Fjallkonan - 05.09.1893, Page 2
142
FJALLKONAN.
X 36
ust þingmenn með hnúum og hnefum. Kemr slíkt
eigi að jafnaði fyrir í þingsölum Engla. Búizt er
við að B. umræðu verði lokið á föstudaginn. Yerðr
þingi þá slitið um stund, enn aukaþing haldið í
haust.
Grrikklaml. Skurðinum í gegn um Korinþueiði
er nú lokið. Yar siglt út um hann í fyrsta
skifti 6. ágúst.
Dáinn er einn af frægustu læknum Frakka, Jean
Martin Charcot. Hann andaðist 17. ágúst og var
68 ára. Hann er talinn frægastr taugalæknir af
samtíðarmönnum sínum.
Kóleran stingr sér niðr allvíða i Frakklandi,
Spáni, ítaliu og Bússlandi. í Berlín dóu B menn
fyrir skömmu. Sóttin er þó ekki mjög skæð. Yerst
er hún í sumum héruðum Bússlands.
Sýslumannseinbætti í Barðastrandarsýslu er veitt
Páli Einarssyni, málflutningsmanni við yfirdóminn,
frá 1. okt.
Hr. Schierbeck landlæknir er nú talið víst að
muni fá stiftlæknisembætti í Yébjörgum á Jótlandi.
Háskólasjóðr. Nokkrir þingmenn gerðu samtök
í þinglok og tóku í fylgi með sér fáeina menn úr
Beykjavík, einkanlega kaupmenn, til að gangast
fynr samskotum utanlands og innan til háskóla-
stofnunar hér á landi. Forstöðunefnd þessa fyrir-
tækis er skipuð níu mönnum, og eru þeir þessir:
Bened. Sveinsson, alþ.m., Hannes Þorsteinsson, rit-
stj., Dr. Jónas Jónassen, Jón Yidalín, kaupmaðr,
Dr. Jón Þorkelsson, alþ.m., Sighv. Árnason, alþ.m.,
Sigurðr Gunnarsson alþ.m. og Þórhallr Bjarnarson
docent. Sjóðr sá, sem myndast af samskotunum, á
að heita „Háskólasjóðr íslands“, og söfnuðust í hann
2—3 fyrstu dagana um 1000 kr., enn líklega fer
sjóðrinn ekki að sama skapi dagvaxandi framvegis.
Fyrirtæki þetta virðist munu geta stutt að fram-
gangi háskólamálsins þegar fram líða stundir, enn
að likindum á það enn langt í land.
Settr héraðslæknir í Norðrmúlasýslu (umdæmi
Þ. Kjerulfs) Jón Jónsson kand. med. & chir. (frá
Hjarðarholti).
Slys. Maðr hrapaði til bana á Yestmannaeyjum,
í Stóra Klifi, sem kallað er, 26. ágúst, Sigurðr
Sigurðsson, frá Sjólyst (ættaðr úr Landeyjum). Hann
var við fýlungaveiði með tveimr mönnum öðrum.
Nýtt blað enn. Sagt er að von sé á nýju blaði
frá ísafirði, frá hinni eldri prentsmiðju þeirra Is-
firðinga, sem nú á að taka til starfa af nýju með
h&ustinu, enn Þorvaldr læknir Jónsson mun vera
helzti forgöngumaðr.
Bókasafn E. Ó. Bríms. Kirkjufélag íslendinga
í Yestrheimi hefir afráðið á þingi sínu, að kaupa
bókasafn það er séra E. Ó. Brím lét efbir sig, fyrir
|300. Safnið er eitt af beztu söfnum einstakra
manna hér á landi og í þvi öli íslenzk tímarit og
blöð. Kirkjuþíngsmenn skutu i einu saman rúmum
200 dollars, til kaupanna. Ætlazt er til að þetta
safn verði byrjunarstofn á bók&safni handa hinum
fyrirhugaða skóla kirKjufélagsins.
Póstskipið (Laura) kom 1. sept., einum degi á
undan áætluninni. Með því komu örfáir farþegar.
