Fjallkonan


Fjallkonan - 01.08.1894, Page 3

Fjallkonan - 01.08.1894, Page 3
1. ágÚBt 1894. FJALLKONAN. 123 Alheimsvíðáttan. í stjörnufræðistímariti sínu (L’Ast- ronomie) segir Flammarion stjörnufræðingr: „Reynum að hugsa oss dýpt alheimsrúmsins. Vér fljúgum á stað og stefnum með leiftrhraða (þ. e. 300,000 kílometra á sekúndunni) á einhvern punkt himinsins. Á 372 ári náum vér til hinnar næstu sólar. Enn ekki stöldrum vér þar neitt við, heldr fljúgum áleiðis 10, 20, 100, 1000 ár með sama hraðanum til margra hitageislandi Bðlna og framhjá mörgum jarðstjarna hðpum. Vér höldum áfram að fljúga í önnur 1000 ár; vér þjótum, gegnum stjörnuhala, ljðmandi þokustjörnur og vetrarbrautina, sem greiðir flóka sinn út í ótölulegar veraldir; vér verðum sjónarvottar að tilorðningu og týningu ótal hnatta; stjörnurnar verða þéttar eins og drifa alt i kring um oss. Enn ekki stöndum vér við, heldr fljúgum stöðugt áleiðis, 10,000, 100,000 ár, ef til vill miljón ára, með af- dráttarlausum hraða. Loks þykjumst vér hafa náð takmarkinu. Nei, öðru nær. Alt af koma upp úr kafinu nýjar rúmvíddir, alt af blika nýjar og nýjar sólir. Enn þá ein miljón ára; nýjar uppgötvanir, nýjar veraldir. Hvað, enginn endir, enginn lyk- jandi sjóndeildarhringr, engin hvelfing, enginn himinn, sem býðr oss að láta staðar numið? Eilifr alheimsgeimr, eilíft ginnunga- gap ? Hvar erum vér? Hverja leiðarlengd höfum vér iagt oss á hak? Vér erum komnir til takmarksins — hvar? Að fordyri óendanleikans! í raun og réttri veru höfum vér ekki færzt einu feti framar. Vér erum ekki nær takmarkinu, enn þótt vér hefðum Btaðið grafkyrrir í sömu sporum; vér getum byrjað sömu ferð þaðan sem vér stöndum og þotið áfram hvíldarlaust um ótölulegar aldir. Enn ef vér loksins að árþúsundum liðnum stöðvuðum flug vort, þá mundum vér þegar sjá, að vér hefðum ekki komizt yflr hinn minsta hlut alheimsins. Hvarvetna mið- punktar, hvergi takmörkun! í þessum óendanleik eru sólna- klasarnir, — sem gera þann alheim, sem okkr er sýnilegr, — ekkert meira enn eins og dálítið eykrili í eyjaheimi þeim hinum mikla, og alt vort mikilláta mannkynslif með þess trúarlegu og pólitisku söguviðburðum ekki nema eins og augnabliks draumr í samanburði við eilífan varanleik og ómælandi víðáttu al- heimsins11. Hjólreiðar eru nú í miklum framförum, og vanir hjólríðarar eru svo fljótir í ferðum, að þeir gætu farið úr Reykjavík norðr í land og til Reykjavíkr aftr að kveldi, ef vegriun væri nokkurn veginn góðr. Nú er farið að nota rafmagns reiðhjói í Ameriku. Pau fara 100 enskar mílur á klukkutímanum. í næsta stríði munu loftför verða mikið notuð. Sagt er að Edisou hafi nýlega fundið drápvél eiua, sem hafa má í loftbát og hellir því sprengiefni yfir borgir og heri, að alt verðr gjöreytt á svipstundu. — í loftförunum má og hafa rafmagnsíjós tii að lýsa ofan í borgirnar að nóttu til, og má berjast þannig dag og nótt. Heraíii stórveldanna er eftir nýjustu skýrslum þannig: Á friðartíma: Hermenn. Hestar. Byssur. Frakkland 538,738 122,000 2,810 Þýzkaland 593,550 120,000 2,964 Rússiand 1033,661 150,000 2,200 Austrríki 319,235 65,500 1,000 Ítalía 238,000 52,000 