferð,
verðr hér skortr á ýmsum nauð-
synjum.
Sjónleiki hafa Good Templarar
leikið hér í bænum í nokkur kveld
og tekizt eftir vonum. Leikirnir
eru þrír, og hefir enginn þeirra
verið iQÍkinn hér áðr. — í Hafnar-
firði hefir verið leikinn nýr leikr
islenzkr, sem heitir „Sýslunefndin11,
enn ekkert kunnum vér af honum
að segja.
Heglusamr og duglegr maðr getr fengíð
v 1 s t í Bernhöfts bakaríi frá 14. maí næst-
komandi.
Johanne Bernhóft.
Lampaglös (vanaleg) á 16 a., úr
kri8talgleri 30 a. Munntóbak 2 kr. pd.
Sökkulaði 60 a. Borðhnífar 10 kr. dús.
Gafílar 22 kr. dús. Skeiðar 22 kr. dús.
í verzlun Magnúsar Einarssonar
á Vestdalseyri.
Brúkuð íslenzk frímerki kaup-
ir útgef. Fjallkonunnar.
Hadicirit gömul af
Oísla sögu Súrssonar og Bjarnar
sögu Hítdœlakappa kaupir útgef-
andi Fjallk. háu verði, ef nokkurs
virði eru.
Hvítt, norðlenzkt ullarband,
þrinnað, er til sölu á 2,10 í Þingholts-
stræti 18.
inbiiö er til leigu í stóru
og vönduðu húsi á góðum stað í
. bænum frá 14. maí í vor, 4—5
herbergi ef vill, auk svefnherbergis,
j eldhúss, nægra geymsluherbergja,
j kálgarðs o. fl. Ritstjóri visar á.
Þessi blöð úr Fjallk. kaupir útg.:
No. 1, 2, 5 og 6 úr árg. 1890.
No. 2,4, 7,11 ogl4 - — 1891.
Stanleys feröasaga í ágætu
bandi er til sölu á 10 br. Ritstj.
vísar á.
Bækr til sölu
á afgreiðslustofu Fjallkonunnar:
Únítara katekismus á 1 kr.
Ræba eftir séra M. Skaftason
30 au.
Hans Natanssonar kvœði á 1. kr.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og
hjá Dr. J. Jónassen, sem einnig
gefr allar nauðsynlegar upplýsing-
ar um lífsábyrgð.
r
Iverslun Magnúsar Einarssonar úr-
smiðs á Vestdalseyri við Seyðisfjörð
fást ágæt vasaúr og margskonar vand-
aðar vílrur með mjög góðu verði.
Útgefandi: Valdimar Ásmnndarson.
Fél agsprentsmiöj an.