Fjallkonan - 20.09.1894, Qupperneq 1
Kemr út um miðja viku.
Árg. 8 kr. (erlendia 4 kr.).
Angiýeingar mjög ódýrar.
GJalddagi 15. Júli. Cpp.
eðgn gkrifleg fýrir 1, okt.
Afgr.: Þingholtsstr. 18.
FJALLKONAN.
XI, 38. Reykjavík, 20. september. 1894.
Verðmunr á verzlunarvörum í landshagskýrslum.
Síðustu skýrslur um verð á verzlunarvörum komu
út í Stj.tíð. 1893, C-deild, og eru þær fyrir árið 1891.
Þ;ið er ekki ófróðlegt, að bera saman þessar verð-
skýrslur til að sjá mismuninn á verði á hinum ýmsu
verzlunarvörum í hinum ýmsu kauptúnum.
Yér skulum fyrst athuga innlendu vörurnar.
Kjöt er í Reykjavík á 25 au. pd. enn víðast annars-
staðar 16—18 au.; ódýrast er það á Papós og Beru-
firði 14 au. — Rjúpur eru á allmörgum stöðum á
20—25 au., í Rvik á 18 au., Akreyri 15 au. og Sauð-
árkrók 10 au. — Smjör er dýrast á Berufirði 75 au.
og ísafirði 70 au., í Reykjavík 60 au., enn út um
land er það víðast milli 50 og 60 au. — Tólg er á
Akreyri og Húsavík 26—27 au., enn í Ólafsvík 50 au.,
á ísafirði 45 au. og svo á ýmsum stöðum 40 au. og
undir það. — Hvít ull dýrust í austrlands kaupstöðum
öllum 80 au., annars víðast um 70 au., nema að eins
64—65 au. á Stokkseyri, Ólafsvík, Patreksfirði og
Bíldudal; svört ull hefir verið 77 au. á Seyðisfirði,
enn ekki nema 45 au. á Fiateyri; 48 au. á Sauðár-
króki, enn annars víðast á 55—60 au.; mislit ull
hefir verið á 58 au. á Eskifirði enn annars víðast
45—50 au. — Tvíbandssokkar hafa verið seldir á
2 kr. parið á Þingeyri og á 1 kr. á Eyrarbakka,
enn 55—58 au. á Sauðárkróki og Hofsós, og 65—67
au. á Húsavík og Akreyri. Fingravetlingar hafa
verið seldir á 1 kr. á Patreksfirði og Þingeyri, enn
55—58 á Akreyri og Húsavik. — Yerð á söltuðum
sauðagærum á Patreksf. 1 kr. 88 au., enu 2 kr. 75 au. í
Skarðsstöð, annars víðast 2 kr. 50 au. — Verð á hertum
sauðskinnum hefir verið 2 kr. 60 au. í Stykkishólmi
og 2 kr. á Húsavík, annarsstaðar ekki yfir 1 kr. 50 au.
— Lambskinn hafa verið á 60 au. á Eyrarbakka og
i Þorlákshöfn, enn víða (t. d. á Vopnafirði) á 25 au.
— Kálfskinn hafa verið á 2 kr. á ísafirði enn 75 au.
á Sauðárkrók. — Folaldaskinn hafa verið á 60 au.
í Reykjavík enn 1 kr. í Hafnarfirði. — Selskinn
hafa verið á 3 kr. 50 au. á ísafirði enn að eins 2 kr.
12 au. í Reykjavík. — Fyrir mórauð tóuskinn hafa
verið gefnar 10 kr. á Bíldudal, enn 30 kr. á Akreyri,
Skarðsstöð og Flatey. — Fyrir hvít tóuskinn hafa
verið gefnar 2 kr. í Stykkishólmi, 8 kr. í Reykjavík
og 10 kr. á Akreyri. — Fiðr hefir verið á 1 kr.
10 au. á Papós, enn 50 au. á Sauðárkróki. — Salt-
fiskr stór hefir verið á 65 kr. skpd. í flestum vestr-
lands kaupstöðum, á 60 kr. í Reykjavík, enn að eins
47—48 kr. í verzlunarstöðunum í Þingeyjarsýslu;
smáfiskr á 36 kr. 80 au. á Vopnafirði, enn 60 kr. í
ýmsum vestrlands kauptúnum og 45 kr. í Reykjavík.
— Lax hefir verið á 82 au. pd. í Borgarnesi, enn
45 au. í Húsavík. — Sundmagi hefir verið á 45 au.
pd. í Keflavík, enn 21 eyri á Eskifirði. — Þorskalýsi
soðið hefir verið á 15 kr. tunnan í Reykjavík, enn
25 kr. í Skarðsstöð, Flatey og Berufirði. — Hákarls-
lýsi á 24 kr. tunnan á Seyðisfirði, enn 34 kr. á Sauð-
árkrók; annars víðast um 30 kr. Hvallýsi 18 kr.
tunnan á Þingeyri, enn 29 kr. 40 au. á Sauðárkróki.