860 Á ófriðartíma: Frakkland 2,715,600 800,000 4,500 Þýzkaland 2,440,000 562,150 4,430 Rússland 2,411,105 463,000 5,200 Austrríki 1,590,000 292,000 2,140 ítalia 1,253,200 134,009 1,620 Tíðarfar. Óþurkar hafa verið nú um langan tíma, að því er virðist um alt land, og hefir það spilt fyrir nýting á töðum. — Grasspretta mun víð- ast vera eða verða í fuliu meðallagi, einkum á engjum. Aflahrögð. Dálítill reytingr er hér við Faxaflóa, einkum af ýsu; annars fiskilítið. Silfrbrúðkaupsdag krónprinsins, 28. júlí, var flagg- að hér á hverri stöng, og hornablástr og Ijósaskraut haft til hátíðabrigðis um kveldið og samsæti á hótei „ísland“. Munu tveir kaupmenn mest hafa gengizt fyrir þessu. Vaagen, skip 0. Wathne, kom hingað í gærkveldi frá Seyðisfirði og með henni nokkrir farþegar, þar á meðal Benedikt Sveinsson sýslumaðr, úr ferð sinni til Kaupmannahafnar. Von er á gufuskipi Wathnes, „Egil“, innan skamms hingað að austan. Vestmannaeyjum, 14. júlí: „Það sem af er sumr- inu hefir veðrátta verið hér mjög óhagstæð að mörgu leyti. Sífeldir þurkar allan maímánuð sem hnektu grasvexti og því að fugl tæki hér heirna. Allan júnímán. og það sem af er þessum mánuði, hafa verið tíðar rigningar, vindar og óveðrátta. Tún eru því fremr illa sprottin, enn kálgarðar líta heldr vel út. Sjaldan sjógæftir og því nær fiskilaust þá komizt hefir orðið á sjó. Dálítill reytingr í dag af samtín- ingi. — Það heyrast ófagrar sögur um atvinnuleysi, basl og bágindi íslendinga í Ameríku, enn hér er ekki stórum betra: hjá allmörgum atviunuleysi, bjargar- skortr og harðrétti. Embættismönnum mundi þykja óviðfeldin kjör nokkuð margra eyjabúa; að lifa á brauði eða kökum og vondri soðningu af skornum skamti, feitarlaust og kaffilaust, og svo vatnsgraut; fá úr búð í reikning að eins kol, og korn mælt í x/2 skeffum. Margt manna (60—70) fór héðan í vor með „Agli“ til Austfjarða að leita atvinnu, og flestir sem mögulega mega missast frá heimilum fara héðan til landsins í kaupavinnu. — 2 ameríkönsk fiski- skip hafa verið hér öðru hvoru að flögra við eyjarnar og suðrströnd landsins til Ingólfshöfða, enn hafa látið illa yfir afla sínum frá maílokum. — Á næstliðnum árum hafa fercfir hingað frá meginlandi farið mink- andi ásamt verzluninni, enn þetta vor hafa þó milli- ferðir og verzlun verið með langminsta móti. Enn selferðirnir til Víkur og Eyrarbakka munu verða allmikill búbætir verzíunarhöfuðbólsins. Eyjabúum verðr það samt ekki skaði, þá litið er á þyngsli og átroðníng, er eyjaferðir bökuðu þeim, þó augu Rang- vellinga og Skaftfellinga hafi opnazt og sjái betr enn áðr þann kostnað, teppur um langa tíma, skemdir á vörum, vörumissi, hrakninga, skipbrot og mannskaða, sem eyjaferðunum hafa verið samfara. Mun það láta nærri, að 25 mannslíf hafi farið við verzlunarferðir hingað á næstliðnum 25 árum. — Lítilsháttar vöru- kaup frá Höfn áttu sér stað meðal sárfárra bænda hér fyrir borguu út í liönd eða fyrirfram. Sjá menn það nú orðið alment, hvet hagr það er að verzla á þann hátt í samanburði við það sem áðr var. Fyrst verðmunrinn og svo vörugæðin“.

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.