Fjallkonan - 01.02.1895, Blaðsíða 4
20
FJALLKONAN.
xn 5
una, n. 1. stungu henni í vasann og tóku hana ekki
þaðan aftr.
Á seinni árum hefir fiskveiðum Austfirðinga og
Yestfirðinga farið mjög fram, enda eru fiskveiðar þar
stundaðar með miklum dugnaði og atorku þeim til
sóma. Þar á móti hefir fiskveiðum hér við Faxaflóa
á seinni árum farið aftr, síðan sjómenn fóru að lifa
undir ákvæðum samþyktanna, því þeir hafa verið
neyddir til að leggjast í nokkurs konar dvala um
langan tíma, sem eðlilegt er, þar sem þeira hefir
nú nm nokkur ár verið algerlega bannað að brúka
önnur veiðarfæri enn handfæri langan tíma árs.
Þegar menn þannig sjá, að þeir eru með lögum
neyddir til að leggja árar í bát, þá er hætt við að
eyrai eftir af sama aðgerðarleysinu, þegar bannið er
á enda.
Eins og nú stendr á, að víðast í kringum landið
er og hefir verið ágætis afli, enn hér alveg aflalaust,
þá er leiðinlegt að þurfa að játa, að aflaleysi það
sem hér á sér stað sé ef til vill mönnum að kenna.
Hér hefir enginn mátt brúka lóðir eða þorskanet
síðan á nýári, og eru mikil likindi til, að ef lóðir
hefðu verið brúkaðar, hefði þó aflazt nokkuð, enn
menn eru iöglega afsakaðir að leita fyrir sér, þegar
þeir ekki mega brúka þau veiðarfæri, sem þeir helzt
hafa von um að afla á, enda hefir enginn maðr úr
Keykjavík eða af Seltjarnarnarnesi reynt að róa til
fiskjar síðan löngu fyrir jól, af því þeir hafa ekki
álitið til neins að reyna það með handfærum.
Fyr var sú skoðun ríkjandi, að þeir sem lítils vóru
megnugir leituðust við að hindra dugnaðarmennina,
því þeir vildu að allir yrðu jafn aumir, enn nú eru
menn farnir að játa, að hagr mannfélagsins byggist
á efnamönnunum og dugnaðarmönnunum, og að þeir
smærri njóti þeirra stærri að mörgu leyti. Því er
mikil ástæða til, að menn hér eftir vilji breyta sam-
þykt vorri svo, að þeir sem vilja hafa á að bjarga
sér séu ekki hindraðir frá því með lögum og gerðir
að ónytjungum, eins og nú á sér stað.
Ég vona, að Gullbringusýslubúar og Rcykvík-
ingar láti ekki þá skömm eftir sig liggja, að búa
lengr í blindni undir þeirri fiskveiðasamþykt, sem
þeir nú verða að sæta, heldr geri fiskveiðarnar alveg
frjálsar eins og þær áðr vóru. Þeir hafa nóga skömm
og skaða af því, þótt þeir ekki lengr geri sig þannig
að athlægi.
Nesi, 24. janúar 1895.
Ouðmundr Einarsson.
Póstskipið ,Laura‘ kom í gær og með henni all-
margir farþegar, flest verzlunarmenn.
Yernd Dana og botnvörpuveiðararnir. Ráða-
neytið hefir farið fram á, að fjárlaganefnd ríkisþings-
ins ætlaði um 90 þús. krónur til að bæta varnar-
skipi við strendr íslands, enn nefndin sinti því ekki,
og haldið er að ríkisþingið muni ekki sinna því.
Síldaralii góðr hefir verið á Austfjörðum í vetr,
einkum Reyðarfirði og Eskifirði. Á Eskifirði lágu í
desember 5 gufuskip í einu og fengu öll fulla hleðslu
af sild.
Fiskilaust er enn við allan Faxaflóa.
Tíðarfar er alt af óstöðugt mjög. Nú sem stendr
eru hlákur og mun hafa tekið upp snjó í sveitunum.
Enn að undanförnu hafa verið frost mikil, 12—14° C.
íshúsið hér í bænum er nú fullgert fyrir nokkru
og hefir verið fluttr í það ís af Tjörninni. ísinn
reynist góðr, og betri enn ísinn í Elliðaánum, sem
hafðr er í íshús Thomsens kaupmanns þar við árnar.
Enn því miðr er lítið til að geyma í íshúsi þessu
enn sem komið er; vonandi að úr því rætist áðr
langt líðr.
Baðfélag er stofnað hér í bænum með hlutabréf-
um og ætlar að koma böðum á fót í prentsmiðju-
húsiuu gamla í Aðalstræti. Það verða venjuleg böð,
heit og köld, steypiböð, rússnesk böð o. s. frv. Þetta
er þarft fyrirtæki og vonandi að það þrífist vel.
Ábyrgðarfélag þilskipa er nú komið á fót hér
fyrir milligöngu Tr. Gunuarssonar bankastjóra. Eru
gengnir í það allir þilskipaeigendr í Reykjavik og á
Seltjarnarnesi, nema Eyþór Felixsson, sem hefir skip
sín í ábyrgð erlendis, og Geir Zoéga, sem að sögn
hefir verið tregari að ganga í íélagið fyrir þá sök,
að skip hans munu vera betr útbúin enn flest hin
skipin.
Ljósmyndir
s_ '-TD O- febrúar byrja ég að taka myndir. —
d Allr frágangr eftir nýjustu tízku.
£ an Verð lægra enn annarstaðar á
'O íslandi.
ET Reykjavík 31. janúar 1895.
Aug. Guðmundsson.
jipuÁiusofi
Kvennablaðið.
Hér með læt ég hina háttvirtu
áskrifendr að Kvennablaðinu vita,
að vegna þess að ekkert boðsbréf
er enn þá komið aftr af Austr-
landi og mjög fá af Norðrlandi,
hefi ég afráðið að fresta útkomu
fyrsta blaðsins þar til um miðjan
febrúar.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
í verzlun Magnúsar Einarssonar
úrsmiðs á Vestdalseyri yið Seyðisfjörð fást
ágæt vasaúr og margs konar vandaðar
vörnr með mjög góðu verði.
FJALLKONAN
i895
Nýir kaupendr Fjallk. 1895
geta fengið í kaupbæti:
Árganginn 1894, 1893 eða 1892,
meðan upplagið hrökkr.
Sögusafn Fjallk. I.
Ef til vill eitthvað meira.
Þeir sem útvega 5 nýja kaup-
endr geta fengið Fjallk. 1890—94,
þ. e. 5 árganga, ékeypis ásamt
fylgiritum, sögusafni o. fl.
Til 7. febr.-mánaðar sel ég
skófatnað
af öllum tegundum
með svo lágu verði að slíkt
gjafvcrð hefir aldrei heyrzt fyr
né síðar.
Rafn Sigurðsson.
Eyrbyggja saga, útg. Þorleifs
Jónssonar, óskast keypt, Ritstjóri
visar á.
Útgefandi: Tald. Ásmundarson.
Félagsprentsmiíjan.