Fjallkonan


Fjallkonan - 01.08.1894, Síða 2

Fjallkonan - 01.08.1894, Síða 2
122 FJALLKONAN. XI 31 leyti, því þeir munu færri, enda miklu færri enn hinir, er búa á 20 hdr. jörð, og hafa 100 ær í kvíum, 4 kýr o. s. frv. Dæmið, sem höf. tekr, er því af betri bónda, enn þeir gerast í meðallagi hér á landi. Höf. gerir kýrnytina 2500 pt. að meðaltali um árið, enn það mun ofhátt áætlað, ef meðaltal væri tekið af öttum kúm á landinu. Þótt kýr Jóns Jóakimssonar hafi mjólkað til jafnaðar 3000 pt. um árið, þá sýnir það, að hann hefir farið betr með kýr sínar enn flestir aðrir, enda var búskapr hans fyrirmynd að flestu eða öllu. Og það sannar einnig, að framfarir geta orðið í þessari grein búnaðarins. Enn þegar á að sýna hvernig sveitabúskaprinn borgi sig nú, borið saman við kaupstaðarbúa eða embættismann, þá verðr að miða við það sem er, enn ekki það sem gœti verið, ef menn stunduðu betr atvinnu sína, eða rækju bú- skapinn með meiri þekkingu og krafti enn nú á sér stað. Sé þessa eigi gætt, getr samanburðrinn orðið villandi. Opinber útgjöld búsins ásamt afgjaldi jarð- arinnar reiknar höf. að eins 150 kr., enn haun tekr ekki með útsvar til fátækra, af því „það er svo mis- munandi á ýmsum stöðum“. Mátti ekki eins gera einhverja áætlun um það? Það er fleira „mismun- andi á ýmsum stöðum“ enn útsvar til fáækra, t. d. hvað kýr og ær mjólka o. s. frv. Annars er útsvar til fátækra víða þyngsti opinberi útgjaldaliðrinn er hvílir á bændum, og hefði að mínu áliti sjálfsagt átt að teljast með opinberu útgjöldunum, og þá eru 150 kr. oflágt reiknaðar. Þá getr höf. þess, að kaupstaðarbúinn, er hann tekr til dæmis, þurfi meiru að kosta til klœða og skæða handa sér og sínum heldr enn sveitabóndinn. Að þetta sé alls kostar rétt ályktun hjá hinum háttvirta höf., efast ég um. Mér getr ekki betr sýnzt, enn að bóndinn sem gengr með fólk sitt að allri útivinnu eins og hún kemr fyrir og oft í illviðrum, þurfi meira tii klæða og skæða heldr enn kaupstaðarbúi, embættismaðr, sem svo að segja aldrei þarf út fyrir húsdyrnar, að fráteknum læknum, og aldrei dýfir hendi í kalt vatn. Það er þó auðsær munr, að sitja við skrifborðið þur og hreinn, heldr enn að hirða skepnur í stórhríð, aka grjóti og rista torf í blautri mýri. Það lítr helzt út fyrir, að hinn háttvirti höf. sé bú- inn að gleyma fatasliti og skósliti, t. d. við fjárpössun, ferðalög með langar lestir, húsabyggingar og margt fleira. Það hefir víst enginn á móti því, að erfiðis- menn gangi á bættum fötum, þá þeir eru við vinnu sína og enda hvort sem er; enn það kostar líka tima og ómök að bæta föt. Enn sveitabændum, er alt verða að nota sem bezt, ef vel á að fara, þykir það tilvinnandi. Þeir hafa margir hverir heldr ekki efni á eða peninga að útvega sér ný föt, er gat kemr á þau eldri, eins og t. d. embættismennirnir sumir, er aldrei virðast koma í „borna flík“ auk heldr bætta. Og sé farið eftir því, að kaupstaðarbúinn, er dæmið getr um, þurfi nýjan klæðnað þrisvar til fjórum sinnum á ári, þá fer það að verða skiljanlegt, þó hann eyði meiru í föt enn sveitabóndinn. Ég hygg nú, að þegar öllu er á botninn hvolft, þá hafi sveita- bændr að jafnaði