Fjallkonan


Fjallkonan - 03.07.1894, Qupperneq 2

Fjallkonan - 03.07.1894, Qupperneq 2
106 FJALLKONAN. XI 27 stórveldi, sem blöð eru í flestum öðrum lönd- um. Jafnframt er það lagt til, að ritstjórar frjálslyndu blaðanna ættu að halda fund með sér til að ræða ýmislegt er að landsmáium og blaðamensku lýtr. Það er að vísu satt, að hin frjálslyndu blöð hér á landi greinir nú á í ýmsum atriðum, þótt þau fylgi yfirieitt sömu stefnu í öllum höfuðmálum. Virðist því tillaga Þjbðv. unga orð í tíma talað. Það virðist og hægðarleikr fyrir ritstjóra hinna frjálslyndu blaða sunnan lands og vestan, að eiga fund með sér í Reykjavík, t. d. um alþingistímann í sumar, enn þá er eftir að vita, hvort ritstjórarnir að norðan og austan geta sótt þann fund. Gætu þeir, ef til vill, sett aðra menn í sinn stað til að mæta á fundinum. Samtök milli hinna frjálslyndu biaða eru nú því fremr nauðsynleg, sem hin ófrjálslyndu blöð, mál- gögn skriffinsku, klerkavalds og verzlunarkúgunar taka nú höndum saman landshornanna á milíi til þess að vinna þjóðinni það mein sem þau geta. Frá útlöndum. Snemma í f. m. dó soldáninn í Marokko, Muley Hassan; hafði sýkzt í herferð móti uppreisnarflokki nokkurum. Honum er svo lýst, að hann hafi verið maðr fróðleiksfús og allvel mentaðr. Sagt er svo, að ef til vill verði deilur nokkrar um ríkiserfðina, og hefir það einkum þýðingu að því leyti, sem Marokko kynni að verða þrætuepli fyrir þjóðir þær er um yfirráðin keppa við Mið- jarðarhafsstrendr (Engl., Frakkl., Ítalíu og Spán). Snjór hafði fallið í júnímánuði í sumum Mið- Evrópulöndum. Haglhríð ógurleg með stormi hafði komið í Vínar- borg 8. júní og gert stórskemdir; haglkornin á stærð við dúfuegg, og meiddust menn af þeim og enda hestar lömdust til bana. Um 500,000 gluggarúður brotnuðu í borginni. Stúdentapróf. Útskrifaðir úr latínuskólanum 30. f. m. þessir: eink. stig 1. Halldór Steinsson .... með I 98 2. Georg Georgsson ...... — I 96 3. Guðmundr P. Eggerz . . . — I 93 4. Jón Þorvaldsson — I 91 5. Haraldr Þórarinsson . . . — I 86 6. Magnús Jóhannsson .... — I 85 7. Jón P. Blöndal — I 84 8. Axel Schierbeck — n 78 9. Guðmundr Pétrsson , . . . — H 73 10. Sigtryggr Guðlaugsson . . — H 69 11. Þorvarðr Þorvarðarson . . — H 69 Hinn 12., Jón Runólfsson, gat eigi lokið prófi samferða hinum sakir veikinda. Embættispróíi í læknisfræði luku 28. f. m. hér við læknaskólann: eink. stig Sigurðr Pálsson....................með I 96 VUhelm Bernhöft.....................— H 88 Skúli Árnason.......................— II 76 I'róf í forspjallsvísindum á prestaskólanum tóku- 27. f. m. þessir stúdentar: Jón Stefánsson . . . , með eink. dável + Páll Jónsson...........— — dável + Benedikt G. Þorvaldsson — — vel -t- Alþingiskosningar. Barðastrandarsýsla: séra Sigurdr Jensson. Norðr-Þingeyjarsýsla: Benedikt Sveinsson, 13 atkv. (Séra Þorleifr Jónsson á Skinnastað fékk 7 atkv.). Norðrmúlasýsla: séra Einar Jönsson og Jön Jönsson í Bakkagerði. Suðrmúlasýsla: séra Sigurðr Gunnarsson, 84 atkv. Guttormr Vigfússon 61 atkv. (Séra Lárus Halldórsson fékk 43 atkv.). Er þá frétt um allar þingkosningar í landinu. Bæjarbruni. 11. þ. m. brann til kaldra kola um hádag bærixm að Svínárnesi á Látraströnd, að Þorsteins bónda Gíslasonar, og varð litlu bjargað af lausum munum. Kviknaði eldrinn í þekju við víndskeið á stofuþili, og veit enginn, hvernig það hefir atvikazt. Áukalæknar. Læknaskólakand. Olafr Finsen hefir verið skipaðr aukalæknir á Skipaskaga fyrir fult og alt; og læknaskóiakand. Friðjón Jensson sem aukalæknir í hið nýja læknisdæmi á Mýrum (miili Straumfjarðarár og Langár). Vikið frá embætti. Einari Thorlacius, sýslu- manni í Norðrmúlasýsiu, er vikið frá embætti að sinni, enn í hans stað er settr sýslumaðr í Norðr- múlasýslu Axel Tulinius, kand. jur., sem verið hefir fulltrúi bæjarfógetan3 í Reykjavík. Druknan. 24. júní druknaði í Markarfljóti Sæ- mundr Jónsson frá Syðstumörk, ungr maðr, rúm- lega tvítugr, sonr Jóns Sigurðssonar í Syðstumörk, merkisbónda. Brydes verzlun hefir nú tekið sér bólfestu á Eyraxbakka í húsum Guðm. ísleifssonar á Háeyri, sem þar var kaupmaðr. Býðr þessi verzlun að gefa 5 au. meira fyrir ullarpundið enn aðrar verzl- anir þar á staðnum og 2 kr. meira fyrir skippundið af saltfiski. Bænahús í Furufirði. Ábyrgðarmenn sparisjóðsins ís- íirzka hafa, auk 2000 kr. gjafar til sjúkrahóss á Ísaíirði og 300 kr. gjafar til ekknasjóðs drukknaðra þar, veitt 500 kr. til bygg- ingar bænahúss í Furufirði á Ströndum. Þar var kapella til forna og með pessu endrreista bænahúsi og væntanlegum graf- reit áfast við það verðr bætt úr hinum mestu vandræðum, því að ókleyft mátti heita að koma líkum frá þeim bæjum, alténd á vetrardaginn, suðr yfir fjöll og firði að Stað í Grunnavík. Dánir eru á Akreyri af afleiðingum influenza- veikinnar: Aðalsteinn Friðbjarnarson, bókbindari, sonr Friðbjarnar bóksala Steinssonar, efnilegr maðr, og HaUdór Pétrsson bókbindari og bóksali, gamall maðr, bókavinr mikill og mörgum að góðu kunnr. Eimskipið „Ásgeir Ásgeirsson“ kom hingað í gærkveidi, og með því eigandinn, Ásgeir kaupmaðr Ásgeirsson. Skipið kemr frá útlöndum með kol

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.