Ycr/luiiarfréttir frá Kaupmannahöfn eru heldr
daufar. Saltúskr gengr ekki út að sögn á Spáni
fyrir 47—48 rm. Svipað útlit í Englandi. Harð-
fiskr í 130—150 kr. og gamall freðinn á 30 kr.
Vll selzt einuig illa, haldið í 65 au., hefir selzt
bezt á 64—66 au. Lýsi (h&karls) ljóst, gufubrætt á
30'j2 kr. og pottbrætt á 30 kr. o. s. frv., þorska-
lýsi á 26—28 kr. Æðardímn 8—9 kr.
íslenzkir munir á Cliicago-sýningunni. í blað-
inu Chicago Sun er þess getið, að íslenzkir sýnis-
munir sé komnir á Chicago-sýninguna undir umsjón
frú Sigríðar E. Magnússon frá Cambridge. Þessir
munir eru íslenzkr heimilisiðnaðr og iðnaðr frá hin-
um hærri kvennaskólum í Beykjavík. „í þessari
íslenzku sýningu eru hannyrðir kvenna og meyja
og þar á meðal fingr&vetlingar úr ull, samskonar og
Victoria drotning og prinsessan af AYales brúkar,
sem unna mjög hinum íslenzku hannyrðum. Þar
eru einnig spennur og belti úr silfri með marg-
brotnum hagleik. Frú Magnússon verðr á sýning-
unni í íslenzkum búningi og sýnir hvernig spunn-
ið er á íslandi41.
Hr. Sigfús Eymundssou hefir ferðazt um bygðir
íslendinga í Can&da og er von á skýrslum um ferð-
ir bans í „Lögbergi“. Hann mun einnig fara á
Chicago-sýninguna. Ætlaði að hefja heimferð sína
um 20. ágúst.
Séra Matthías Jochumsson hafði farið frá Chi-
cago til Wmnipeg, og var honum boðið þangað af
íslendingum. Þar var hann á „íslendingadegin-
um“, eða hátíð þeirri, sem Islendingar þar eru vanir
að halda 2. ágúst, og hélt þar ræðu og orti kvæði
fyrir minni Vestr-íslendinga.
Kaupfélag Vestmanneylug'a. Eftir bréfi frá Vestmannaeyjum
er verð á vorum í kaupfélagi YeBtmanneyinga og í verzluninni
þar þannig:
í kaupfélaginu: í verzluninni:
200 pd. rúgmjöl 16,10 200 pd. rúgmjöl 19,00
200 pd. bankabygg 18,00 200 pd. bankabygg 23,11
200 pd. overheadmjöl 16,50
200 pd. hafragrjón 18,00 200 pd. grjón 25,00
200 pd. ertur 19,00 200 pd. ertur 22,00
200 pd. flórmjöl 24,00 200 pd. flórmjöl 36,00
1 pd. kaffi 0,90 1 pd. kaffl 1,25
1 pd. kandis 0,28 1 pd. kandis 0,36
1 pd. export 0,40 1 pd. exportkaffi 0,45
1 pd. kaffirót 0,36
1 pd. rúsínur 0,16 1 pd. rfisínur 0,30
1 tunna steinolia 26,50 1 tunna steinolía 34,00
færi, 4 pd. 60 faðm. 3,00 færi, 4 pd. 60 faðm. 4,50
1 pd. tvíbökur 0,36 1 pd. tvíbökur 0,45
1 pd. grænsápa 0,20
1 pd. fernisolía 0,36 1 pd. fernisolia 0,50
1 pd. munntóbak 1,60 1 pd. munntóbak 2,10
Testmannaeyjum, 31. ágúst. „Seinni partjúnímán. og meiri
bluta júlí var fremr rosasamt, og þess vegna erfitt að verka
saltfisk, enn ágætt grasveðr. Oftast fremr vindasamt, eftir því
sem vant er um þann árstíma. Allan þennan mánnð stöðugr
þerrir. — Plest tún, sem eru í viðunanlegri rækt, spruttu mjög
vel; hafa sum þeirra verið tvislegin að nokkru leyti, sem hér
er sjaldgæft. Hey hafa flestir fengið með mesta mðti, enn þó
nokkuð hrakið. — í júnímán. var haldinn fundr hér með nokkr-