Þegar kemr til útlenda varningsins er munrinn þó
enn þá meiri. Þannig er rúgrinn víðast á 8 kr. 50
au. 100 pd. og á Seyðisfirði og Eskifirði á 8 kr. að
eins, enn á 10 kr. á Eyrarbakka, Keflavík og Hafn-
arfirði og 9 kr. 50 au. í Reykjavik; að sama skapi er
mismunr á rúgmjöli á sömu stöðum. Overhead-mjöl
er á 12 kr. 100 pd. á Vopnafirði, Berufirði og Skaga-
strönd, enn að eins 9 kr. 50 au. á Stokkseyri og 9
kr. 60 au. í Skarðsstöð. Annars víðast á 11 kr.
Bankabygg er á 14 kr. 100 pd. í Hafnarfirði, enn 11
kr. á Seyðisfirði, Stokkseyri og Skarðsstöð. Baunir á
10 kr. 50 au. í Skarðsstöð, enn á 13 kr. 50 í Reykjavík,
Eyrarbakka og Bíldudal. Hveiti á 15 au. pd. á
Flateyri og Eyrarbakka, í Reykjavík 16 au., enn 20
au. á Vopnafirði, Seyðisfirði, Berufirði, Borðeyri og
ísafirði og 22 au. í Ólafsvík. Hrísgrjón pd. á 15 au.
í Hafnarfirði, enn 12 au. á Stokkseyri. Smjör á 50
au. á Akreyri, enn á 1 kr. í Stykkishólmi, 70 au. á
ísafirði og 75 au. á Vopnafirði. Kaffi á 1 kr. pd. á
Eskifirði og á 1 kr. 5 au. í Skarðsstöð, enn 1 kr.
25 au. á Patreksfirði og 1 kr. 20 au. á Eyrarbakka,
Ólafsvík, ísafirði og víðar. Kandís á 40 au. pd. á
Eyrarbakka og víðar, víðast á 35—40 au., enn á
Stokkseyri á 25 au. Hvítasykr á 35 au. pd. á Eyrar-
bakka, 25 au. á Stokkseyri og 28 au. i Skarðsstöð, enn
annars allsstaðar yfir 30 au. (33 au. í Reykjavík). Púðr-
sykr á 24 au. í Skarðsstöð, enn á 30 au. á Eyrar-
bakka, ísafirði og Sauðárkrók. Kartöflur á 8 kr. á
Akranesi, Stykkishólmi, Eskifirði og víðar, enn á 11
kr. á Vopnafirði og Þingeyri og víðast á 10 kr. Salt,
tnn., á 6 kr. á Borðeyri, enn á 3 kr. 75 au. á Stokkseyri
og Eskifirði, á 4 kr. 75 au. í Reykjavík. Neftóbak
á 1 kr. 25 au. á Stokkseyri og á 1 kr. 31 eyri í
Skarðsstöð, enn á 1 kr. 63 au. á Patreksfirði, munn-
tóbak á 1 kr. 65 au. á Stokkseyri, enn á 2 kr. 28
au. á Patreksfirði. Brennivín á 60 au. pt. á Stokks-
eyri, enn á 1 kr. í Ólafsvík. Edik 15 au. pt. í Skarðs-
stöð, enn á 1 kr. 75 au. í Raufarhöfn og Þórshöfn;
annars 15—40 au. Steinolía á 15 au. pt. á Stokks-
eyri og Berufirði, enn 30 au. á Bíldudal; annars víð-
ast yfir 20 au. Steinkol, 100 pd., á 1 kr. 50 au. í
Reykjavík, enn á 6 kr.(!) á Skagaströnd, annars víða
2 kr. til 2 kr. 50 au. Tjara á 16 kr. tunnan í
Skarðsstöð, enn 41 kr. á Blönduósi. Plankar, 12
feta, á 1 kr. 60 au. á Papós, enn á 6 kr. á Húsavík
(2 kr. í Reykjavík, enn 4 kr. 50 au. á Akranesi).
Borð, 12 feta, tylftin á 9 kr. í Skarðsstöð, enn á
15 kr. 10 au. á Skagastrand, 12 kr. í Reykjavík
Spírur, 12 feta, á 50 au. 1 Reykjavik, enn á 6 kr.
í Ólafsvík(!) Kalk á 16 kr. tunnan í Hafnarfirði og
á 15 kr. í Reykjavík, enn á 6 kr. í Skarðsstöð og
Flatey. Sement á 15 kr. tunnan í Reykjavík, enn
á 10 kr. á Eskifirði. Ljáir á 95 au. í Stykkishólmi
og á Seyðisfirði, enn á 2 kr. í Ólafsvík.
Af þessum samanburði má að vísu ráða, að mikill
munr mun vera á vöruverði bæði á innlendum og út-