Fjallkonan


Fjallkonan - 09.05.1893, Blaðsíða 4

Fjallkonan - 09.05.1893, Blaðsíða 4
76 FJALLKONAN. X 19 H. Th. A. Thomsens verzlun í Reykjavík hefir nú aftr fengið húsfylli af alls konar þarflegum og hentugum varningi. Nauðsynjavörur allar fyrir kaupst.aðabúa, sjávar- og sveitabændr, og hefir þess sérstaklega verið gætt, að velja vörurnar af beztu tegundum. Nýlenduvörur, niðrsoðið sælgæti, veiðarfæri, byggingarefni alls konar, litunarefni, málmar, tól fyrir alia iðnaðarmenn og heimaiðnað, saumavélar margreyndar að endingu, eldhússgögn enn vandaðri og fjölbreyttari enn áðr, sópar, burstar og körfur, leðr og skinn ódýrt, skófatnaðr frá hinum beztu þýzku verksmiðjum, hattar og húfur af öllum tegundum, tóbak og vindlar af ýmsum nýjum tegundum, vín- fóng alls konar og sodavötn, glervarningr um 10,000 pd., glysvarningr alls konar og margt, margt fleira. Vefnaðarvörur, sem geta staðizt alla samkeppni. Sérstaklega hagfeldr kaupsamningr hefir verið gerðr við einn af stærstu verksmiðjueigendunum ensku, og sel ég því enskan varning manna ódýrast. Baðmullarsjöl ensk með ýmsu verði, þýzk sjöl endingargóð og með hinura nýjustu gerðum og litum. sérstaklega meðmælingarverð, á 20.00, svört sjöl frá 3.00—24.00. Klæði enn ódýrra enn vant er, karl- mannsfataefni úr íslenzkri ull, al. 3.00—5.00, tvíbreitt, kvenbúningr ýmislegr, svuntudúkr með nýja litnum, sem eru eiginlega tveir litir, sól- og regnhlífar, sömuleiðis flónel, erfiðismannafataefni ýmisleg, sængrdúkar, baðmullar-svuntudúkar, lérept, sirz, silki, flauel, vaxdúkar, strigi, gólf- og borðdúkar, klútar alls konar, nærfatnaðr tilbúinn, margar tegundir, þar af töluvert úr íslenzkri ull, bönd, snúrur, borðar, tölur og hnappar, nálar, prjónar, band úr íslenzkri ull og m. m. fl. ómögulegt er að te)ja hér upp allar þær vörutegundir, sem til eru, og eru menn því beðnir að koma sjálfir og sannfærast um gæði og gott verð á varningnum. Vörumegnið mun reynast meira og margbreyttara enn nokkursstaðar annarsstaðar, og geta menn því oftast fengið einmitt þann hlut sem þeim hentar í svipinn, hvort hann er stór eða smár. Auðsætt er, hversu mikið hagræði getr verið fólg- ið í þessu. Fjarsveitamenn ættu að hagnýta sér til hagkvæmra vöru-innkaupa hinar fyrirhuguðu sjóferða-sam- göngur er komast á í sumar. Pantanir eru leystar samvizkusamlega af hendi, séð um góðan útbúnað, og gengið vei frá því, er senda skal. Giufúskipið „S0LIDE“, 92 smálestir, fer beina leið 8. júní til Seyðisfjarðar, kemr við í Hafnarflrði og Vogum, ef farþegar bjóðast þar, enn fremr i Keflavík, Girindavík og Vestmanna- eyjum. Aðra ferð fer skipið austr á Eskifjörð, fljóafjörð og Seyðisfjörð 24. júní, ef farþegar bjóðast. Þeir sem fara austr með þessu skipi, sitja í fyrirrúmi, að komast með því til baka í septbr. Fargjald aðra leið 15. kr., fram og til baka að eins 25 kr. Notið þetta skip, því þá er vissa fyrir, að fá þessar samgöngur framvegis. Að öðru leyti gengr skipið í sumar milli Reykjavíkr og Víkr, með millistöðvum, og fer 2 ferðir til Skotlands. Skipið verðr útbúið þannig, að farþegar hafi þægilegan aðbúnað í skipinu. Menn panti far sem allra fyrst. Reykjavík, 7. maí 1893. Björn Kristjánsson. Nr. 8. Gothersgades Materialhandel. Nr. 8. í Khöfn, stofnuð 1885, selr í stórkaupum og smákaupum allar material- og kolonial- og delika- tesse-vörur, ágætlega vandaðar og fyrir vægt verð. M. L. Möller & Meyer Kjöbenhavn K. Samtaisbók íslenzk-frönsk, eftir Pál Þerkelsson, sem er hand- hægr leiðarvísir til að geta komið fyrir sig orði við franska menn, er til sölu á 1 kr. Aðalútsölu hefir: bókaverzlun Sigf. Eymundssonar. Hvítt, norðlenzkt ullarband, þrinnað, er til sölu á 2,10 í Þingholts- stræti 18. Praktísérandi læknir, Undirskrifaðr er aftr seztr að sem praktisérandi læknir hér í bænum, sérstaklega í eyrna- nef- oghálssjúkdómum. Migeraðhitta frá kl. 12—2 í Bankastræti 7. Tómas Helgason. Hestajárn og ljábakkar og annað járnsmíði fœst hvergi á landinu meö jafngóðu verði sem hjá undirskrifuðum, og bið ég mína heiðruðu viðskiftamenn og aðra, sem vilja eiga kaup við mig, að senda mér pantanir sínar nðgu snemma, til þess að þær verði afgreiddar í tæka tíð með strandferðunum. Benedikt Samsonarson, Skálholtsgötu, Reykjavík. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og i hjá Dr. J. Jónassen, sem einnig gefr allar nauðsynlegar upplýsing- j ar um lífsábyrgð. Húsnæöl er til leigu, hvort heldr handa ein- hleypum eða familíu frá 14. mai, Þeir sem ætla að kaupa ný úr, ættu að kaupa þau hjá Giuðjónl Sigurðssyni, úrsmið á Eyrarbakka, því þar hafa menn vissu fyrir að fá góð úr (og vel ,,aftrekt“) fyrir lægsta verð. Komið og sjáið þau áðr enn þér kaupið úr annars- staðar. Útgefandi: Valdimar Ásmundarson. Félagsprentsmiöjan.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.