ekki afgangs til fæðis og klæðis sér og heimilisfólki sínu 191 kr. 33 au. handa hverjum einstökum, eins og höf. reiknar. Kaupstaðarbúi með 2000 kr. launum lifir betra Jífi heldr enn fjöldinn af bændum gerir hér eins og nú er ástatt, svo framar- lega sem hann er ekki óreglumaðr eða lifir í óhófi. Enn að sveitabúskapr geti borgað sig betr enn hann nú gerir efa ég alls ekki, svo framarlega sem hann væri betr stuudaðr enn alment á sér nú stað, og til þess ætti að hvetja menn bæði í orði og verki. Sigurðr Sigurðsson. Búnaðarritið. Nú er 8. ár Búuaðaðarritsins komið út undir rit- stjórn þeirra tveggja Hermanns Jónassonar og Sæ- mundar Eyjólfssonar, og er í því: 1. „Ferð um Þing- eyjarsýslu og Fljótsdalshérað“, eftir Sæmund Eyjólfs- son, sama ritgerð og áðr er prentuð að nokkru leyti í Fjallk. Hún sýnir allvel, hversu skógunum hefir farið aftr á þessari öld og næstliðinni öld, og lýsir ástandi skóganna nú, enn leggr fá ný ráð til að vernda þá, sem ekki eru áðr kunn. Ritgerð þessi hefði vel mátt vera styttri, og hefði höf. getað sparað sér ýmsa útúrdúra, sem hann gerir frá efninu, þótt ritgerðin hefði orðið þurrari fyrir það. — Samanburðr hans um efnahag manna í héruðum mun ekki vera alls kostar áreiðanlegr, sem naumast er við að búast, því til þess að fá yfirlit yfir það efni er ekki nóg að ríða um héruð; til þess þyrfti margar skýrslur, sem örðugt er að leita uppi. Hann segir, að verzl- unarskuldirnar muni hvergi þröngva harðar að kosti bænda enn í Þingeyjarsýslu, enn Suðr-Þingeyingar segja sjálfir, að verzlunarskuldir muni í engu héraði minni enn þar. — 2. ritgerðin í Búnaðarritinu er: „Hvernig borgar sig búskapr í sveit?" eftir Halldór Jónsson bankagjaldkera, sem minzt er á annars staðar í þessu blaði. — 3. „Um hina helztu sjúkdóma og kvilla búpenings vors“ (framhald frá fyrri árg.), eftir Stefán Sigfússon. Höf. er hneigðr til lækninga, og hefir aflað sér talsverðrar þekkingar á dýrasjúk- dómum og ráðum við þeim; mun því ritgerð hans flytja ýmsar góðar beudingar, enn það er galli á henni, að hún virðist vera skrifuð í flýti og málið mjög óvandað. Sá af .útgefendunum, sem búið hefir Búnaðarritið undir prentuu (S. E.), hefði að sjálfsögðu átt að lagfæra málið á þessari ritgerð. — 4. „Um tamningu hesta“, eftir Gunnar Ólafsson, og 5. „Um járningu hesta“, eftir Sveinbjörn Ólafsson, hvort- tveggja mjög vel samdar ritgerðir. — 6. „Um þök“, eftir Björn Bjarnarson, er eiginlega viðbætir við rit- gerð sama höf. um húsabætr í 6. árg. Búnaðarritsins, og gefr ýmsar góðar bendingar. — Loks er búnaðar- legt ársyfirlit, eins og í fyrri árgöngum, og skýrsla um verðlaunaðar jarðabætr (Jóns á Söndum). Það er galli á þessum árg., að í honum eru prent- villur meiri enn í meðallagi. I greininni úr „Quarterly Beviewu, sem stóð í síðasta blaði, hefði átt að leiðrétta það þegar með athugasemd, sem sagt er þar um herlið Dana. Danir hafa ekki 14,000 herliðs, heldr 43,000, og á ófriðar- tíma um 60,000, eða nærfelt jafnmarga hermenn og allir ísiendingar eru, og er það æðimikil hermenska í samanburði við stærð og efnahag þjóðarinnar.

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.